Mosfellingur - 28.04.2022, Page 8

Mosfellingur - 28.04.2022, Page 8
Vorkvöld í Álafosskvos fjáröflunartónleikar Haustið 2016 festi skátafélagið kaup á Álafossvegi 18. Með aðstoð góðra velunnara og sjálfboðaliða var húsið standsett undir starfið og salur innréttaður í austurenda hússins. Hægt og rólega hefur einnig lóðinni verið breytt þannig að hún nýtist starfinu betur og eitt og annað verið lagað og fært í betra horf. Það hefur lengið verið auðséð að eldhúsið í húsinu hentar alls ekki fyrir starfið og að það þurfi að ráðast í breytingar á því. Því var ákveðið að prufa nýja fjáröflunar- leið; Fjáröflunar- tónleika. Og ekki bara einir tónleikar heldur fernir styrktartónleikar. Tónleikarnir fara fram í salnum í skátaheimilinu. Allir tónleikarnir eru á fimmtudags- kvöldum kl. 20:00. Hver miði kostar kr. 3.900 og rennur miðaverð óskert í nýtt eldhús. Tónleikarnir eru eftirfarandi: 12. maí – Sölvi Kolbeins og Birgir Steinn með Jazzkvöld, 19. maí – Bræðrabandið, 26. maí – Svavar Knútur og að lokum 2. júní – Mosfellska hljómsveitin Piparkorn. Miðasala verður við dyrnar en þeir sem vilja tryggja sér miða geta einnig gert það kvöldið fyrir tónleika í skátaheimilinu kl. 20:00-21:30. Jónas Sigurðsson formaður s. 666 1040 jonass@islandia.is Jóhanna B. Magnúsdóttir varaformaður s. 899 0378 hanna@smart.is Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri s. 863 3359 margretjako@gmail.com Kristbjörg Steingrímsdóttir ritari s. 898 3947 krist2910@gmail.com Þorsteinn Birgisson meðstjórnandi s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com Guðrún K. Hafsteinsdóttir 1. varamaður s. 892 9112 gunnasjana@simnet.is Áshildur Þorsteinsdóttir 2. varamaður s. 896 7518 asath52@gmail.com StJÓrn FaMoS Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu Skrifstofa félagsstarfsins er opin alla virka daga kl. 13–16. Sími félags- starfsins er 586-8014. Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, s: 698-0090. Skrifstofa FaMos á Eirhömrum er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16. FélaG aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni famos@famos.is www.famos.is - Fréttir úr bæjarlífinu8 GaMan SaMan í síðasta sinn í vetur 12. maí kl. 13:30 í borðsal Eirhamra Helgi R. Einarson gleðigjafi mætir og tekur lagið með okkur. Endilega komið og verið með okkur og syngjum saman. Kaffi selt í matsal eftir skemmtun á 500 krónur. Heilsudagar Hamra Fimmtudaginn 28. apríl 2022 Í salnum Eirhömrum kl. 15-17. Í fyrsta sinn höldum við Heilsudaga þar sem fyrirtæki munu koma og kynna ýmsar lausnir og hjálpartæki. Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, iðju- þjálfar og sjúkraþjálfarar heimilisins kynna starf sitt. Boðið upp á sykursýkismælingar, blóðþrýstingsmælingar og ráðgjöf. Kaffihús verður á staðnum og seldar ljúffengar vöfflur og kaffi. Allir velkomnir! Sumarfrí 2022 í félagsstarfinu Lítið verður lokað í sumar sem er hið besta mál, en það getur verið að einn og einn dag verði lokað, endilega fylgist því með:) Eins gæti opnunartíminn styst aðeins vegna sumarfría starfsmanna. Vonum að þið sýnið þessu skilning. Kærleikskveðjur. Pútt í sumar Minnum á að Golfklúbbur Mosfells- bæjar býður upp á púttaðstöðu á því svæði sem hann hefur til umráða, þrisvar í viku á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, kl. 10-12. Mosfellsbær og Golfklúbbur Mosfellsbæjar veita félagsmönnum FaMos aðstöðu sína án endurgjalds. GanGa, GanGa, GanGa Gönguhópinn er duglegur að ganga og er mæting alla miðvikudaga kl. 13:00 við Fellið, sem er yfirbyggða nýja knatthúsið við íþróttahúsið Varmá. Verið velkomin. Endilega drífið ykkur með og takið einhvern góðan vin með. Saman höldum við áfram að byggja upp ennþá betra heilsueflandi samfélag. Einnig minnum við á hópinn okkar á facebook, Gönguhópur Mosó 60+ https://www.facebook.com/ groups/627690624707196 Bestu kveðjur, Félagsstarfið og íþróttanefnd FaMos Hátíðarhöld á Gljúfrasteini • Halldór fæddist 23. apríl 1902 120 ár liðin frá fæðingu laxnEss ragnar kjartansson og óskar magnússon bjarki bjarnason og jóhannes kristjánsson sungið eftir gönguferð systurnar guðný og sigríður halldórsdætur ásamt guðrúnu pétursdóttur guðný dóra, katrín jakobs og auður jóns dagskrá í stofunni

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.