Fréttablaðið - 31.08.2022, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 31.08.2022, Blaðsíða 15
KYNN INGARBLAÐ ALLT MIÐVIKUDAGUR 31. ágúst 2022 Unnur Sara gleður gesti og gangandi í Hafnarfirði með franskri tónlist á föstudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI jme@frettabladid.is Söngkonan Unnur Sara Eldjárn, ásamt Bisous bandinu, ætlar að gleðja gesti og gangandi með stuttum fríum tónleikum á fjórum vel völdum stöðum í Hafnarfirði á föstudaginn. Unnur Sara hefur lengi haft sterkar tilfinningar til Frakklands og gefið út tvær breiðskífur með tónlist sinni, Unnur Sara syngur Gainsbourg, árið 2018, og Bisous, árið 2020. Þar má heyra vinsæl lög frá sixtís-tímabilinu í Frakk- landi frá flytjendum og höfundum á borð við Serge Gainsbourg, Françoise Hardy og France Gall. Býr í Frakklandi Unnur Sara er nú búsett í Suður- Frakklandi og vinnur í nýju sóló- efni undir listamannsnafninu Sara Océan. Bisous-bandið skipa að þessu sinni þeir Daníel Helgason á gítar, Sigmar Þór Matthíasson á kontrabassa og Þorvaldur Kári Ing- veldarson á trommur. Verkefnið er styrkt af Hafnarfjarðarbæ og starfslaunum listamanna. Tónleikastaðirnir nLíkamsræktarstöðin Kvenna- styrkur, Strandgötu 33, kl. 11.30. n Brikk, Norðurbakka 1b, kl. 13.30. n Bókasafn Hafnarfjarðar, Strand- götu 1, kl. 15.30. n Sundhöll Hafnarfjarðar, Herjólfs- götu 10b, kl. 16.30. n Frönsk veisla með Unni Söru Vilborg Arna sleit krossband fyrir tveimur árum og við tók ströng endurhæfing. Hún byrjaði að taka inn kollagenið frá Feel Iceland samhliða endurhæfingunni og náði sér að fullu. Hennar eina eftirsjá er að hafa ekki byrjað að nota það fyrr. MYNDIR/AÐSENDAR Kollagenið fór með á toppinn Vilborg Arna Gissurardóttir, fjallagarpur og pólfari, hefur notað kollagenið frá Feel Iceland með góðum árangri undanfarin tvö ár. Fyrir tveimur árum sleit hún krossband og byrjaði í kjölfarið að taka inn kollagen samhliða endurhæfingu eftir misheppnaða aðgerð. 2 ALOE VERA MELTING & BÓLGUR 85%VIRKTCURCUMIN www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.