Fréttablaðið - 31.08.2022, Side 17

Fréttablaðið - 31.08.2022, Side 17
Þarmaflóran spilar lykil- hlutverk í lífi okkar og heilsu og hefur mikið að segja um heilsufar frá fæðingu til efri ára, jafnt líkamlega sem andlega. Í meltingarveginum lifa trillj- ónir baktería og eru flestar þeirra staðsettar í ristlinum. Þessar bakteríur köllum við þarmaflóru en þær sinna ýmsum afar mikil- vægum hlutverkum í líkamanum. „Öflug þarmaflóra er forsenda heilbrigðrar starfsemi meltingar- færanna ásamt því að hafa góð áhrif á ónæmis-, tauga- og horm- ónakerfið. Þarmaflóran ver okkur jafnframt gegn óæskilegum örverum og sýklum og hefur margs konar jákvæð áhrif á heilsu okkar almennt. Til þess að við- halda öflugri flóru er mikilvægt að tileinka sér hollt og gott mataræði ásamt því að innbyrða reglulega mjólkursýrugerla í formi bæti- efna,“ segir Þorbjörg Hafsteins- dóttir næringarþerapisti. Vöndum valið Mjólkursýrugerlar eru hluti af örlífverum þarmanna en þeir eru eins ólíkir og þeir eru margir og með mismunandi virkni. Mjólkur- sýrugerla má finna í fæðu og melt- ingarvegi mannsins en þeir hafa heilsueflandi áhrif á líkamann með því að efla meltingu og frásog næringarefna. Þegar velja á mjólk- ursýrugerla til inntöku er ekki úr vegi að skoða magn gerla sem hvert hylki inniheldur sem og virkni og eru því gerlarnir frá Probi AB kjörin viðbót en þeir innihalda 10 milljarða lifandi mjólkursýrugerla í hverju hylki. Einkaleyfisvarðir mjólkursýrugerlar Sænska fyrirtækið Probi AB var stofnað fyrir 30 árum í kringum merkilega uppgötv- un á mjólkursýrugerlinum Lactobacillus plantarum 299v. Gerillinn sýndi sig vera sérlega harðger og hefur eiginleika til að fjölga sér í meltingar- vegi og styrkja þar með varnir okkar og draga úr óþægindum tengdum maga og meltingu. Probi AB er í dag leiðandi á heimsvísu í rannsóknum á mjólkursýrugerlum og með alheimseinkaleyfi á LP299V gerlinum, ásamt því að vera þeir einu sem innihalda gerilinn í vörum sínum á Íslandi. Probi-vörurnar eru fjórar talsins og eiga þær allar sameiginlegt að hafa jákvæð áhrif á þarmaflóruna og koma í veg fyrir meltingaróþægindi. Því má segja að allir í fjöl- skyldunni geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Probi mjólkursýrugerlar Probi Family inniheldur sérvalda samsetningu af tveimur einkaleyfisvörðum gerlum, Lactobacillus plant- arum HEAL9 og Lactobacillus paracasei 8799:2 ásamt fólasíni, D-vítamíni og B12-vítamíni sem styður við eðlilega virkni ónæmiskerfisins. Probi Family eru bragðgóðar tuggutöflur sem henta allri fjölskyldunni frá þriggja ára aldri. Probi Mage inniheldur gerilinn Lactobacillus plantarum 299V sem hefur eiginleika til að fjölga sér í meltingarvegi og hefur þar af leiðandi það að markmiði að draga úr óþægindum tengdum maga og meltingu. Probi Mage hentar börnum eldri en 6 mánaða en hægt er að opna hylkin og bæta meðal annars út á grautinn. Járnblandan frá Probi inniheld- ur jafnframt gerilinn Lactobacillus plantarum 299v ásamt járni, fólín- sýru og C-vítamíni sem stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfis- ins og eykur upptöku járns. Probi járn hefur það að markmiði að auka upptöku járns og er milt fyrir meltingarkerfið, formúlan hentar barnshafandi konum. Byltingarkennd nýjung frá Probi fyrir þau allra yngstu Probi Baby er glæný vara frá Probi en það eru sérhannaðir mjólkur- sýrugerlar fyrir þarfir barna. Varan inniheldur mjólkursýru- gerilinn Lactobacillus Rhamnosus 271 sem hefur það að markmiði að koma í veg fyrir meltingaró- þægindi hjá börnum. Tilteknir góðgerlar hafa, umfram aðra, mótstöðu gegn bakteríudrepandi áhrifum sýklalyfja og komast því lifandi niður meltingarveginn án þess að lyfin hafi mikil áhrif á þá. Probi Baby mjólkursýrugerlarnir eru á duftformi sem hentar afar vel í grautinn eða drykkinn, auk þess að vera afar hentugir á ferðinni. n Öflugir mjólkursýrugerlar fyrir alla fjölskylduna Þorbjörg Haf- steinsdóttir mælir með Probi Mage mjólkursýru- gerlum fyrir fólk á öllum aldri. MYND/AÐSEND ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 31. ágúst 2022

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.