Austurglugginn - 18.11.2004, Blaðsíða 1
Menningarvit
Austurlands
Hverjir eru þeir?
Sjá bls. 7
„Feminismi snýst
að vera hugsandi
manneskja"
Þórhildur Helga
skólastjóri í viðtali:
Sjá bls. 6
Ætla að
jólaköttinn
Handverkskonur á
Egilsstöðum
Sjá bls. 10
Hvað ger
Emil?
Sjá bls. 8
Austur«gluggmn
45. tbl. -3. árg. -2004- Fimmtudagur 18. nóvember
Nýjor vórurtra
Verð í lausasölu kr. 350
Áskriftarverð kr. 1.140 á mánuði (kr. 285 eintakið)
ISSN 1670-3561
Leikskólavist barna úr Fáskrúösfjarðarhreppi
Sveitarfélagið borgar
Fjölskylda flutti lögheimili til að þriggja ára barn fengi
leikskólavist. Kærð til baka en oddviti segir Fáskrúðs-
fjarðarhrepp muni greiða fyrir leikskólaplássið.
Landflutningar - Samskip
Kaupvangi 25
700 Egilsstaóir
Sími 471 3080
Fax 471 3081
Opnunartími:
Mánudaga til föstudaga
frákl. 08:00-16:00
Landff/utningar
/SAMSKIP
Aftur langur
laugardagur
20% afslánur
af allri vöru
OBiötl-18
Blómabúðin Laufskálinn
Nesgata 3 - 740 Fjarðabyggð
Simi 477 1212
t lögum um leikskóla segir að
bygging og rekstur leikskóla skuli
„vera á kostnað og í umsjón sveit-
arstjórna og sjá þær um fram-
kvæmd þessara laga, hver í sínu
sveitarfélagi, þeim er skylt að hafa
forystu um að tryggja börnum dvöl
í góðum leikskóla." Svo virðist
sem sveitarfélög fari ekki öll eftir
þessari lagagrein því í Fáskrúðs-
fjarðarhreppi er ekki starfandi leik-
skóli og eiga börn sem þar búa,
ekki kost á leikskólavist í kjölfar
uppsagnar samnings milli hrepps-
ins og Austurbyggðar um leik-
skóla. Frosti Magnússon býr í Fá-
skrúðsfjarðarhreppi en til að
þriggja ára dóttir hans fengi inni á
leikskóla, flutti fjölskyldan lög-
heimili til Austurbyggðar. Fá-
skrúðsfjarðarhreppur hefur nú kært
íjölskylduna til baka og því ekki
sjálfgefið að stúlkan fái að vera á-
fram á leikskóla.
„Það er spurning hvað gerist
næst,“ segir Frosti. „Hvort Austur-
byggð reki hana úr skólanum eða
hún fái að vera áfram. Ætli það
fari ekki bara eftir því hvort Fá-
skrúðsfjarðarhreppur borgi reikn-
inginn þegar hann kemur til þeirra.
Austurbyggð hlýtur að fara fram á
það.“ Hann segist ekki ætla að að-
hafast neitt fyrr en í ljós komi
hvort barnið fær að vera áfram.
„Ég hugsa fyrst og fremst um barn-
ið og við flytjum þangað sem hún
fær leikskólavist, þurfi þess. Ef
barnið verður bitbein þessara
tveggja sveitarfélaga, neyðumst
við til að fara eitthvert annað,“ seg-
ir Frosti Magnússon sem starfar í
Austurbyggð en býr í Fáskrúðs-
fjarðarhreppi.
Friðmar Gunnarsson í Tungu,
oddviti Fáskrúðsfjarðarhrepps,
segir aðspurður að hreppurinn
muni „að sjálfsögðu borga sinn
hluta og að það væri bara fráleitt að
láta sér detta annað í hug.“ Að-
spurður hvers vegna hreppurinn
hefði kært sagði Friðmar að lögum
samkvæmt „ættu menn að hafa
lögheimili á þeim stað sem þeir
búa“ líkt og hann orðaði það. „Þess
vegna kærðum við og varla hendir
Austurbyggð barninu út úr skólan-
um þó fjölskyldan sé með lög-
heimili í Fáskrúðsljarðarhreppi,"
sagði Friðmar og skildi að öðru
leyti ekki hvers vegna þetta var
komið í blöðin.
JKÁ
Dragnótaveiðar:
Málið í
umsagnarferli
Ekki er að vænta svars frá sjáv-
arútvegsráðuneyti við ályktun
bæjarstjórnar Fjarðabyggðar þar
sem þess var farið á leit að drag-
nótaveiðar yrðu bannaðar bátum
yfir 15 metrum að lengd í þeim
víkum, flóum og íjörðum sem til-
heyra sveitarfélaginu. Samkvæmt
upplýsingum úr ráðuneytinu er
málið í umsagnarferli og er niður-
stöðu að vænta eftir eina til tvær
vikur. Einnig hefur verið boðaður
samráðsfundur ráðuneytisins og
Hafrannsóknarstofnunar í næstu
viku um málið.
Aflafréttir:
Góður kolmunnaafli
Alls hefur verið landað rúmlega
sjötíu og fimm þúsund tonnum af
kolmunna í Neskaupstað frá ára-
mótum og hefur bróðurpartur afl-
ans farið í bræðslu eða tæp 74.576
tonn. Afganginum hefur verið
landað frystum. Síðast landaði
Börkur 800 tonnum um helgina en
skipið kom inn vegna brælu og
vélarbilunar. Einnig hefur verið
landað tæplega fjörutíu þúsund
tonnum af síld, ýmist frosinni eða
ferskri. Engin síld hefur verið
söltuð á Neskaupstað í haust.
Austurbyggð:
Börn verða að hafa
öruggt umhverfi
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir
skólastjóri á Fáskrúðsfirði, telur
að sveitarfélagið verði að sjá
börnum og unglingum fyrir ör-
uggu umhverfi og reka mötuneyti
fyrir þau eigi foreldrar þeirra að
sækja vinnu til Reyðarfjarðar í
framtíðinni. „Þetta er þáttur sem
þarf virkilega að huga að til þess
að laða fólk hingað svo það geti
unnið annars staðar því við vitum
alveg hvernig fer ef þetta verður
ekki til staðar,“ segir Þórhildur
Helga Þorleifsdóttir m.a. í viðtali
á bls. 6.
bvg@agl.is
Sólsetur að hausti er oft á tíðum hrikalegt sjónarspil; samspil Ijóss og lofts, birtu og skugga. Senn mun
sólin kveðja marga Austfirðinga um stundarsakir en vissan um endurkomu hennar, gerir okkur
myrkrið bærilegra.
Sjáumst í Bónus
á E?ilsstöðum
Ódýrastir um allt land!
Afgreiðslutími í Bónus ó Egilsstöðum 4j
e 1 ' ~ —LU
>
Mánudag til fimmtudags ___ <
12.00 til 18.30 pjKÍ
Föstudag 10.00 ti! 19.30 f
Laugardag 10.00 til 18.00 d
Sunnudag 12.00 til 18.00