Mosfellingur - 28.04.2022, Qupperneq 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ4
sunnudagur 1. maí
Guðsþjónusta kl. 11 í Lágafellskirkju. Sr.
Sigurður Rúnar Ragnarsson þjónar.
vORHÁtÍÐ BaRnastaRFsins 8. maí
Lágafellskirkja býður til vorhátíðar
sunnudaginn 8. maí kl. 13. Hátíðin hefst
með sunnudagaskóla inni í kirkju en
að honum loknum verða í boði léttar
veitingar, fjör og hoppukastalar úti í
kirkjuportinu! Ásamt því að hjólalækn-
irinn Dr. BÆK kíkir í heimsókn og fer yfir
hjólin fyrir sumarið. Hvetjum gesti að
fjölmenna til kirkju hjólandi, labbandi
eða á fjórum hjólum.
Verið öll velkomin
- hlökkum til!
Foreldramorgnar - fimmtudaga kl. 10-
12 í safnaðarheimilinu, Þverholti 3.
28. apríl: Æfingar eftir meðgöngu.
Gestur: Kara Elvarsdóttir sjúkraþjálfari.
ATH: Gott að mæta með dýnu.
5. maí: Svefnvenjur barna.
Gestur: Ingibjörg Leifsdóttir
hjúkrunarfræðingur
12. maí: Opið hús
sumarnámskeið lágafellssóknar
Ævintýraleg námskeið fyrir 6-9 ára
krakka í júní og ágúst. Lofum stuði
og ævintýrum í sumar!
Nánari upplýsingar og skráning
á heimasíðu.
Ó María frumsýnd
á föstudaginn
Sýningin Ó María verður frumsýnd
hjá Leikfélagi Mosfellssveitar
föstudaginn 29. apríl. Sýningin er
til heiðurs Maríu Guðmundsdóttur
sem var félagi í LM til margra ára og
landsþekkt fyrir leik sinn í ýmsum
sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.
Ó María er kvöldskemmtun í
Bæjarleikhúsinu
í Mosfellsbæ
þar sem lifandi
tónlist, söngur,
grín og gleði
ráða för. Leiknir
eru nokkrir af
ógleymanlegu
leikþáttum Maríu
og skemmtileg kaffihúsastemming
ríkir í salnum þar sem leikhúsgestir
sitja til borðs á sviðinu. Þetta er
frábær skemmtun í anda okkar
yndislegu Maríu sem hentar öllum
sem vilja hlæja, hlusta á ljúfa tóna
og eiga góða kvöldstund.
Frumsýning 29. apríl - UPPSELT
2. sýning laugardaginn 30. apríl kl. 20
3. sýning föstudaginn 6. maí kl. 20
4. sýning laugardaginn 7. maí kl. 20
5. sýning föstudaginn 13. maí kl. 20
Miðaverð: 3.500 krónur. Miðasala fer
fram á tix.is og í síma 566-7788
Bók um Jagúar
Laxness komin út
Út er komin bókin Jagúar skálds-
ins þar sem Óskar Magnússon
segir skemmtisögur af Jagúarnum
á Gljúfrasteini og eiganda hans,
Halldóri Laxness, en hann kynntist
báðum og hlutaðist nokkuð til um
samferð þeirra. „Halldór lagði mikið
upp úr því að vera á flottum bílum
og klæðast vönduðum fatnaði.
Fegurðarskyn hans var næmt og
hann var í raun með bíladellu,“
segir höfundur bókarinnar. Nóbels-
skáldið Halldór keypti Jagúar 340
Saloon beint úr kassanum árið 1968
og vakti hann sannarlega athygli,
enda lítið um að fólk ætti þessa
tegund af Jagúar á Íslandi á þeim
tíma. Í dag er bíllinn hluti af safninu
á Gljúfrasteini í Mosfellsdal. 120 ár
eru nú liðin frá fæðingu Haldórs
Laxness.
LeikféLag MosfeLLssveitar kynnir
KvöldsKemmtun til heiðurs maríu Guðmundsdóttur
sýnt í BæjarleiKhúsinu
miðasala á tix.is oG í síma 566-7788
FrumsýninG 29.apríl Kl 19:30
önnur sýninG 30. apríl Kl 20
Þriðja sýninG 6. apríl Kl 20
Fjórða sýninG 7. apríl Kl 20
Fimmta sýninG 13. apríl Kl 20
Ó aríaM Menntastefna Mosfellsbæjar 2022-2030,
Heimurinn er okkar, var samþykkt af
fræðslunefnd Mosfellsbæjar á fundi nefnd-
arinnar þann 28. mars.
Að mótun stefnunnar kom stór hópur
nemenda, kennara, starfsmanna skóla,
foreldra og sérfræðinga og þakkaði nefndin
öllum hagaðilum fyrir þeirra þátt í vinn-
unni.
stefnan innleidd á næsta skólaári
Þann 7. október 2020 var samþykkt í
fræðslunefnd að hefja vinnu við endur-
skoðun á skólastefnu Mosfellsbæjar frá
árinu 2010. Ákveðið var að heiti stefnunnar
yrði menntastefna Mosfellsbæjar með gild-
istíma til 2030.
Stefnan verður kynnt og innleidd á næsta
skólaári en stoðir stefnunnar eru vöxtur,
fjölbreytni og samvinna. Fræðslunefnd
telur að stefnan styrki enn frekar öflugt og
framsækið skóla- og frístundastarf í Mos-
fellsbæ og muni styðja við farsæla innleið-
ingu þeirra markmiða sem að er stefnt.
Áskorun að tryggja menntun við hæfi
„Mosfellsbær getur verið stoltur af end-
urskoðaðri menntastefnu enda er Heimur-
inn okkar ef við stöndum rétt að málum.
Það er og verður alltaf áskorun að tryggja
öllum menntun við hæfi og að einstakling-
ar fái notið hæfileika sinna.
Með þéttu samtali og samvinnu tel ég
að fræðslunefnd hafi tekist að taka saman
á einn stað stefnumarkandi áherslur og
markmið sem eru til þess fallin að varða
okkur farsæla leið. Okkar verkefni er að
halda utan um fólkið okkar og styðja og
efla það í námi og grípa þegar þess þarf
með,“ segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri
Mosfellsbæjar.
leiðarljós menntastefnunnar
Leiðarljós menntastefnu Mosfellsbæjar
er að skóla- og frístundastarfið sé í fremstu
röð og þar fái allir notið sín.
Unnið er að velferð og vexti allra hagaðila
með jákvæðum samskiptum, valdeflingu,
sveigjanleika og upplýsingum um starfið.
Stoðir menntastefnunnar eru þrjár; vöxt-
ur, fjölbreytni og samvinna. Þær skarast og
eru nátengdar hver annarri.
Til að allir blómstri í skóla- og frístunda-
starfi þarf fjölbreytni og góða samvinnu
hagaðila.
Vöxtur
• Forsenda þess að börn geti lært
og dafnað er að þeim sé búið öruggt
umhverfi þar sem færni þeirra er aukin
á sem fjölbreyttastan hátt og sjálfsmynd
þeirra styrkt. Í skóla- og frístundastarfi
er því lögð áhersla á menntun, öryggi,
vellíðan, snemmtækan stuðning og
heilsueflingu.
Fjölbreytni
• Fjölbreytt, skapandi og sveigjanlegt
skóla- og frístundastarf mæti ólíkum
þörfum og styrkleikum barna og stuðli
að farsæld þeirra.
• Markmiðið er að auka sveigjanleika
starfsins og þar með efla trú barna á
eigin getu. Þannig verða þau betur í stakk
búin til að mæta mismunandi verkefnum
í námi, leik og starfi.
SamVinna
• Skýr sameiginleg sýn hagaðila,
heilindi, uppbyggileg og lausnamiðuð
umræða tryggir góða samvinnu. Þannig
verða til árangursrík verkefni í skóla- og
frístundastarfi þar sem börnin eru í
brennidepli.
Stoðir menntaSteFnu
moSFellSbæjar
Heimurinn er okkar • Leiðarljós að skóla- og frístundastarfið sé í fremstu röð
Menntastefna Mosfellsbæjar
til ársins 2030 samþykkt
MOSFELLINGUR
keMur næst út
12. Maí
mosfellingur@mosfellingur.is
Í síðustu viku mætti Dagbjört Brynjarsdóttir
kennari útikennslu í Varmárskóla daglega
á bæjarskrifstofu með hóp barna í 5. bekk.
Stjórnsýsla Mosfellsbæjar var kynnt, fjall-
að um hlutverk og verkefni bæjarstjórnar,
bæjarstjóra, fagnefnda og stjórnskipulag og
verkefni bæjarskrifstofu voru rædd.
Þá kynntu starfsmenn stjórnsýslunnar
stöðu vinnu við verkefnið Mosfellsbær
barnvænt sveitarfélag. Í því felst meðal
annars aukið samtal og samstarf við börn
um mótun og framkvæmd þjónustu bæjar-
ins til dæmis þannig að börn séu ávallt höfð
með í ráðum þegar ákvarðanir eru teknar
og að þátttaka þeirra sé merkingarbær en
ekki bara táknræn eins og hefðbundið er.
Fræðast um sögu Mosfellsbæjar
„Í útikennslunni í vetur erum við búin að
vera fræðast um sögu Mosfellssveitar frá ís-
öld og erum komin fram til ársins 1970 eða
þar um bil,“ segir Dagbjört Brynjarsdóttir
kennari í Varmárskóla.
„Næst í kennsluáætluninni var að fræðast
um stjórnsýslu Mosfellsbæjar. Heyra af því
hvernig bænum er stjórnað og hver ræður
hverju. Hver ákveður hvað má byggja og hvar
og hvernig kemur heita vatnið til okkar?
Þá vildum við fá að vita hvað er gert á
bæjarskrifstofunni og sjá þannig hvernig
sveitarstjórnarkosningarnar sem eru fram
undan tengjast starfsemi bæjarins okkar.
Heimsókn okkar á bæjarskrifstofuna var
mjög fróðleg og það sköpuðust góðar um-
ræður hjá hópnum,“ segir Dagbjört
Heimsókn á bæjarskrifstofurnar • Staðan tekin á verkefninu Barnvænt samfélag
fimmtu bekkingar kynna sér
stjórnsýsluna í Mosfellsbæ
í fundarsal bæjarstjórnar í Kjarna