Fréttablaðið - 31.08.2022, Side 10

Fréttablaðið - 31.08.2022, Side 10
Íslenska nýsköpunarfyrirtæk- ið Justikal mun stórefla þróun og byggja upp alþjóðlegt sölu- og markaðsteymi til að sækja á erlenda markaði. Stækkunin kemur í kjölfar 400 milljóna króna fjárfestingar frá Eyri Vexti. olafur@frettabladid.is Hugbúnaðarlausn Justikal gerir lögmönnum og öðrum aðilum kleift að senda gögn rafrænt til dómstóla. Með lausninni geta málsaðilar fylgst með framvindu sinna mála í réttarkerfinu og feng- ið sjálfvirkar tilkynningar þegar nýir atburðir verða í málum sem tengjast þeim. Auk þessa er fjöldi annarra eiginleika í lausninni sem geta aukið afkastagetu aðila í rétt- arkerfinu og gert þeim kleift að vinna eftir þægilegri og nútíma- legri vinnuaðferðum en áður hefur þekkst. Lausnin hefur verið í þróun síðastliðin fjögur ár og hefur Dóm- stólasýslan samþykkt að lögmenn og aðilar megi nota lausnina til að senda öllum héraðsdómstólum á Íslandi gögn rafrænt. „Fram undan er mjög spenn- andi tími. Í lögmannsstörfum mínum kynntist ég vel umhverfi og áskorunum sem lögmenn þurfa að takast á við vegna pappírs- sendinga og tímafresta. Í dag er mikið magn gagna sem eru aðeins til á rafrænu formi og í sumum til- fellum er ekki hægt að prenta út skjölin ef þau innihalda til dæmis rafrænar undirskriftir. Með inn- leiðingu eIDAS-reglugerðarinnar í íslensk lög eru allar nauðsynlegar forsendur komnar til þess að geta ýtt af stað miklum framförum á umhverfi lögmanna og starfsfólks dómstóla,“ segir Margrét Anna Einarsdóttir stofnandi og forstjóri Justikal. Í lausninni er lögð mikil áhersla á öryggi við meðferð viðkvæmra skjala, þess vegna eru notaðar raf- rænar traustþjónustur í samræmi við eIDAS-reglugerðina til þess að tryggja að öll meðhöndlun sé sem öruggust. Öll gögn eru til að mynda rafrænt innsigluð með fullgildum tímastimpli sem staðfestir áreiðan- lega hvenær gögnin voru send og tryggir að ekki er hægt að eiga við innihald skjalanna, því að sé það gert rofnar innsiglið. Þetta getur skipt lögmenn miklu máli þar sem tímafrestir eru mjög mikilvægir og rík sönnunarbyrði er á lögmönnum hvað þá varðar. Auk þess hafa skjólstæðingar nú greiðara aðgengi að sínum gögnum en fyrr. Nú geta þeir fylgst með framvindu sinna mála og fá til- kynningar þegar nýir atburðir eiga sér stað í máli sem þeir hafa aðgang að. Lögmenn ættu því að geta veitt viðskiptavinum sínum enn betri þjónustu með Justikal. „Reynsla LOGOS af notkun lausnar Justikal hefur verið mjög jákvæð og er það mat okkar að hún geti sparað tíma og auðveldað störf lögmanna,“ segir Heiðar Ásberg Atlason, eigandi og hæstaréttarlög- maður hjá LOGOS. „Við gætum ekki verið ánægðari með fjárfesti þar sem Eyrir er ESG- sjóður og leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð og að stuðla að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna,“ segir Margrét Anna. „Við deilum nú þegar mörgum sterkum gildum þar sem markmið Justikal er einmitt að gera málsmeðferð fyrir dómstólum hraðari, gagnsærri og öruggari. Stofnendur Justikal telja að þeir geti lækkað málskostnað aðila og í kjölfarið gert dómstóla aðgengilegri fyrir tekjulægri aðila. Sparnaður fyrir samfélagið með notkun lausnar Justikal getur verið gríðarlegur, eða um það bil 3,3 millj- arðar á ári fyrir íslenskt samfélag. Justikal hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði sem hefur gert félaginu kleift að ná þeim stað sem lausnin er á í dag. Á næstu mánuðum mun félagið ráða fólk í hugbúnaðar- þróun, sölu- og markaðsstarf. Undir- búningur fyrir þennan tímapunkt hefur átt sér góðan aðdraganda og áætlanir gera ráð fyrir hröðum vexti á alþjóðavettvangi. „Eyrir Vöxtur fjárfestir í fyrir- tækjum sem eru tilbúin til að taka hröð vaxtarskref á alþjóðamörkuð- um. Justikal fellur vel að áherslum sjóðsins og við hlökkum til að starfa með þessu frábæra teymi og erum spennt fyrir að taka þátt í að koma lausn Justikal inn á alþjóðamarkað,“ segir Stefanía Guðrún Halldórsdótt- ir, framkvæmdastjóri Eyris Vaxtar. Lausnin er aðgengileg á justi- kal. com og er nýr valkostur og stendur aðilum nú til boða til að senda gögn rafrænt til dómstól- anna. Aðilar sem stofna mál í Justi- kal greiða 6.900 krónur á mánuði á meðan málið er í vinnslu. Á sama tíma geta aðrir aðilar máls, til dæmis lögmaður gagnaðila, skjól- stæðingar, aðstoðarfólk og starfs- fólk dómstólanna, notað lausnina endurgjaldslaust. Aðilar geta prófað lausnina gjald- frjálst til áramóta. n Hundraða milljóna fjárfesting Eyris í Justikal Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyris Vaxtar, Ólafur Einarsson, tæknistjóri Justikal, og Margrét Anna Einarsdóttir, forstjóri Justikal, við undirritun samningsins. MYND/MARÍA KJARTANSDÓTTIR magdalena@frettabladid.is Nýsköpunarhugbúnaðarfyrirtækið Víkonnekt vinnur með sprotafyrir- tækjum til að hjálpa þeim að þróa sínar eigin vörur frá grunni og aðstoða þau við að ráða réttu starfs- mennina til að styrkja vöxt fyrir- tækjanna. Fyrirtækið var stofnað í fyrra og er nú með þrettán manns í vinnu. Safa Jemai, stofnandi Víkonnekt, segir að það skipti sköpum fyrir nýsköp- unarfyrirtæki að finna rétta teymið sem hafi burði til þess að sinna verk- efnum af kostgæfni. „Það er lykilatriði að finna rétta teymið. Það sem við hjá Víkonnekt gerum er að við hjálpum hugbún- aðarfyrirtækjum að finna forritara og spörum þeim bæði tíma og pen- inga,“ segir Safa og bætir við að fyrir- tækið leggi áherslu á fjölbreytni. Safa hefur búið á Íslandi í um fjögur ár en hún lærði forritun úti í Túnis en kom hingað til lands til að læra hugbúnaðarverkfræði í Háskóla Íslands. Hún segir að það hafi verið stór tímamót í lífi hennar þegar hún tók þá ákvörðun að starfa sjálfstætt fremur en að starfa sem forritari fyrir aðra. „Eftir námið mitt fór ég að vinna sem forritari hjá HR og fleiri fyrir- tækjum. Ástæðan fyrir að ég stofn- aði mitt eigið fyrirtæki er að ég vil sýna konum af erlendum uppruna að það er hægt að byrja frá grunni og láta drauma sína rætast.“ Hún segir að þó að fyrirtækinu gangi vel hafi hún fundið fyrir ýmsum hindrunum þegar hún hóf ferlið. „Það var ýmislegt sem var frekar krefjandi. Ég var til dæmis ekki með neitt tengslanet að ráði en ég var aftur á móti virkilega dugleg að tala við fólk og kynnast. Þess vegna gekk þetta allt saman upp.“ Safa segir að margir spennandi hlutir séu í bígerð hjá Víkonnekt. Fyrirtækið vinni nú að því að vaxa bæði hér innanlands og fyrir utan landsteinana. „Við erum um þessar mundir að vinna með mjög mörgum íslenskum fyrirtækjum en við erum líka að vinna með fyrirtækjum í Evrópu og við ætlum að halda áfram í því en á sama tíma líka að stækka og finna fleiri viðskiptavini í Bandaríkjun- um. Við viljum líka leggja áherslu á fjölbreytni og hjálpa konum að vaxa í starfi.“ Safa bætir við að það jákvæða við Ísland sé hversu fjölbreytt nýsköp- unarflóran er. „Það er virkilega gaman að starfa í nýsköpun á Íslandi og því fylgja mörg tækifæri. Við hjá Víkonnekt leggjum mikið upp úr því að veita þessum fyrirtækjum faglega ráðgjöf og hvetjum þau til að hugsa til lengri tíma frekar en aðeins til skamms tíma.“ n Segir að allir geti byrjað frá grunni Safa Jemai flutti hingað frá Túnis fyrir fjórum árum síðan en gerir það nú gott í nýsköpun hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Við hlökkum til að starfa með þessu frábæra teymi og erum spennt fyrir að taka þátt í að koma lausn Justikal inn á alþjóða- markað. Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyris Vaxtar Það er virkilega gaman að starfa í nýsköpun á Íslandi og því fylgja mörg tækifæri. magdalena@frettabladid.is Framboð íbúða til sölu hefur aukist hratt að undanförnu en á höfuð- borgarsvæðinu eru nú 1.013 íbúðir til sölu en í lok júlí voru þær aðeins 700 og því hefur framboðið aukist um 45 prósent á einum mánuði. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum tölum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) sem birtar voru í gær. Bergþóra Baldursdóttir, hagfræð- ingur hjá Greiningu Íslandsbanka, segir þessar tölur bera þess merki að íbúðamarkaðurinn sé farinn að kólna. „Það er komin aðeins meiri ró á markaðinn. Það er líklega ástæðan fyrir auknu framboði, sérstaklega miðað við vísitölu íbúðaverðs í júlí og nú gögn Hagstofunnar um mark- aðsverð íbúðarhúsnæðis,“ segir Bergþóra en bætir við að hafa þurfi í huga að framboðið sé ekki komið á sama stað og það var áður en íbúða- verðshækkanirnar byrjuðu. Hún segir jafnframt að tölurnar komi í sjálfu sér ekki á óvart. Þau hafi verið að búast við að markað- urinn færi að kólna á næstunni og tölurnar um aukið framboð rími við það. „Þetta eru aðallega eldri eignir í endursölu, það er að segja, það er ekki að koma mikið af nýjum eignum inn á markaðinn enn sem komið er.“ Í skýrslunni frá HMS kemur fram að aukið framboð sé ekki hægt að skýra með auknu framboði nýrra íbúða heldur sé líklegasta skýringin sú að hægt hafi á sölu vegna minnk- andi eftirspurnar. Bergþóra segir að það sé nokkuð ljóst að aðgerðir Seðlabankans hafi mikið að segja um kólnun á íbúða- markaði um þessar mundir. „Það er virkilega jákvætt að loksins séu þessar aðgerðir farnar að hafa áhrif. Við búumst við að fleiri nýjar íbúðir fari að detta inn á markaðinn þegar líða tekur á árið en fjöldi þeirra mun aukast á næsta ári.“ Samkvæmt talningu Samtaka iðnaðarins og HMS eru rúmlega 3.000 íbúðir væntanlegar á markað á næsta ári sem að sögn Bergþóru ætti að vera nóg til að koma til móts við eftirspurnina. „Við búumst við að íbúðamark- aður sé að kólna nokkuð hratt og með hærri vöxtum sem og auknu framboði af nýjum eignum muni ákveðið jafnvægi komast á markað- inn, vonandi fyrr en í allra síðasta lagi um mitt næsta ár.“ n Merki um kólnun á fasteignamarkaði Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur í Greiningu Íslandsbanka 10 Fréttir 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.