Mosfellingur - 28.04.2022, Qupperneq 42

Mosfellingur - 28.04.2022, Qupperneq 42
 - Aðsendar greinar42 Fáir efast um það að skólarnir okkar í Mosfellsbæ, leikskólar og grunnskólar, séu þær stofnanir bæjarins sem snerta líf barna okk- ar mest. Hafa áhrif á uppvöxt og þroska, félagslega færni og velferð í víðum skilningi. Ég birti greinina „Farsæll grunn- skóli“ í Mosfellingi í febrúar síðast- liðnum og ég skrifa aftur núna um skólana því ég tel að málefni barnanna okkar séu mikilvægustu málefni sem sveitarstjórnar- fólk stendur frammi fyrir að sinna. Starfið sem unnið er innan þessara stofnana legg- ur grunninn í lífi barnanna okkar. Skólarnir auka jöfnuð í samfélaginu því þar mætast börn á jafnræðisgrundvelli. Þar eiga börnin að fá þá þjónustu sem þau þurfa til að rækta hæfileika sína og blómstra. En fá börnin þá þjónustu sem þau þurfa? Það er alveg ljóst að starfsfólk skólanna gerir sitt allra besta til að styðja börnin til þroska en því miður hefur vantað úrræði inn í skólana svo mæta megi börnunum þar sem þau eru stödd. Kennarar eru settir í þá stöðu að bera ábyrgð á menntun og velferð barnanna en fá ekki þann sérfræðistuðning sem þarf og er nauðsynlegur. Ef við grípum ekki börnin þegar þau þurfa á stuðningi að halda getur aðstoðin orðið mun kostnaðarsamari fyrir samfélag- ið á fullorðinsárum þeirra. Sveitarstjórnar- menn eiga alltaf að horfa langt fram í tím- ann og það á ekki síst við þegar við fjöllum um aðbúnað barna. Leikskólinn er fyrsta skólastigið en oft hefur borið á skilningsleysi í umræðunni á því fagstarfi sem þar fer fram. Mannekla sem sífellt berast fréttir af víða um land, hefur á stundum orðið til þess að umræðan um skólastigið hefur hverfst um gæsluhlut- verk leikskólans. Leikskólinn er hvort tveggja í senn, skóli og gæsla. Hluta dagsins er unnið samkvæmt námsskrá og síðan tekur frjáls leikur við undir umsjón starfsfólks en börnin eru náttúrulega að læra allan daginn. Snemmtæk íhlutun varðandi málþroska er gríðarlega mikilvægur þáttur í starfi leikskóla þar sem sjónum er beint að því að börn fái þá aðstoð sem þarf til að koma í veg fyrir að vandi ágerist. Í leikskólunum okkar fer fram metnaðar- fullt starf en það er nauðsynlegt að styrkja umgjörð þeirra sem skólastofnana, auka stuðning til símenntunar og til að sækja sér menntun í leikskólakennarafræðum. Samkvæmt lögum um menntun og hæfni kennara eiga 2/3 hlutar stöðugilda í leik- skólum að vera mannaðar með kennurum. Því fer víðs fjarri að það hlutfall náist. Ég lýk þessum skrifum með tveimur áherslupunktum úr kosningastefnuská Samfylkingarinnar og hvet kjósendur til að kjósa út frá hagsmunum barna og kynna sér stefnumál okkar á sammos.is Fjölbreyttari sérfræðiþekkingu inn í skólana Við viljum ráða sérfræðinga með mis- munandi fagþekkingu inn í teymi sem þjónustar skóla bæjarins. Gjaldfrjáls leikskóli – fyrsta skólastigið Við stefnum að gjaldfrjálsum leikskóla með það markmið að sá tími sem ætlaður er i skipulagt, faglegt skólastarf samkvæmt námsskrá verði gjaldfrjáls. Anna Sigríður Guðnadóttir, bæjarfulltrúi, skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar Skólarnir okkar Eitt sterkasta einkenni og aðdrátt- arafl Mosfellsbæjar er náttúran sem umlykur byggðina. Fellin, heiðin og hafið. Í bænum sjálfum eru það svo þessi litlu grænu svæði sem gefa mikið. Lækir, móar, stallar og skóg- ar. Það eru heilmikið forréttindi að hafa aðgang að þessum grænu svæðum og þau hafa mikil áhrif á íbúana sem tengjast þeim allir á sinn hátt. Til að tryggja vistvænar samgöngur, aðgengi fyrir alla og heilnæmt umhverfi þarf að horfa á grænu svæðin, bæði í stóru samhengi og smáu. Að ár séu verndaðar frá upptökum að ósum og að aðgengi að grænum svæðum sé mögulegt fyrir allar kynslóðir og hreyfigetu. Það er lykilatriði fyrir umhverfið og þar af leiðandi loftslagið að græn svæði séu til í sinni náttúrulegustu mynd, bæði á stórum og smáum skala. Þau skapa lífið á jörðinni eins og við þekkjum það í dag, framleiða hreint loft, hreint vatn og aðstæður fyrir matvælaframleiðslu. Grænu svæðin móta hversdag- inn, hvort sem það er hlaupatúr meðfram sjónum, ganga með barnavagn á stígum milli trjáa og leikvalla eða bara eitt augnablik þegar litið er út um eldhúsglugg- ann og veður dagsins gefur útsýn- inu nýjan blæ. Grænu svæðin sem við njótum alla daga þarf að vernda til framtíðar og eitt besta verkfærið sem við eigum til þess er nátt- úruvernd. Með skipulagðri vernd gefum við svæðunum framtíð og tryggjum að náttúran umlyki ekki bara bæinn heldur eigi sér líka heimili í þéttbýlinu. Vinstri græn vilja fjölskylduvænt, rétt- látt og umhverfisvænt samfélag. Verndun grænna svæða er í senn loftslagsaðgerð og einn lykillinn að þeirri framtíð. Stefanía Ragnarsdóttir skipar 11. sæti V-listans í kosningunum 14. maí. Græn svæði fyrir alla Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Deiliskipulag - Frístundalóð við Krókatjörn Bæjarstjórn hefur samþykkt að kynna deiliskipulag í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir Krókatjörn í Mosfellsbæ, L125143. Um er að ræða nýtt deiliskipulag við þar sem skipta á 1,6 ha frístundalóð í tvennt. Lóð er innan frístundabyggðarreits 518-F í aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030. Aðkoma að lóðunum verður um núverandi vegstæði. Hámarks byggingarmagn samræmist heimildum aðalskipulagsins. Gögn eru aðgengileg á vef, mos.is, og á Upplýsingatorgi Þverholti 2. Kostur er að senda athugasemdir sem skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag@mos.is. Athugasemdafrestur er frá 28. apríl til og með 13. júní 2022. Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar www.mosfellingur.is - 43 Sveitarstjórnarkosningar eru líkt og Ólympíuleikarnir haldnar fjórða hvert ár. Kannski eru þessir viðburðir ekki svo ólíkir. Órjúfanlegur hluti af þeim báðum er keppni þar sem einstaklingar og lið etja kappi og einhverjir standa uppi sem sigur- vegarar og aðrir með sárt ennið. En ef kosningar til sveitarstjórnar yrðu fullgild ólympíuíþrótt er gaman að ímynda sér hvaða þættir geta ráðið því hver stendur uppi með gullið. Fólkið Það sem skiptir hvað mestu máli eru einstaklingarnir sem eru í framboði. Listarnir eru auðvitað mannana verk og ekki betri eða verri en nöfnin sem eru á þeim. Þetta á sérstaklega við í bæjarstjórnar- kosningum líkt og í Mosfellsbæ þar sem aðeins eru ellefu fulltrúar í bæjarstjórn og vægi hvers því talsvert. Því ætti kjósandinn að spyrja sig hvaða einstaklinga hann vill sjá með gullmedalíu um hálsinn og takast á við þá ábyrgð sem fylgir að stjórna sveitar- félagi með heiðarleikann að leiðarljósi. Málefnin Þá skipta málefnin auðvitað miklu máli en í þeim felast ákvarðanatökur sem geta haft veruleg áhrif á íbúa sveitarfélagsins. Þau eru jafn mörg og þau eru ólík en þess þarf að gæta að gullið má ekki vera of dýru verði keypt. Má þá benda á mikilvægi þess að sýna ábyrgð í fjármálum sveitarfélaga og umgangast fjármuni almennings af virðingu. Einng eru umhverfismál eitt af stóru viðfangsefnum dagsins í dag og því er stefna sveitarfélaga í þeim málaflokki gríðarlega mikil- væg. Því þarf að hafa umhverfismál í huga við stefnumótun og ákvarð- anatöku sveitarfélaga með það að markmiði að sporna við hlýnun jarðar og gæta að umhverfinu. Hugsjónin Þá er ákveðin pólitísk hugsjón á bak við stjórnmálasamtök sem endurspeglast í ólíkum markmið- um stjórnmálaflokkanna. Þessar pólitísku hugsjónir hafa áhrif á stjórnmála- samtök hvort sem það er á sveitarstjórnar- stigi eða í landsmálunum. Því er ekki hægt að skilja á milli lands- mála og sveitarstjórnarmála að öllu leyti. Þetta hefur í för með sér að stuðningur við ákveðin stjórnmálasamtök á sveitarstjórn- arstigi rennir styrkari stoðum undir þau á landsvísu og þá vegferð sem þau eru á, t.d. hvaða hagsmuni þau eru að berjast fyrir. Það sem er samt best við þessa Ólymp- íuleika er að þú lesandi góður ert sá sem ræður úrslitum. Viðreisn setur almanna- hagsmuni framar sérhagsmunum. Þú getur breytt því sem þú vilt. Veldu Viðreisn. Elín Anna Gísladóttir og Ölvir Karlsson. Höfundar skipa 3. og 4. sæti á lista Viðreisnar í Mosfellsbæ. Sveitarstjórnarmál sem ólympíugreinÁ undanförnum árum hefur orð- ið mikil fjölgun á nemendum í grunn- og leikskólum bæjarins. Með auknum fjölda hafa skapast nýjar áskoranir meðal kennara og skólastjórnenda, margar þeirra krefjandi sem hafa sýnt fram á nauðsyn þess að efla og styrkja skólafólk með auknu aðgengi að sérfræðingum. Það er fátt eins lamandi og erfitt í starfi með börnum og að lenda í alvarlegum aðstæðum sem þú veist ekki hvernig á að leysa. Á þeirri stundu þarf starfsmaðurinn lítið til að upplifa að stuðningur, innan vinnustaðar, sé ekki fyrir hendi. Nú, þegar hægt hefur á nemendafjölgun í grunnskólum er gott að nýta tímann til að fara yfir undanfarin ár, skoða það sem vel hefur tekist til og hverju má standa betur að – með eflingu á þjónustu Fræðslusviðs. Fara þarf í þarfagreiningu í hverjum skóla, meta hvaða þjónustu þarf beint inn í skólana, hvaða þjónustu skólarnir geta sameinast um og verið miðlægt staðsett á Fræðslusviði. Við í Vinum Mosfellsbæjar leggjum ríka áherslu á að á Fræðslusviði sé teymi sér- fræðinga ráðið inn, sem fari út í skólana og sé kennurum og stjórnendum til stuðnings. Í teyminu geta verið ráðgjafar á borð við kennsluráðgjafa, hegð- unarráðgjafa, sálfræðinga, félags- ráðgjafa og ráðgjafarþroskaþjálfa sem geta stutt beint við bakið á kennurum. Benda má á sambærileg verkefni í Reykjavík, Betri borg fyrir börn og þjónustu Farteyma. BBB verkefnið, eins og það er kallað, gengur út á það að færa þjónustuna nær notendum og hafa kennsluráðgjafar og hegðunarráðgjafar viðveru í skólum hverfisins á tilteknum tímum og geta þar tekið til vinnslu mál sem bíða og unnið jafnóðum og þau koma upp. Þessi viðvera hefur verið mikill styrkur fyrir nemendur og starfsfólk, vinnsla mála hefst fyrr, sem þýðir að færri málum er vísað til Þjónustumiðstöðva til vinnslu. Þjónusta Farteyma er þjónusta við nem- endur með fjölþættan vanda þar sem unnið er með nemandann í nærumhverfi hans. Allt kapp er lagt á að málin séu unnin í skólan- um, ef það gengur ekki upp er teymið með aðsetur og getur tekið nemendur til sín. Með dyggri aðstoð og ríkri eftirfylgd náum við betri árangri, börnunum okkar til heilla. Dagný Kristinsdóttir, skipar 1. sæti á framboðslista Vina Mosfellsbæjar. Fagleg handleiðsla 14. maí nk. göngum við til kosn- inga og fáum tækifæri til að nýta mikilvægustu mannréttindi sem við höfum, réttinn til að velja sjálf það fólk sem kemur til með að stýra málefnum samfélagsins okkar til næstu 4 ára. Ég gaf kost á mér til að taka sæti á lista Framsóknar í Mosfellsbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum og var treyst fyrir 4. sæti listans. Ég er 38 ára, bý ásamt eiginkonu minni og 3 börnum í Helgafellshverfinu, þar höf- um við búið síðan árið 2019. Ég er fæddur og uppalinn á Seyðisfirði og bjó þar óslitið þar til við fjölskyldan fluttum í Mosfellsbæ. Okkur hefur hvergi liðið betur en einmitt hér. Ég brenn fyrir það að hér búum við sem best að börnunum okkar, auk ýmissa annarra þátta sem ég og við í Framsókn munum kynna á næstu vikum. Í nútímasveitarfélögum verður ákall bæjarbúa og krafan um það að þjónustan sé veitt um leið og eftir henni er kallað sífellt háværari. Stærsti þjónustuveitandi flestra einstaklinga er vafalítið lögheim- ilissveitarfélag hvers og eins. Það er því mikilvægt að til að mæta ákalli og kröfum bæjarbúa að sveitarfélagið sé stöðugt á tánum þegar kemur að nýtingu tækni- lausna og þróunar í samskiptamiðlum við þá vinnu. Í þessu sambandi tel ég mikilvægt að ávallt sé tryggt að vefsíða sveitarfélagsins sé góð og aðgengileg upplýsingaveita. Innra svæði vefsins fyrir íbúa, þ.e. „Mínar síður“, sé gagnvirkt svæði þar sem íbúar geta nálgast í rauntíma allar upplýsingar um þá þjónustu sem innskráður íbúi greiðir af til sveitarfélagsins. Ekki ósvipað því sem sjá má við kaup á lyfjum skv. lyfseðli, þar sem kemur fram annars vegar hlutur sjúklings af kostnaðinum og hins vegar hluti sjúkrasamlags. Í ábendingakerfinu sem á vefn- um er, fengist við innsendingu úthlutað málsnúmeri þar sem á hverjum tíma er hægt að nálgast upplýsingar um stöðu málsins í stjórnkerfinu, þ.e. ekki eingöngu stöðu eins og móttekið, í vinnslu, o.s.frv. heldur ítarlegri eftir atvikum, t.d. á borði hvaða nefndar, þjónustusviðs eða jafnvel ákveðins starfsmanns sveitarfélagsins málið er. Ég tel mikilvægt að í þjónustu sveitar- félagsins við íbúa, sé stöðugt fylgst með tækniþróun til að þjónusta á hverjum tíma sé ávallt með því besta sem völ er á. Slíkri þróun fylgja vissulega alltaf einhver útgjöld, en líklegt er að til lengri tíma felist í raun sparnaður í því að endurnýja kerfin örar frekar en að vera stöðugt að greiða af og viðhalda eldri, oft á tíðum óskilvirkum kerfum, sem þrátt fyrir að hafa talist góð og gagnvirk á sínum tíma, eru einfaldlega börn síns tíma. Ég er reiðubúinn til að leggja mitt af mörkum næstu fjögur árin til að gera okkar yndislega bæ enn betri. Ég er ávallt reiðubúinn að taka samtalið um hug- myndir og útfærslur úr öllum áttum og vinna að góðum málum sama frá hverjum þau koma. Við á lista Framsóknar í Mosfellsbæ óskum eftir því að þú hugsir til okkar í kosningunum þann 14. maí og setjir X við B á kjördag. Höfundur skipar 4. sæti B-lista Framsóknar í Mosfellsbæ Ný Framsókn fyrir Mosfellsbæ Fótboltasumarið er hafið. Í sumar er Afturelding með lið í Bestu deild kvenna og Lengjudeild karla. Síðasta sumar komst kvennalið Aftureldingar upp í Bestu deildina með því að lenda í öðru sæti á eftir KR í Lengjudeildinni. Stórkostleg- ur árangur og núna er næsta skref að standa sig vel í Bestu deildinni. Karlalið Aftureldingar er að hefja sitt fjórða tímabil í röð í Lengjudeildinni eftir að hafa komist upp úr 2. deildinni árið 2018. Liðið hefur gert vel í að halda sæti sínu í deildinni síðustu þrjú ár og núna er kominn tími til að gera enn betur. Undirritaður var staddur á leik Aftureldingar og Vængja Júpíters í Mjólkurbikar karla föstudagskvöld- ið 22. apríl og þar var mjög góð mæting. Vonandi heldur það áfram í sumar að við Mosfellingar styðjum við bakið á okkar fólki. Þau þurfa svo sannarlega á því að halda. Verum dugleg að mæta á völlinn í sumar að styðja okkar fólk. Áfram Afturelding! Jón Fannar Árnason Tómstunda- og félagsmálafræðingur Mætum á völlinn Skipulagsmál eru stór þáttur í vax- andi samfélagi okkar í Mosfellsbæ og eitt helsta hagsmunamál íbúa. Bærinn okkar mun halda áfram að stækka á næstu árum en við ætlum að standa vörð um sérkenni Mosfellsbæjar sem „sveit í borg“ og huga vel að dýrmætri náttúrunni allt í kringum okkur. Mosfellsbær er fallegur bær, umlukinn fellum, ám og vötnum. Tengslin við náttúr- una eru sterk og því er bæjarfélagið vinsælt til búsetu fyrir áhugafólk um útivist og íþróttir. Við leggjum áfram áherslu á góð búsetuskilyrði í fallegu og öruggu umhverfi þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttum húsa- og íbúðagerðum sem uppfylla þarfir íbúa á öllum æviskeiðum. Sem heilsueflandi samfélag mun Mosfells- bær hafa heilbrigði bæjarbúa að leiðarljósi í skipulagsmálum. Fagleg og fjölbreytt uppbygging heldur áfram Uppbygging nýrra hverfa heldur áfram og þar er langstærsta verkefnið uppbygging á Blikastaðalandinu. Við ætlum að byggja upp stóra og fjölbreytta byggð á Blikastaða- landi með grænum svæðum inn á milli í byggðinni frá fjalli til fjöru og mun gamli Blikastaðabærinn standa áfram en honum er ætlað að vera hjartað í hverfinu. Í þessu hverfi sem og öðrum verður lögð mikil áhersla á góðar og öruggar samgöngur og stígakerfi með góðu aðgengi að hágæða almenningssamgöngum m.a. Borgarlínu. Í öðrum nýjum hverfum verður meira haldið í hefðbundna mosfellska byggð með áherslu á minni þéttleika og sérbýli. Áfram verður lögð áhersla á góðar og fjölbreyttar samgöngur, sérstaklega fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk hestafólks. Ævintýragarður - perla útivistar í Mosó Ein helstu verðmæti Mosfellsbæjar er fjölbreytt náttúran sem umlykur bæjarfé- lagið og þau fjölbreyttu útistarsvæði sem við eigum. Þar er Ævintýragarðurinn perla sem er í uppbyggingu og framkvæmdir þar í gangi sem munu halda áfram. Deiliskipu- lag fyrir svæðið er tilbúið og verið er að klára hönnun og skipulag varðandi aðgengi að garðinum í samstarfi við Vegagerðina. Í Ævintýragarðinum er nýbúið að opna glæsilegan samgöngu- stíg fyrir gangandi og hjólandi með fjórum akreinum sem annar umferðinni um garðinn mjög vel sem aðalsamgönguæðin í gegnum garðinn. Mikil fjölbreytni verður innan Ævintýragarðsins samkvæmt skipulaginu og má þar nefna m.a. rósastíg sem mun liggja eftir svæðinu endurlöngu og ætistíg meðfram matjurtargarðinum. Þar er einnig gert ráð fyrir fjallahjóla- braut, gönguskíðabraut, stóru leiksvæði þar sem kastalinn, grillið og ærslabelgur- inn eru þegar komin í notkun og á minni leiksvæðum á jöðrum garðsins verða einnig leiktæki fyrir alla aldurshópa. Settar verða upp þrekstöðvar á nokkrum stöðum í garðinum og þrektröppur, auk þess sem skíða- og sleðabrekkur verða á tveimur stöðum. Í garðinum verður einnig tjaldsvæði og þjónustu- og veitingastaður tengdur því svo fátt eitt sé nefnt. Ævintýragarðurinn er og verður algjör útivistarperla fyrir okkur Mosfellinga til framtíðar. Við eigum fleiri frábær útistarsvæði í Mosó og má þar til dæmis nefna þær fjöl- mörgu hjóla-, hlaupa- og göngleiðir í bæj- arfélaginu og á fellunum í kring. Einnig má nefna Stekkjarflötina við Álafosskvos. Það er markmið okkar að ljúka uppbygg- ingu útivistarsvæðis í miðbænum á næsta kjörtímabili. Þar mun glæsilegur miðbæj- argarður vera hjarta miðbæjarins þar sem hægt verður að njóta útivistar í fallegu umhverfi og mun garðurinn ramma inn mannlífið í miðbænum og skerpa ásýnd miðbæjarins. Ásgeir Sveinsson, formaður bæjarráðs og skipulagsnefndar. Frambjóðandi í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Helga Jóhannesdóttir, nefndarmaður í skipulagsnefnd. Frambjóðandi í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Mosfellsbær - náttúru- og útivistarbær Ný samgöngustígur fyrir gangandi og hjólandi liggur nú í gegnum Ævintýragarðinn í Ullarnesbrekkum.

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.