Mosfellingur - 28.04.2022, Page 52

Mosfellingur - 28.04.2022, Page 52
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Í eldhúsinu Heimilis- verk Að taka úr uppþvottavélinni, hengja upp úr þvottavélinni eða brjóta saman úr þurrkaranum. Ég held ég geti sagt fyrir hönd flestra að þetta eru meðal leiðinlegustu heimilisverkanna. Sérstaklega vegna þess að maður er ekki fyrr búinn að ljúka verkinu þegar það þarf að byrja það aftur … Þótt klósettþrif séu heldur ekki skemmtileg þá þarf ekki að endurtaka þau alveg jafn ítrekað, nema maður búi með fólki sem pissar mikið út fyrir (en það er annað mál). Á heimilum þar sem tvær eða fleiri fullorðar manneskjur búa saman, þá oftar en ekki lenda þessi leiðinda heim- ilisverk aðallega á herðum eins aðila. Það þarf ekki að vera slæmt að hafa slíka verkaskiptingu, svo lengi sem allir eru sáttir við sitt hlutskipti. En oft getur verið gott að allir aðilar fái að kynnast þessum hlutverkum svo að maður kunni að meta það þegar þau eru unnin fyrir mann. Til dæmis sér maðurinn minn alfarið um eldamennsku og eldhúsið á heimil- inu hjá okkur (og jesús minn hvað ég er þakklát fyrir það). Venjan er svo að ég sjái um þvottinn og önnur dagleg heimilisþrif. En svo er ég búin að vera veik síðustu vikur og maðurinn minn því þurft að sjá um allt heimilið að mestu. Og hann gerir nú ekki annað en að tala um hversu hollt þetta sé fyrir karlmenn að átta sig á því að það er bara drullumikil vinna að sinna heimili. Og að hann taki hattinn að ofan fyrir þeim fjölmörgu konum sem sinna bæði vinnu, börnum og heimili. (Ofurkonur að mínu mati) Ég er alveg sammála því að það er ótrúlega mikilvægt að allir aðilar á heimili átti sig á því að þvotturinn þvær sig ekki sjálfur og uppþvottavélin tæmir sig ekki sjálf. Að baki öllum heimilis- verkum er heilmikil vinna og ég held að maður læri ekki almennilega að meta alla þá vinnu sem fer í heimilisstörfin fyrr en maður þarf að standa í þeim sjálfur. Svo áfram gakk með jafna verkaskipt- ingu og meiri virðingu fyrir heimilis- störfunum! Einar og Birna skora á Sigurð Frosta Baldvinsson að deila næstu uppskrift í Mosfellingi Einar Sigurjónsson og Birna María Karlsdóttir deila með okkur uppskrift að þessu sinni. „Okkur finnst margt skemmtilegra í lífinu en að vera í eldhúsinu svo við köstum fram einni laufléttri. Við erum að vinna með morgunmat að þessu sinni en að sjálfsögðu má fá sér múslí á öllum tímum dagsins. Okkur finnst best að fá okkur músli með grískri jógúrt og bláberjum. Það má vinna með ýmiss konar korn og fræ en þetta er okkar uppáhalds.“ • 5-6 dl tröllahafrar • 2 dl graskersfræ • 1 dl sólblómafræ • 1 dl kókosflögur • 1 dl saxaðar möndlur • 1 dl saxaðar pekanhnetur • 3 msk hunang • 3 msk kókosolía 1) Hita ofninn í 180° 2) Bræða saman í potti olíu og hunang 3) Blanda öllu vel saman í skál 4) Setja á bökunarplötu með bökunarpappír 5) Baka í u.þ.b. 15 mínútur, gott að velta blöndunni til einu sinni meðan á bökun stendur (má vera lengur ef þið viljið hafa múslíið dekkra) 6) Taka úr ofninum og láta kólna 7) Geyma í lokuðu íláti móey pála Uppáhaldsmorgunmaturinn hjá einari og birnu - Heyrst hefur...52 Hún Svandís Margrét Valdísardóttir fæddist þann 17. september 2021 á Landspítalanum. Hún var 3.895 gr og 52 cm. Foreldri er Valdís Svan- hildur Erlendsdóttir en Svandís er einbirni, frumburður. heyrst hefur... ...að aldrei hafi fleiri konur leitt framboðslista í Mosfellsbæ. ...að Sonja og Sjúkraþjálfun Mosfells- bæjar sé að hætta rekstri eftir 26 ára starfsemi. ...að verið sé að semja um garðslátt í Mosfellsbæ fyrir sumarið og að Garð- list verði með vestursvæði bæjarins og Hreinir garðar með austur. ...að bæjarráð hafi samþykkt á dögunum að kanna staðsetningu þjóðarhallar í Mosfellsbæ. ...að árgangamót og steikarkvöld fótboltans sé á laugardaginn. ...að VG hafi verið gert að rífa niður kosningaauglýsingar sínar á Kjarnanum, daginn eftir að þær voru settar upp. ...að hin stórskemmtilega og krefjandi KB Þraut fari fram laugardaginn 21. maí en Kettlebells Iceland stendur fyrir hlaupinu. ...að Kammerkór Mosfellsbæjar haldi kveðjutónleika sína í kvöld. ...að árshátíð starfsmanna Mosfells- bæjar verði haldin í Gullhömrum laugardaginn 7. maí. ...að Frystihúsið sé nú lokað en ísbúðin er staðsett við Krónuna. ...að Grétar Eggerts hafi verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Aftureldingar og mæti á skrifstofuna eftir helgi. ...að búið sé að semja við reynslu- boltann Jovan Kubat um að verja mark Aftureldingar næstu tímabil í Olís-deildinni. ...að skátafélagið Mosverjar standi fyrir tónleikaröð á fimmtudags- kvöldum í Kvosinni þar sem safnað verður fyrir nýju eldhúsi. ...að þegar 12 lið hafi verið eftir í úr- slitakeppninni í körfubolta á Íslandi hafi Mosfellingar átt þrjá þjálfara. ...að Mosfellingarnir Ísak Snær og Jason Daði hafi skorað þrjú mörk fyrir Blika í fyrsta leik í Bestu. ...að það sé kominn nýr hreystivöllur við Helgafellsskóla. ...að leikfélagið sé nú með í sýningu kvöldstund til heiðurs Maríu Guðmunds, Ó María. ...að meistaraflokkur karla í fótbolta spili þrjá fyrstu leiki sumarsins í Lengjudeildinni á heimavelli. ...að Instagram-síða knattspyrnu- deildar sé vöknuð af værum blundi. ...að Hlíðavöllur opni fyrir kylfinga um helgina. ...að handboltatímabilinu sé nú lokið en stelpurnar náðu ekki í stig í Olís- deildinni og strákarnir komust ekki í úrslitakeppnina. ...að það séu 16 dagar til kosninga. ...að Herrakvöld Lions fari fram í Hlégarði á föstudagskvöldið. ...að Mosfellingur á Instagram sé að taka frambjóðendur í oddvita- spjall þessa dagana og kynna sér stefnumálin. mosfellingur@mosfellingur.is Steikarkvöld í Harðarból laugardaginn 30. apríl Jógvan Hansen stýrir veislunni, lúxus steikarhlaðborð frá Geira í Kjötbúðinni, skemmtiatriði á heimsmælikvarða, uppboð og happdrætti Verð 6.990 kr. Örfáir miðar eftir í gegnum netfangið maggi@afturelding.is H e r r a K v Ö l d a f t u r e l d i n G a r

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.