Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.08.2022, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 31.08.2022, Qupperneq 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Ég var með mjög flókin hnémeiðsli. Ég fór í aðgerð sem gekk ekki sem skyldi, fékk taugaskaða í kjölfarið og þurfti að vera mjög lengi á hækjum. Ég þurfti meira að segja að fara í gönguþjálfun því ég missti allt vöðvaminni. Allt sem ég kunni í íþróttum þurfti ég að læra upp á nýtt. Líkaminn mundi ekki hvernig átti að labba eða framkvæma allt sem ég geri í mínum íþróttum sem tengist fótunum. Ég þurfti að fara í mjög stranga sjúkraþjálfun og aðra aðgerð. Ég byrjaði að taka kollagen samhliða þessu, sem hluta af minni endurhæfingu,“ útskýrir Vilborg Arna. „Þegar ég lenti í þessum meiðslum og þurfti að fara í endur- hæfingu fór ég að kynna mér mjög vel hvað fólk í minni aðstöðu hefði verið að gera og hvernig. Það var endurtekið stef í öllu því sem ég las að kollagen hjálpar við endurhæf- ingu á hnjám, liðum og bara öllum líkamanum. Þannig að ég fór beinustu leið og keypti mér dollu af kollageni frá Feel Iceland og tók með mér til Slóveníu þar sem ég bý. Mér finnst kollagenið styrkja mig og styðja mig í því sem ég er að gera í sjúkraþjálfun og æfingum.“ Vilborg Arna bætir við að hún hafi orðið vör við auka bónus við inntöku kollagensins sem hún hafði ekki sérstaklega reiknað með. „Ég var að koma úr leiðangri núna frá háfjöllunum í Pakistan. Þetta er í fyrsta sinn núna sem ég kem heim úr leiðangri og er ekki öll skrölluð í húðinni. Oft þegar ég kem heim úr leiðangri þá tekur það smá tíma fyrir húðina að jafna sig. Ég finn alveg á húðinni að ég er búin að vera úti. Þetta var þess vegna alveg kærkominn bónus núna, að vera komin heim og vera bara góð í húðinni.“ Partur af minni rútínu Vilborg Arna segir að oft hafi hún tekið inn einhver bætiefni í törnum eins og þegar hún er að undirbúa sig fyrir eitthvað sérstakt. „En kollagenið er bara orðið partur af minni rútínu og ég ætla að halda áfram að taka það inn. Ég hef bæði tekið inn töflurnar og duftið. Ég byrjaði á að taka inn töflurnar og tók þær þá bara með vítamíninu mínu en svo kynntist ég duftinu og ég tek það núna. Alla morgna í leiðangrinum sem ég var að koma úr núna byrjaði ég á að drekka kaffi með duftinu út í,“ segir Vilborg Arna og bætir við aðspurð að það hafi engin áhrif á bragðið af kaffinu. „Það var mjög gott fyrir mig að hafa eitthvað til að setja út í kaffið. Kollagenið fór með í bakpok- anum upp á hæstu tinda. Ég er nefnilega með mjólkuróþol og drekk alltaf kaffi með vegan- mjólk. En það er ekki hægt að fá hana alls staðar uppi á fjöllum í Pakistan svo það var þess vegna eitthvað sálrænt fyrir mig að hafa eitthvað í staðinn til að setja út í kaffið mitt,“ segir hún hlær. „Við vorum líka með þurr- djúsa með okkur í ferðinni og ég blandaði stundum kollageninu út í þá. Það skemmir bragðið ekkert.“ Kollagenið fór aldrei úr bakpokanum Vilborg Arna útskýrir að í fjallaferð- um þurfi oft að létta farangurinn því hærra sem komið er. En kolla- genið fór aldrei úr bakpokanum. „Ég drakk það ekki bara í grunn- búðunum. Því hærra sem maður fer á fjöllin, því meira reynir maður alltaf að spara við sig vigt, en þetta fór alltaf ofan í bakpokann minn. Kollagenið er það mikilvægt að ég tók það með mér á hæstu tindana,“ segir hún. Vilborg Arna segist alltaf taka kollagen með sér heim til Slóveníu eftir að hafa verið á Íslandi. „Ég er oft á Íslandi svo ég hef bara keypt kollagenið þar. Svo er ég líka svo heppin að fá stundum gesti sem koma með það handa mér. Ég mæli hiklaust með því að taka inn kollagen. Ég byrjaði að nota það eftir meiðsli, en nú er mjög mikið af aktívu fólki sem æfir margar íþróttir. Til dæmis í útivistargeir- anum eins og ég. Það er kannski að taka alls kyns áskoranir eins og Landvættina, þríþraut og alls kyns fjallgönguáskoranir. Ég held það sé ekki síður mikilvægt fyrir það fólk að taka inn kollagen,“ segir hún. „Fyrir okkur sem erum kannski komin af léttasta skeiði og höfum verið að vinna á líkamanum okkar til lengri tíma, að nota það sem stuðning. Ég held það sé gott fyrir okkur að nota kollagen til að fyrirbyggja meiðsli og hjálpa líkamanum að takast á við erfiðið sem hann stendur frammi fyrir. Ef ég myndi breyta einhverju, þá væri það að byrja fyrr að taka inn kollagen.“ n Feel Iceland vörurnar fást meðal annars í Lyfju, Heilsuhús- inu, Lyfjum og heilsu, Hagkaupi, Fjarðarkaupum, Apótekaranum, Fríhöfninni, Jurtaapótekinu og Nettó. Nánari upplýsingar á feeliceland.com Vilborg Arna hefur nú náð bata og er nýkomin heim úr ferð um há- fjöllin í Pakistan. MYND/AÐSEND Kollagenið er það mikilvægt að ég tók það með mér á hæstu tindana. Vilborg Arna Gissurardóttir 2 kynningarblað A L LT 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.