Fréttablaðið - 31.08.2022, Side 4
Endursmit eru um
10-20 prósent af þeim
smitum sem eru að
greinast núna og
innlagnir á sjúkrahús
hjá fólki með endur-
smit eru mjög fátíðar.
Þórólfur
Guðnason,
sóttvarnalæknir
Þarna taldi ég að við
værum klárlega að
tryggja það að fag-
mennskan fengi að
njóta sín.
Lilja Alfreðsdóttir, menningar-
og viðskiptaráðherra
HJARTA
OG
ÆÐAKERFI
ARCTIC HEALTH
AHI.IS
OMEGA-3 COLLAGEN
HREIN ÍSLENSK FÆÐUBÓT
Í POKUM FYRIR LÁGMARKS KOLEFNISSPOR
bth@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Lilja D. Alfreðsdóttir,
menningar- og viðskiptaráðherra,
hafnar því alfarið að skipun Hörpu
Þórsdóttur í embætti þjóðminja-
varðar án auglýsingar hafi verið
ólögmæt.
Ák vörðun ráðherrans hefur
verið harðlega gagnrýnd. Ekki
liggur fyrir hvort málið bar á góma
á ríkisstjórnarfundi í gær.
„Mér þykir auðvitað miður sú
gagnrýni sem hefur komið og ég
auðvitað tek hana til mín en þarna
taldi ég að við værum klárlega að
tryggja það að fagmennskan fengi
að njóta sín,“ sagði Lilja í samtali
við Fréttablaðið við Ráðherra-
bústaðinn í gær.
Lilja hafnar að verið sé að hverfa
frá norrænu módeli og y f ir í
amerísk kerfi þar sem fólk er per-
sónulega handvalið í stöður líkt
og Haukur Arnþórsson stjórn-
sýslufræðingur heldur fram. Mik-
ill starfslokakostnaður getur að
óbreyttu hlaðist upp við stjórnar-
skipti að mati Hauks.
„Við erum að taka og f lytja fag-
manneskju úr einu safni yfir í hið
næsta,“ segir Lilja um ásakanir um
vonda og jafnvel ólöglega stjórn-
sýslu.
Guðlaug u r Þór Þórða r son,
umhverfis-, orku- og loftslagsráð-
herra, segir að hann hafi aldrei
skipað háttsettan embættismann
með tilfærslu innan kerfis í stofnun
án þess að auglýsa stöðu líkt og
Lilja nýtti sér með vísan í 36. grein
starfsmannalaga.
Á smu ndu r Eina r Daða son,
mennta- og barnamálaráðherra,
samflokksmaður Lilju, segist sjálf-
ur hafa nýtt sér 36. greinina. Hann
sér ekkert athugavert við ákvörðun
Lilju. n
Lilja Dögg segist hafa tryggt fagmennsku
ragnarjon@frettabladid.is
KÓPAVOGUR Fyrsta hæð húsnæðis
sem notað er fyrir vistun fatlaðra
ungmenna í Kópavogsbæ í Fann-
borg 2 er ekki skráð fokheld. Þetta
kemur fram í athugasemdum fjöl-
miðlafulltrúa Kópavogsbæjar við
frétt Fréttablaðsins sem birtist í gær.
Hæðin er skráð fullgerð en hafi
verið skráð fokhelt húsnæði á sínum
tíma þar sem hún hafi ekki verið í
notkun, einnig þar sem greinst hafði
mygla á efstu hæðum hússins.
Láðst hafi að breyta skráningu
þegar húsnæðið var tekið í notkun
fyrir Kópavogsskóla og nú hafi sú
skráning verið leiðrétt og 1. hæð
skráð sem fullgerð. Skráningin var
leiðrétt í ágústmánuði. Aðrar hæðir
hússins eru þó enn skráðar fok-
heldar.
Einnig vilji Kópavogsbær taka
fram að engin mygla hafi fundist í
þeim parti hússins sem sé í notkun.
Fréttablaðið tekur þó fram sam-
kvæmt fyrri fréttaf lutningi að
mygla hafi fundist á sömu hæð húss-
ins þrátt fyrir að sá partur hæðar-
innar sé ekki notkun.
Í athugasemd Kópavogsbæjar
segir að húsnæðið að Fannborg 2, 1.
hæð, hefði ekki verið tekið til notk-
unar undir skólastarf ef ekki hefði
verið farið vandlega yfir það af sér-
fræðingum og Heilbrigðiseftirlitinu.
Heilbrigðiseftirlitið gaf út starfsleyfi
fyrir fyrstu hæð hússins í mars síð-
astliðnum, það gildir út ágúst og von
er á Heilbrigðiseftirlitinu á nýjan
leik til að taka húsnæðið út fyrir
áframhaldandi starfsemi. n
Fyrsta hæð ekki skráð sem fokheld
Í athugasemd Kópavogsbæjar segir að húsnæðið hefði ekki verið tekið til
notkunar undir skólastarf nema vandlega hefði verið farið yfir það.
Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir segir alþjóðlegar
stofnanir benda á að ekki sé
útilokað að ný Covid-bylgja
geti orðið þó að hann sjálfur
telji það ekki líklegt. Mikil-
vægt sé þó að vera við öllu
búinn. Sjúklingum með
Covid á Landspítala fer ört
fækkandi og í gær lá enginn
með sjúkdóminn á gjörgæslu.
birnadrofn@frettabladid.is
COVID -19 „Alþjóðlegar stofnanir
eins og Sóttvarnastofnun Evrópu
og Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin eru jafnvel að spá því að það
geti komið ný bylgja og ný afbrigði,
það er ekkert víst og vonandi ekki,“
segir Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir.
Hann sjálfur segist ekki telja það
líklegt að ný Covid-bylgja skelli á.
„Þetta er það sem þessar stofnanir
eru að spá en mér finnst það frekar
ólíklegt. En við þurfum að vera
undir það búin að það geti gerst,
láta það ekki koma okkur á óvart
og bregðast við ef svo verður,“ segir
Þórólfur.
Í gær lá enginn með Covid-19 á
gjörgæsludeild Landspítala en fjór-
tán einstaklingar með sjúkdóminn
voru á spítalanum. Þegar innlagnir
voru f lestar á þessu ári lágu 88
sjúklingar með Covid á spítalanum,
í mars síðastliðnum. Inniliggjandi
sjúklingum með Covid fer því ört
fækkandi og segir Þórólfur flest þau
sem eru með sjúkdóminn ekki liggja
á sjúkrahúsinu vegna Covid.
„Allir þeir sem eru lagðir inn á
Þórólfur telur aðra bylgju ólíklega en
mikilvægt sé að vera við öllu búinn
Á tímabilum
í faraldrinum
mynduðust
langar raðir
í sýnatöku á
Suðurlands-
brautinni þegar
þúsundir mættu
þangað á degi
hverjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
spítalann eru skimaðir fyrir Covid,
svo að orsök innlagnarinnar þarf
ekki að vera Covid,“ útskýrir Þór-
ólfur.
„Þetta er ekki eins og það var
þegar margir voru lagðir inn alvar-
lega veikir vegna Covid, landslagið
er allt annað og það er ekki nokkur
vafi á því að við getum þakkað bólu-
setningum fyrir það að við séum
ekki með jafn alvarleg veikindi,“
bætir hann við.
Þórólfur segir starfsfólk spítalans
sjá greinilegan mun á veikindum
hjá þeim sem eru bólusett og þeim
sem eru það ekki. 82 prósent lands-
manna, fimm ára og eldri, eru full-
bólusett en einstaklingur telst full-
bólusettur hafi hann fengið tvo
skammta bóluefnis. Um 292 þús-
und einstaklingar hafa fengið tvo
skammta og yfir 311 þúsund manns
hafa fengið að minnsta kostið einn
skammt bóluefnis.
Þá segir Þórólfur að hjá þeim
sem fái endursmit séu einkennin
að jafnaði vægari en hjá þeim sem
séu að smitast í fyrsta sinn. „Endur-
smit eru um 10-20 prósent af þeim
smitum sem eru að greinast núna og
innlagnir á sjúkrahús hjá fólki með
endursmit eru mjög fátíðar,“ segir
Þórólfur.
Spurður að því hvort við höfum
náð þeim tímamótum þar sem
Covid er orðið að „venjulegri
flensu“ segir Þórólfur erfitt að segja
nákvæmlega til um það. „Þetta er að
verða miklu vægara þó að þetta sé
enn þá úti í samfélaginu en þar eru
líka alls konar aðrar veirur í gangi.
Það er erfitt að fullyrða að þessi fari
þá leið og verði eins og f lensa, en
það væri óskandi.“ n
birnadrofn@frettabladid.is
REYKJAVÍK Þann 1. ágúst síðastlið-
inn voru 136 einstaklingar með fötl-
un á biðlista eftir að fá úthlutað hús-
næði hjá Reykjavíkurborg. Af þeim
eiga 22 lögheimili utan Reykjavíkur.
Borgarráð hefur samþykkt endur-
skoðaða uppbyggingaráætlun hús-
næðis fyrir fatlað fólk í Reykjavík.
Þannig er gert ráð fyrir hraðari upp-
byggingu og styttingu biðlista.
Samkvæmt áætluninni verður
Félagsbústöðum falið að byggja 20
nýja íbúðakjarna með 120 íbúðum.
Áætlunin gildir til ársins 2028 en
verður endurskoðuð árlega. n
Hraða byggingu
íbúða fyrir fatlaða
kristinnhaukur@frettabladid.is
EVRÓPA Áætlanir eru uppi innan
Evrópusambandsins um að rifta
samkomulagi um greiðar vega-
bréfsáritanir Rússa. Mun þetta gera
rússneskum ferðamönnum erfiðara
fyrir að komast inn á og ferðast um
lönd Evrópusambandsins.
Fimm lönd, Finnland, Eystra-
saltsríkin og Pólland, hafa þrýst á
að hætt verði að veita Rússum vega-
bréfsáritanir. Hyggjast þau jafnvel
hætta því sjálf þó að Evrópusam-
bandið styðji ekki þá leið. Önnur
lönd, til dæmis Þýskaland, hafa ekki
viljað ganga svo langt.
Á miðvikudag verður fundað í
Brussel um málið og líklegt er að
farin verði nokkurs konar mála-
miðlunarleið. Það er að samkomu-
lagi ESB við Rússland frá árinu 2007
verði rift. En það var gert á sínum
tíma til að liðka fyrir góðum sam-
skiptum milli Brussel og Moskvu.
Evrópusambandið hefur þegar
sett á flugbann, hafnbann og bann
við vegabréfsáritunum ákveðinna
fulltrúa og viðskiptajöfra. n
ESB mun gera
Rússum erfiðara
fyrir að ferðast
Kallas, forsætisráðherra Eistlands.
4 Fréttir 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ