Mosfellingur - 28.04.2022, Síða 32
- Mosfellingurinn Einar Sigurjónsson32
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Þríþraut er íþrótt sem reynir sér-
staklega mikið á þol keppenda
en keppt er í sundi, hjólreiðum
og kapphlaupi. Þekktasta langþríþraut-
arkeppnin er Járnkarlinn sem hófst á
Hawaii árið 1977.
Einar Sigurjónsson sjúkraþjálfari hef-
ur tekið þátt í fimm járnkörlum víða um
heim og er hvergi hættur. Hann segir að
hver keppni gefi sér góðar minningar og
hann vonast til að geta keppt svo lengi
sem heilsan leyfir.
Einar er fæddur í Reykjavík 12. október
1980. Foreldrar hans eru Helga Einarsdóttir
hjúkrunarfræðingur og Sigurjón Eiríksson
rafvirki. Einar á tvö systkini, Arnar f. 1981
og Kristrúnu f. 1985.
Fóru á skíði í Kerlingarfjöll
„Ég er alinn upp í Mosfellsbæ og átti
heima fyrstu árin mín í Grundartanga en
svo fluttum við fjölskyldan í Leirutangann,
í húsið sem foreldrar mínir byggðu. Það var
barnmargt í götunni og ég var svo heppinn
að minn besti vinur og frændi, Grétar Þór,
bjó í parhúsi við hliðina á okkur.
Foreldrar mínir voru mjög natnir að fara
með okkur systkinin í ferðalög um landið
og frá þeim tíma á ég góðar minningar,
sérstaklega þegar við fórum í Kerlingarfjöll
á skíði í kringum 1990.“
Árið sem stendur upp úr
„Sú minning sem stendur upp úr frá
æskuárunum er árið sem við bjuggum í
Danmörku 1992-1993 en við fluttum þang-
að því foreldra mína langaði í tilbreytingu.
Þetta var viðburðaríkt og skemmtilegt ár og
þarna lærði ég dönsku.
Dag einn vorum við stödd á Bellavue-
ströndinni í Danmörku þegar pabbi sendi
okkur krakkana til að sækja íspinna á út-
varpsstöð sem var að senda út á ströndinni.
Íspinnarnir voru ekki íspinnar heldur ban-
anasmokkar, þarna eignaðist ég
mína fyrstu 30 smokka, 12 ára
gamall,“ segir Einar og hlær.
Hún uppskar mikla virðingu
„Ég gekk í Varmárskóla og svo í Gagn-
fræðaskólann í Mosfellsbæ. Kynntist þar
Ragnheiði Ríkharðsdóttur sem var kjarn-
orkukona, hún var skólastjóri árin mín í
gaggó. Árið 1995 voru öll kennsluborð og
sæti í kennslustofunum endurnýjuð. Tveir
nemendur ákváðu að skera nöfn sín í nýju
borðin og það var því ekki erfitt að finna út
hverjir þessir nemendur voru. Ragnheiður
tæklaði þetta mjög vel og uppskar mikla
virðingu en drengirnir tveir sátu með sín
gömlu borð út önnina.
Eftir útskrift úr gagnfræðaskólanum lá
leiðin í Menntaskólann við Sund þaðan
sem ég lauk stúdentsprófi árið 2000 af
náttúrufræðibraut. Á sumrin vann ég við
leikjanámskeið ÍTÓM, íþrótta- og tóm-
stundaskóla Mosfellsbæjar með Hlyni
Guðmundssyni og á veturna
í Íþróttaskóla barnanna með
Svövu Ýri og Höllu Karen.“
Spennandi tímar fram undan
„Eftir útskrift fór ég að starfa sem aðstoð-
armaður sjúkraþjálfara á Landspítalanum
við Hringbraut. Ég fór síðan í Háskóla Ís-
lands til að læra sjúkraþjálfun og útskrifast
þaðan árið 2005.
Ég hef starfað í 17 ár á MT-stofunni í
Síðumúla sem sjúkraþjálfari en nú eru blik-
ur á lofti því ég er að fara að opna stofu með
tveimur öðrum sjúkraþjálfurum í Ártúni í
sumar svo það eru virkilega spennandi
tímar fram undan.“
Afslappandi að fara í sveitina
Einar giftist eiginkonu sinni, Birnu Maríu
Karlsdóttur, 9. júní 2012 en hún er ættuð
úr Öxarfirði í Þingeyjarsýslu. Þau kynntust
í námi sínu í sjúkraþjálfun og tóku saman
2005. Birna starfar á
Landspítalanum Hring-
braut á hjartasviði. Þau
eiga saman tvö börn,
Helgu Laufeyju f. 2008
og Snorra Stein f. 2010.
„Við fjölskyldan njót-
um þess að fara í ferða-
lög innanlands og utan.
Okkur finnst gaman að
fara með fellihýsið okk-
ar og taka frisbígolfið
með. Oftast förum við í
sveitina rétt hjá Ásbyrgi
til tengdapabba en
hann er sauðfjárbóndi
þar ásamt mági mínum, Bjarka Fannari.
Að komast í sveitina þar sem mikið er af
kindum, hestum og hænum er gríðarlega
afslappandi og skemmtilegt fyrir börnin.
Þar er tekið í sveitastörfin ásamt því að
njóta náttúrunnar.“
Gerðu það sem gleður þig
Einar fer hjólandi í vinnuna allt árið um
kring en aðaláhugamál hans er hreyfing
og þá sérstaklega þríþraut. Árið 2015 dró
frændi hans Jens Ingvarsson hann með
sér í WOW Cyclothon sem samanstóð af 10
manna liði sem hjólaði hringinn í kringum
Ísland. Eftir þessa ferð var ekki aftur snúið,
Einar fann þarna ástríðu sína.
„Mín lífsspeki er þessi, allir þurfa ein-
hvern tilgang í lífið. Gera eitthvað sem er
skemmtilegt og gleður mann. Best er ef það
er hreyfing í einhverri mynd. Gott er að setja
sér markmið og jafnvel fara út fyrir þæginda-
rammann. Ef þú sinnir sjálfum þér aukast
líkurnar á að þér líði betur og þú sinnir fjöl-
skyldu, vinum og vinnu mun betur.
Það gefur mér tilgang á hverjum einasta
degi að fá hreyfiskammtinn minn ásamt
þeim gleðihormónum sem því fylgja.“
Með góðu skipulagi er allt hægt
Járnkarl eða Ironman samanstendur af
3,8 km sundi, 180 km hjólreiðum og 42,2
km maraþonhlaupi. Klára þarf keppnina á
16 klukkustundum en góður íþróttamaður
er um 10 klukkustundir að klára.
„Ég fór í minn fyrsta járnkarl í Barcelona
árið 2017 og síðan þá hef ég farið á hverju
ári. Ég keppi núna í sjötta sinn í Svíþjóð í
sumar og fjölskylda mín kemur með mér
sem stuðningsmannalið. Ég æfi 12 klukku-
stundir á viku allar vikur ársins og með
góðu skipulagi og frábærri eiginkonu er
allt gerlegt,“ segir Einar og brosir.
Langþráðu markmiði náð
„Árið 2021 náði ég langþráðu mark-
miði þegar ég kláraði Ironman á Ítalíu á 9
klukkustundum og 39 mínútum. Það var
búið að vera þráhyggja í nokkur ár að brjóta
10 klukkustunda múrinn sem er ákveðinn
tímamótaárangur hvers íþróttamanns í þrí-
þrautarheiminum, þá var grátið af gleði.
Líkaminn er gjörsamlega hamraður í
nokkra daga eftir svona keppni og miklir
strengir í fótleggjum. Ég man þegar ég
kláraði Ironman í Austurríki 2019 þá þurfti
ég að fara á klósettið. Þegar ég ætlaði að
standa upp þá fékk ég svo mikinn krampa
í fæturna að ég gat ekki staðið upp svo ég
þurfti bara að sitja í dágóðan tíma á meðan
ég jafnaði mig, ég gat ekki annað en hlegið
að þessum aðstæðum.
En það eru ekki bara keppnirnar sem
maður sækir í heldur líka ferðalögin, allar
æfingarnar og félagsskapurinn. Það er líka
lífsnauðsynlegt að eiga góðan maka sem
styður mann og elskar.
Hver keppni gefur mér svo góðar minn-
ingar, ég vona að ég geti keppt eins lengi
og heilsan leyfir. Langtímamarkmið mitt
er að komast á heimsmeistaramótið sem
haldið er ár hvert á Hawaii, nú er bara að
krossa fingur,“ segir Einar og brosir er við
kveðjumst.
Ef þú sinnir sjálfum þér
aukast líkurnar á að þér
líði betur og þú sinnir fjölskyldu,
vinum og vinnu mun betur.
Fjölskyldan í Stuðlagili, Einar, Helga Laufey, Birna María og Snorri Steinn.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Allir þurfa einhvern
tilgang í lífið
HIN HLIÐIN
Óvenjulegasta lífsreynslan?
Þegar konan mín gaf mér sónarmynd
af frumburði mínum árið 2008 á minnst
spennandi degi ársins, Valentínusardegi.
Hvaða matur freistar þín?
Blómkálssúpan hennar mömmu.
Hvar líður þér best?
Fyrir utan hið augljósa sem er heima þá
líður mér best á hjólinu í góðu veðri með
skemmtilegt podcast í eyranu.
Bestu kaup sem þú hefur gert?
Hlaupabretti í byrjun Covid faraldurs.
Hverju myndir þú breyta á Íslandi ef
þú ættir þess kost? Setja hjólreiðastíga
meðfram þjóðvegum landsins.
Fallegasti staður í Mosfellsbæ?
Toppurinn á Úlfarsfelli.
Hver kom þér síðast á óvart og hvern-
ig? Mamma, þegar hún hjólaði í vinnuna
í rauðri veðurviðvörun og hló þegar hún
heyrði að ég fór á bíl.
Besta heilsuráðið? Bestu æfingarnar
eru þær sem eru gerðar.
Einar Sigurjónsson sjúkraþjálfari hefur tekið þátt í þríþrautum víða um heim
tveggja ára ironman í köben
systkinin kristrún, arnar og einar