Fréttablaðið - 31.08.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 31.08.2022, Blaðsíða 22
 Það var nú einn vinur minn sem grínaðist með það að þegar maður stendur mikið á haus þá vinnur þyngdaraflið með manni. Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Okkar ástkæra Guðbjörg Anna Þorvarðardóttir dýralæknir, Skólavörðustíg 35, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut, sunnudaginn 28. ágúst sl. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd systkina og annarra ástvina, Juliette Marion Elskulegi unnusti minn, faðir, sonur, bróðir, tengdasonur og barnabarn, Þórður Kárason pípulagningameistari, Ásbúð 52, Garðabæ, varð bráðkvaddur miðvikudaginn 24. ágúst. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 2. september klukkan 13. Streymt verður frá útförinni: https://hljodx.is/index.php/streymi Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarreikning barna hans: 0318-26-4662, kt. 1105607379. Elsa Kristín Auðunsdóttir Laufey Líf, Anna, Tinna, Sunna og Kári Anna Þórðardóttir Kári Grétarsson Grétar Kárason Laufey Baldvinsdóttir Auðunn Helgi Herlufsen Þórður Jónsson Ásdís Hjörleifsdóttir og aðrir ástvinir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður okkar, stjúpföður, tengdaföður og afa, Kjartans Jónssonar innanhússarkitekts. Við þökkum fyrir einstaka umönnun og hlýju starfsfólks Krabbameinsdeildar, Krabbameinsfélagsins og Ljóssins sem og Rafns Hilmarssonar læknis og Kristínar K. Alexíusdóttur hjúkrunarfræðings. Helga Sjöfn Kjartansdóttir G. Magni Ágústsson Margrét Una Kjartansdóttir Kristinn J. Magnússon Helgi Birgisson Margrét Agnarsdóttir og barnabörn. Elskulega eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ágústa Guðmundsdóttir Brekkustíg 35, Njarðvík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans föstudaginn 26. ágúst. Útför hennar fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 5. september klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartavernd. Sigurjón Torfason Anna María Sigurjónsdóttir Gunnar Jóhannesson Ester Sigurjónsdóttir Stefán Magnús Jónsson Harpa G. Sigurjónsdóttir Húnbogi Þór Árnason Ásdís Björk, Lilja María, Jóhannes Birkir, Magnea Guðný, Guðrún Ágústa, Eva Sólan, Halldóra Margrét, Hafdís Rán og Jóhanna Hrund Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir og stjúpfaðir, Sigurgeir Kjartansson læknir, andaðist á heimili sínu 25. ágúst. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. september kl. 10.00. Jóhanna G. Halldórsdóttir Aðalsteinn Sigurgeirsson og fjölskylda Elín Sigurgeirsdóttir og fjölskylda Kristín Garðarsdóttir og fjölskylda Bryndís Garðarsdóttir og fjölskylda Áslaug Garðarsdóttir og fjölskylda Elskulegur eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Karl Sævar Benediktsson sem lést þann 19. júlí sl. verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 1. september kl. 13. Helga Steinunn Hróbjartsdóttir Hróbjartur Darri Karlsson Þórhildur Sveinsdóttir Bjarni Karlsson Jóna Hrönn Bolladóttir Árni Heiðar Karlsson Aldís Ívarsdóttir og aðrir ástvinir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, Margrét Kristín Sigurðardóttir viðskiptafræðingur, sem lést á Landspítalanum þann 21. ágúst, verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn 5. september klukkan 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Menntunarsjóð Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Kristín Vala Ragnarsdóttir Halldór Páll Ragnarsson Jóhanna Hulda Jónsdóttir Sigurður R. Ragnarsson Þórdís Kjartansdóttir Margrét Dóra Ragnarsdóttir Hjálmar Gíslason og barnabörn. Yndisleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Helga Sigurðardóttir Ásholti 7, Mosfellsbæ, lést á Landspítalanum, sunnudaginn 28. ágúst. Útför verður tilkynnt síðar. Ágúst Óskarsson Óskar Örn Ágústsson Ásta Jenný Sigurðardóttir Silja Rán Ágústsdóttir Rosi Rolf Rosi Heiðar Reyr Ágústsson og barnabörn. Ingibjörg Stefánsdóttir jóga- kennari og listakona er fimmtug í dag. Margir Íslendingar þekkja hana eflaust best sem söng- og leikkonu sem meðal annars söng fyrir Íslands hönd í Eurovision. arnartomas@frettabladid.is „Það er bara þakklæti sem er efst í huga,“ segir Ingibjörg Stefánsdóttir, jógakennari og listakona, sem fagnar fimmtugs afmæli í dag. „Ég er bara þakklát fyrir að fá að lifa þann dag að fá að vera fimmtug.“ Ingibjörg er ekki mikið afmælisbarn en stefnir þó á að gera eitthvað skemmti- legt í tilefni tímamótanna. „Ég hugsa að ég sjái eftir því ef ég geri ekki neitt. Ég ætla þess vegna að hitta góðar vinkonur, fara út að borða með fjölskyldunni og halda svo gott partí seinna.“ Kyrrðin dregur að Ingibjörg stofnaði jógastöðina Yoga Shala árið 2005 og hefur starfað þar síðan sem kennari og framkvæmda- stjóri. Hún segir jógað eiga sinn þátt í að liðka ferli hækkandi aldurs. „Það var nú einn vinur minn sem grín- aðist með það að þegar maður stendur mikið á haus þá vinnur þyngdaraflið með manni,“ segir Ingibjörg hlæjandi. „Þetta snýst kannski ekki beint um útlitið en heldur okkur ungum líkam- lega og andlega.“ Jógamenning á Íslandi hefur sprungið út á síðustu áratugum og þurfti Yoga Shala til að mynda að færa sig úr 200 fer- metra húsnæði í 600 fermetra. Ingibjörg segir aðsóknina mjög mikla. „Þegar maður hefur rekið fyrirtæki í svona langan tíma sér maður breyting- una á því hvað fólk þarf. Þegar ég var að byrja var töluvert meira um kraftmeiri jógatíma en núna finnst mér fólk leita meira í kyrrð og ró.“ Það er þó allur gangur á því hvað fólk vill fá út úr jóganu og úr fjölbreyttum möguleikum að velja. Ingibjörg segir einnig ánægjulegt að sjá hversu mikið hlutur karla í jóga hefur aukist. „Nú þykir ekkert skrítið að mæta í jóga sem karlmaður heldur bara eðli- legur hluti af lífinu hjá rosalega mörgum til að halda heilsu og hlúa að sér.“ Neistinn lifir enn Margir Íslendingar þekkja Ingibjörgu eflaust best sem söng- og leikkonu, en á tíunda áratugnum söng hún meðal ann- ars fyrir sveitirnar Pís of keik og Sirkus Babalú auk þess sem hún keppti fyrir hönd Íslands í Eurovision 1993 með lag- inu Þá veistu svarið. Henni tekst enn að vera með annan fótinn í listgreinunum, enda heldur jógað henni líklega liðugri. „Ég lék í síðustu seríu af Ófærð sem var alveg ótrúlega skemmtilegt. Ég fann það sterkt að þessi neisti er enn þá í mér,“ segir hún. „Svo er ég í kórnum Kliður sem samanstendur af tónlistarfólki sem syngur verk eftir kórmeðlimi. Ég er alveg að syngja fullt.“ Eigum við þá mögulega von á Eurovisi- on-endurkomu í framtíðinni? „Ekki nema ég semji fyrir einhverja aðra. Hver veit?“ segir hún og hlær. Og þá vitum við svarið. n Er þakklæti efst í huga Ingibjörg hefur rekið Yoga Shala frá árinu 2005. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Merkisatburðir 1944 Íþróttabandalag Reykjavíkur er stofnað. 1945 Tónlistarmaðurinn Van Morrison fæðist. 1987 Michael Jackson sendir frá sér plötuna Bad. 2006 Málverkið Ópið finnst í Osló. Því var rænt tveimur árum fyrr. TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.