Fréttablaðið - 31.08.2022, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 31.08.2022, Blaðsíða 1
Það koma reglulega upp tilfelli þar sem nemendur hætta í námi eða þurfa að minnka við sig vegna vinnu. Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari FSu 1 9 6 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 3 1 . Á G Ú S T 2 0 2 2 Er þakklæti efst í huga Hörmuleg ágústlok 1997 Tímamót ➤ 18 Lífið ➤ 24 Góð byrjun á hjólatúrnum Hugsum í framtíð IMAGE NEEDS TO BE EXTENDED IF APPROVED 2-3 DAGA AFHENDING MARKAÐURINN Eyrir Vöxtur hefur fjárfest fyrir 400 milljónir króna í íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Justikal, sem hefur þróað hugbún- aðarlausn sem gerir lögmönnum og öðrum aðilum kleift að senda gögn rafrænt til dómstóla. Sparnaður fyrir íslenskt samfélag með notkun lausnar Justikal getur verið gríðarlegur, eða um það bil 3,3 milljarðar á ári. Einnig getur þessi lausn gert dóm- stóla aðgengilegri fyrir tekjulægri aðila. Þessi f járhagslega innspýting verður notuð til vöruþróunar og markaðssóknar Justikal inn á alþjóðlega markaði og hyggst fyrir- tækið byggja upp alþjóðlegt sölu- og markaðsteymi. Eyrir Vöxtur er sjóður undir hatti Eyris Invest sem er lykilhluthafi í Marel. SJÁ SÍÐU 10 Eyrir Vöxtur fjárfestir í Justikal Skólastjórnendur framhalds- skóla eru ekki á einu máli um hvort tekjutengt jafnrétti ríki til náms. Kostnaður við bækur og tæki er mikill. ninarichter@frettabladid.is MENNTUN Kostnaður framhalds- skólanema að hausti getur hlaupið á hundruðum þúsunda króna sé bóka- og tækjakostnaður tekinn til greina. Stjórnendur framhaldsskóla sem Fréttablaðið ræddi við, eru ekki á einu máli um hvort tekjutengt jafn- rétti ríki til náms og hvort tekjur heimilanna hafi áhrif á námsár- angur eða aðgengi að náminu. Nýleg skýrsla bendir til þess að menntun foreldra og bakgrunnur hafi beinni áhrif á námsárangur en tekjutengdir þættir. „Það koma reglulega upp tilfelli þar sem nemendur hætta í námi eða þurfa að minnka við sig vegna vinnu. Fjöldi þeirra sem nefna vinnu sem aðalástæðu brotthvarfs úr námi hefur verið á bilinu þrír til sjö á hverri önn,“ segir Olga Lísa Garðars- dóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands. „Það er nokkuð víst að skólinn veit ekki um alla sem þyrftu fjárhagsaðstoð. Best væri þó ef allir sætu við sama borð og námsgögn væru kostuð af ríkinu,“ segir hún. „Ég finn alls ekki fyrir stéttaskipt- ingu innan skólans og við verðum ekki vör við mikið brottfall vegna vinnu nemenda,“ segir Sólveig Guð- rún Hannesdóttir, rektor Mennta- skólans í Reykjavík. Sólveig segir f lesta eldri nema stunda vinnu. „Ég held að tækifæri til náms á framhaldsskólastigi séu nokkuð jöfn í landinu.“ SJÁ SÍÐU 6 Námsgögn gjarnan dýr og fjöldi nemenda er í vinnu Kvennalandslið Íslands æfir nú í Miðgarði, knattspyrnuhúsi Garðabæjar, vegna landsleiks liðsins við Hvíta-Rússland sem fram fer á Laugardalsvelli á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK bth@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Feðgar í manndráps- málinu á Blönduósi eru báðir með stöðu sakbornings. Þetta staðfestir Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra. Skýrsla var tekin af Kára Kárasyni, sem varð fyrir skoti, í fyrradag. Kári missti eiginkonu sína, Evu Hrund Pétursdóttur iðjuþjálfa í árásinni. Hefur verið talið að sonur þeirra, gestkomandi á heimilinu, ætti þátt í dauða byssumannsins. n Feðgarnir með stöðu sakbornings Skýrsla var tekin af Kára í fyrradag.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.