Fréttablaðið - 31.08.2022, Side 8
Aðalhagfræðingur Stefnis
segist engan veginn skilja
hvernig spá Seðlabankans
sem gefin var út í síðustu viku
gat komið til. Nýjustu verð-
bólgutölur séu jákvæðar en
þó sé of snemmt að hrósa
sigri. Aðalhagfræðingur
Seðlabankans segir að líkur
séu á að verðbólguhorfur í spá
Seðlabankans gætu reynst of
bjartsýnar.
magdalena@frettabladid.is
Ársverðbólgan hjaðnar í ágúst í
fyrsta sinn síðan á vormánuðum á
síðasta ári og mælist nú um 9,7 pró-
sent en ársverðbólgan mældist 9,9
prósent í júlí síðastliðnum. Þetta
kemur fram í mælingum Hag-
stofunnar sem birtar voru í gær.
Mæling ágústmánaðar var undir
spám Seðlabankans og flestra grein-
ingaraðila.
Í Peningamálum Seðlabankans
sem gefin voru út samhliða vaxta-
ákvörðun bankans í síðustu viku
kemur fram að bankinn telji að
verðbólga eigi eftir að aukast enn
frekar og verði komin í 10,8 prósent
á fjórða ársfjórðungi en hjaðni síðan
smám saman.
Þórarinn G. Pétursson, aðalhag-
fræðingur Seðlabankans, segir í
samtali við Markaðinn að margir
þættir spili inn í spá bankans.
„Við sjáum miklar hækkanir
erlendis. Alþjóðleg verðbólga hefur
aukist töluvert og meira en við
áttum von á,“ segir Þórarinn og
bætir við að mikil eftirspurn í þjóð-
arbúinu hafi átt þátt í kröftugum
vexti á öðrum ársfjórðungi.
„Síðan eru þættir eins og sú stað-
reynd að verðbólgan er búin að vera
dálítið mikil og vegna þess að þetta
er ársbreyting þá heldur takturinn
áfram að vera hár þó svo að það
verði minni breyting milli mánaða.“
Konráð Guðjónsson, aðalhag-
fræðingur Stefnis, segist engan
veginn skilja hvernig spá Seðla-
bankans fyrir þennan ársfjórðung
hvað varðar verðbólguna gat komið
til.
„Maður í rauninni skilur ekki
þessa spá bankans sem kom út í
síðustu viku. Maður skildi hana
ekki þá og skilur hana enn síður
núna. Við erum búin að sjá liðina
olíuverð, flugfargjöld og húsnæðis-
markaðinn róast svo nýjustu tölur
koma ekki á óvart í því samhengi,“
segir Konráð og bætir við að nýjustu
verðbólgutölurnar séu að einhverju
leyti fagnaðarefni.
„Það er mikill léttir að fá þessa
mælingu sem er svolítið undir vænt-
ingum og lítill taktur. En maður vill
kannski ekki hrósa sigri strax og
það er of snemmt að segja til um
hvort við séum búin að vinna bug á
verðbólgudraugnum.“
Í Peningamálum kemur fram
að verðbólguhorfur í spá bankans
gætu reynst of bjartsýnar, sérstak-
lega ef fyrirtæki fara í vaxandi mæli
að velta kostnaðarhækkunum út í
verðlag og að ef víxlverkun launa og
verðlags fer af stað gæti það valdið
því að mikil verðbólga festist enn
frekar í sessi. Spá Seðlabankans
hvað verðbólguna varðar eru tölu-
vert dekkri en spár annarra grein-
ingaraðila sem gera ráð fyrir að
verðbólgan sé ýmist búin að toppa
eða við það að toppa.
Aðspurður hvort bankinn telji
líklegt að verðbólgan verði þrálát-
ari en spár bankans gefa til kynna
segir Þórarinn hættu á því.
„Áhættumat okkar er að það
sé líklegra að verðbólgan verði
meiri en við erum að spá heldur en
minni. Ein mæling segir einhverja
sögu en við erum fyrst og fremst að
horfa á spátímabilið í heild sem eru
þessi þrjú ár. Við erum að spá því að
hún hjaðni en að hún gæti hjaðnað
hægar heldur en við eigum von á.“
Konráð segir að mikilvægt sé að
halda því til haga að verðbólgan
eins og hún er mæld sé í raun árs-
gömul sagnfræði. Við horfum á það
sem er að gerast yfir tólf mánaða
tímabil og þannig, þó að verðlag
myndi standa í stað næstu mánuði,
yrði verðbólgan samt mikil.
„Þess vegna var jákvætt að sjá að
hækkunin milli mánaða í júlí og
ágúst hafi verið í takt við það sem
verið hefur síðustu ár.“
Konráð kveðst ekki ætla að spá
hvernig verðbólgan muni þróast
næstu mánuði en þó séu jákvæð
teikn á lofti.
„Ef þessi þróun heldur áfram þá
mun verðbólgan koma ansi hratt
niður nú í vetur en það þarf að
bíða eftir talsvert skýrari vísbend-
ingum áður en hægt er að fullyrða
um það.“
Konráð segir það vera jákvætt að
svo virðist sem verðbólguvænting-
arnar séu að koma niður.
„Það er þó erfitt að segja til um
það. Við þurfum að fá sannfærandi
hjöðnun í verðbólgu bæði hér og
erlendis til að þær komi niður með
sannfærandi hætti.“
Konráð bætir við að jákvætt sé
að svo virðist sem bensínverð, f lug-
fargjöld og hrávörur séu að lækka
miðað við það sem verið hefur.
„Ef til dæmis bensín hefði ekki
lækkað jafn mikið og raun ber
vitni þá hefði lækkun milli mánaða
verið hálft prósent þannig að það er
svona ákveðinn léttir og gefur góða
vísbendingu um framhaldið.“ n
Við erum að spá því
að hún hjaðni en að
hún gæti hjaðnað
hægar heldur en við
eigum von á.
Þórarinn G.
Pétursson, aðal-
hagfræðingur
Seðlabankans
Maður í rauninni
skilur ekki þessa spá
bankans sem kom út í
síðustu viku. Maður
skildi hana ekki þá og
skilur hana enn síður
núna.
Konráð S. Guð-
jónsson, aðalhag-
fræðingur Stefnis
Framkvæmdu Áreiðanleikakönnun og nálgastu allar upplýsingar
um þína viðskiptavini á þjónustuvef Creditinfo.
Er þitt fyrirtæki tilkynningarskylt?
Segir verðbólgumælinguna
vera mikinn létti en of
snemmt sé að hrósa sigri
Svigrúm til að lækka vexti
gæti myndast á næsta ári
Konráð segir að viðbúið sé að
Seðlabankinn muni hækka
vexti meira en í ljósi þeirrar
sviðsmyndar sem markaðs-
aðilar og Seðlabankinn hafa
teiknað upp þá gæti myndast
svigrúm til að lækka vexti á ný
á næsta ári.
„Þeir munu sennilega
hækka eitthvað í millitíðinni
en ef við erum komin yfir
þessar mestu hækkanir vegna
húsnæðismarkaðarins þá
er líklegt að við munum sjá
Seðlabankann taka minni
skref í vaxtahækkunum en
verið hefur. Aftur á móti
þurfum við að sjá verðbólg-
una stefna niður í markmið
til þess að unnt sé að lækka
vexti.“
Í Peningamálum Seðlabankans kemur fram að bankinn telji að verðbólgan eigi eftir að aukast enn frekar og verði komin í 10,8 prósent á fjórða ársfjórðungi en hjaðni síðan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
8 Fréttir 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR