Fréttablaðið - 31.08.2022, Síða 28
n 1. júlí 1961: Díana Frances
Spencer fædd. Foreldrar hennar
skilja þegar hún er sex ára gömul.
n 24. febrúar 1981: Tilkynnt um
trúlofun Karls prins og lafði Díönu
Spencer.
n 29. júlí 1981: Um það bil 750
milljónir sjónvarpsáhorfenda
um víða veröld fylgjast með
konunglegu brúðkaupi í beinni
útsendingu.
n 21. júní 1982:
Vilhjálmur prins fæddur.
n 15. september 1984:
Harry prins fæddur.
n Apríl 1987: Díana heilsar
AIDS-sjúklingi með handa-
bandi. Augnablik sem markar
þáttaskil í baráttunni gegn
óttanum við sjúkdóminn.
n Desember
1992: Tilkynnt
um skilnað
Karls og Díönu
að borði og
sæng.
n 1994-1995: Karl og
Díana viðurkenna
bæði opinberlega að
hafa staðið í fram-
hjáhaldi. Drottn-
ingin hvetur hjónin
til að skilja eftir að
Díana gefur í skyn að
Karl sé ekki heppilegt
konungsefni.
n Ágúst 1996: Skilnaðurinn gengur í gegn og Díana
missir titilinn „hennar konunglega hátign“.
n Janúar 1997: Díana er í
Angóla þegar hún hvetur til
herferðar gegn notkun jarð-
sprengja.
n Júní 1997: Uppboð á
kjólum Díönu skilar 4,5
milljónum dollara til AIDS-
og krabbameinsrannsókna.
n 31. ágúst 1997: Díana, unnusti
hennar Dodi al-Fayed og bílstjór-
inn Henri Paul deyja í bílslysi í
París.
n 4. september 1997: Á meðan
blómvendir flæða umhverfis
heimili Díönu í London lætur
drottningin undan þrýstingi al-
mennings og tekur þátt í sorginni.
n 6. september 1997: Þúsundir
streyma út á götu þegar útför Dí-
önu fer fram í Westminster Abbey.
Hún er síðan borin til grafar á eyju
í stöðuvatni á fornri landareign
Spencer-ættarinnar.
Lafði Díana Spencer var
aðeins 36 ára gömul þegar
hún lést í bílslysi í París á
þessum degi fyrir 25 árum.
Andlátsfregnin fór sem eldur
í sinu um heimsbyggðina
sem var meira eða minna öll
í áfalli og margir muna enn
hvar þeir voru þegar þeir
fréttu af dauða prinsessu
fólksins á síðasta degi ágúst-
mánaðar árið 1997.
toti@frettabladid.is
„Hún skilur gífurlega arfleifð eftir
sig og þótt hún hafi nú ekki verið
lengi í konungsfjölskyldunni þá
hafði hún alveg rosalega mikil
áhrif og leiðinlegt að segja það, en
það er kannski í dauðanum sem
áhrif hennar verða enn meiri,“
sagði Guðný Ósk Laxdal, sem er
sérfróð um konungsfjölskylduna,
við Fréttablaðið þegar Díana hefði
orðið sextug í fyrra. n
Aldarfjórðungur frá dauða Díönu
odduraevar@frettabladid.is
Jóhann Leplat
stjórnandi
Kvikmynda-
áhugamanna á
Facebook
„Ég lét loksins
verða af því að
horfa á Yellow-
stone-þátta-
raðirnar sem skarta Kevin Costner,
einum af mínum uppáhalds
leikurum á 10. áratugnum,“ segir
Jóhann um Costner sem í Yellow-
stone leikur John Dutton, höfuð
Dutton-fjölskyldunnar sem á eina
stærstu bújörð í Bandaríkjunum í
Montana.
Þættirnir fjalla um varnar-
baráttu fjölskyldunnar gegn
landtökutilraunum stjórnmála-
manna og stórra hagsmunaaðila
og Jóhann segir ef til vill mega lýsa
Yellowstone sem dimmari útgáfu
af Dallas.
„Nema þetta er betri fram-
leiðsla, persónusköpunin flóknari
og handritasmíðin klókari. Yellow-
stone er ákveðin sápa en fór þó
sem slík vel fram úr væntingum
mínum og kom sífellt á óvart með
skapandi söguþræði sem ég gat
einfaldlega ekki fengið nóg af.“
Vinsældir Yellowstone gátu af
sér sjálfstæða, styttri seríu sem,
eins og nafnið 1883 ber með sér,
rekur forsögu Yellowstone þegar
fyrsta kynslóð fjölskyldunnar
nemur land í hinu villta vestri
Bandaríkjanna.
„Það má segja að 1883 sé vestri
í rómantískum anda Once upon
a Time in the West. Vandaðir
þættir og mögnuð saga sem eins
og Yellowstone fór langt fram úr
væntingum.“
Saul er bestur
Þá segist Jóhann ekki geta mælt
nógu mikið með Better Call Saul.
„Sem eru að mínu mati besta
sjónvarpsefni fyrr og síðar. Ekkert
hefur að mínu mati verið jafn vel
skrifað og sagan um Jimmy McGill
eða Saul Goodman, lögfræðinginn
sem kom fyrst fram í Breaking Bad.
Ég elska Breaking Bad en þarna
finnst mér framleiðendurnir hafa
náð að fínpússa allt sem þeir
gerðu best þar til að skapa eitt
besta sjónvarpsefni á gullöld sjón-
varpsefnis.
Ég sparaði síðustu seríu þar til
allir þættirnir væru komnir en
hlakka mikið til að klára þetta
stórkostlega meistaraverk ,“ segir
Jóhann og bætir við að á sjón-
varps gullöld síðustu ára tróni Bet-
ter Call Saul og fyrstu fjórar seríur
Game of Thrones á toppnum. n
Dekkri og betri
sápa en Dallas
n Á skjánum
Kevin Costner fer fyrir Dutton-fjöl-
skyldunni í Yellowstone-þáttunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Díana
1961 —1997
Bob Odenkirk leikur Saul í þáttunum
sem Jóhann telur þá bestu sem
sögur fara af frá upphafi vega.
24 Lífið 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 31. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR