Austurglugginn - 18.11.2004, Blaðsíða 2
2
AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 18. nóvember
Guðmundur söðlar um
Breytingar verða í rekstri Egils-
búðar í Neskaupstað um næstu ára-
mót en hjónin Guðmundur Gísla-
son og Guðrún Smáradóttir hafa
keypt hlut Birgis Búasonar og lýk-
ur þar með samstarfi sem staðið
hefur í
nokkur ár.
G u ð r ú n
mun setjast
í stól Guð-
mundar í
Egilsbúð og
taka við
daglegum
rekstri en
Guðmundur
er að fara
vinna hjá Eurest (ESS) sem sér um
rekstur á starfsmannaþorpinu á
Reyðarfirði auk þess sem hann sér
áfram um skemmtanahald í Egils-
búð. Starf Guðmundar á Reyðar-
firði felst í umsjón með frístundum
starfsmanna, afþreyingu, skemmt-
unum og starfsmannahaldi.
Guðmundur Gíslason
Árekstur í Neskaupstað
Tveir bílar lentu í árekstri í Nes-
kaupstað sl. mánudag rétt um há-
degi við Nesgötubeygju en nokkur
hálka var þennan dag. Einn var í
hvorum bíl og sluppu báðir ó-
meiddir. Lögreglan sagði í samtali
við Austurgluggann að bílarnir
hefðu ekki verið á mikilli ferð en
þeir voru báðir á sumardekkjum
og því fór sem fór.
Náið fylgst með
rjúpnaskyttum
Orðrómur er á kreiki víða um
Austurland að menn gangi til
íjalla og skjóti rjúpu en enginn
hefur þó verið tekinn ennþá. Lög-
reglan á Vopnafirði sagði í samtali
við Austurgluggann að þeir hefðu
strangt eftirlit með þessu. „Við
förum upp á Möðrudalsöræfin og
fylgjumst með en við höfum ekki
tekið neinn ennþá,” sagði lögregl-
an á Vopnafirði.
Guðjón Sveinsson, rithöfundur.
Guðjón Sveinsson, rithöf-
undur á Breiðdalsvík, var
brattur þegar Austurglugginn
náði honum á línuna enda var
að koma út eftir hann bók sem
heitir Njóla nátttröll býður í af-
mæli. Það er Mánabergsútgáf-
an sem gefur út en í bókinni
eru myndir eftir Einar heitinn
Ámason. „Þetta er bamabók
fyrir fullorðna eftir almúga-
mann,” segir Guðjón og segir
að fullorðnir eigi að lesa hana
með börnum sínum. Hún er
„rammíslensk” svo orðalag
Guðjóns sé notað en í henni
em notuð ýmis orð sem flestir
íslendingar eru hættir að nota.
Vart þarf að taka fram að skýr-
ingar á hugtökum fylgja með.
„Þetta eru hugtök sem móðir
mín kenndi mér,” segir Guðjón
og bætir við: „Þetta var minn
háskóli.”
FRÉTTIR
Yfirlýsing frá stjórn KSA
Stjórn Kennarasambands
Austurlands fordæmir vinnu-
brögð ríkisstjórnarinnar . við
gerð bráðabirgðalaga til að
stöðva verkfall grunnskóláRenn-
ara. Er engu líkara en að það sé
.einbeittur vilji ríkisstjórnarinn-
ar að fá kennara ósátta og niður-
brotna inn í skólana. Þessi
bráðabirgðalög binda hendur
gerðardóms það rækilega að
ekki er nokkur von um að kenn-
arar fái laun í samræmi við
menntun.
Stjórn Kennarasambands Aust-
urlands hvetur samninganefnd
launanefndar sveitarfélaga til að
ganga til samninga á grundveili
tilboðs FG sem lagt var ffarn þann
8. nóvember. KSA beinir einnig
þeim tilmælum til kjörinna bæjar-
fulltrúa að kynna sér rækilega til-
boðið og kreijast þess að samn-
inganefnd launanefndar gangi til
samninga á grundvelli þess. Með
því væri hægt að stuðla að friði í
skólastarfi.
Sameining sveitarfélaga
Vopnafjarðarhreppur
hafnar tillögu
Vopnafjarðarhreppur segir
nei við hugmyndum um samein-
ingu við Skeggjastaðahrepp.
Austurbyggð er eina sveitarfé-
lagið sem hefur samþykkt að
láta kjósa um sameiningu.
Á fundi þann 11. nóvember,
fjallaði hreppsnefnd Vopnafjarðar-
hrepps um tillögu nefndar um
breytingu á sveitarstjórnarskipan
en sá hluti hennar sem lýtur að
Vöpnfirðingum, leggur til að þeir
sameinist Bakkfirðingum.
Skemmst er frá því að segja að
hreppsnefndin bókaði m.a. eftir-
farandi: „Hreppsnefnd Vopna-
fjarðarhrepps hafnar því tillögu
sameiningarnefndarinnar um að
kjósa sérstaklega um sameiningu
Vopnafjarðarhrepps og Skeggja-
staðahrepps í apríl n. k.”
Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri
sagði í samtali við Austurgluggann
að sveitarfélagið hefði komið hug-
myndum sínum um sameiningu á
framfæri s.l. vetur en þar er lýst
yfir vilja til þess að sameinast
„austur á bóginn” en þar er átt við
Fljótsdalshérað. Þorsteinn segir
Vopnfirðinga hafa fullan hug á að
vinna með Bakkfirðingum en þeir
sjái engan tilgang með því að
kjósa í april um litla sameiningu
sem engin áhrif muni hafa á rekst-
ur sveitarfélaganna. „Okkur finnst
ekki timabært að kjósa um þetta
núna en teljum að það eigi að
vinna betur að umdirbúningi stærri
sameiningar,” sagði Þorsteinn.
Hann segir Vopnfirðinga vilja bíða
þar til Fljótsdalshérað verði tilbúið
til frekari sameininga því þeir vilji
eiga meiri samskipti þangað.
Hann segir góðar samgöngur vera
forsendu fyrir að svo geti orðið og
að göng til Vopnafjarðar séu lykill-
inn að þeim. Eins og fram kom í
síðasta blaði, hefur staðið til að
halda fund með sveitarfélögum
handan sýslumarka um hugsan-
lega sameiningu en af því hefur
ekki orðið enn.
Því er ljóst að tvær af þremur til-
lögum nefndar um breytta skipan
sveitarfélaga er Austurland varða,
eru í uppnámi og blaðinu er ekki
kunnugt um að aðrar sveitarstjórn-
ir en Austurbyggð hafi ályktað um
tillögu sem lýtur að Mið-Austur-
landi. Hafni einhverjar sveitar-
stjórnir henni, gæti farið svo að
ekki yrði kosið um neina af þess-
um tillögum í óbreyttri mynd en
Djúpavogshreppur hefur þegar
hafnað tillögu um sameiningu við
Breiðdalshrepp.
bvg@agl.is
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hafnar tillögu um sameiningu við Skeggjastaða-
hrepp.
Kennarar á Austurlandi
Mótmæla lagasetningu
Flestir kennarar á Austur-
landi mættu til vinnu á mánu-
dagsmorgun þó með þeim und-
antekningum að enginn kennari
við Nesskóla í Neskaupstað
mætti og fáir mættu á Vopna-
firði. Flestir kennarar við
Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
mættu með uppsagnarbréf sem
þeir afhentu.
Lilja Guðný Jóhannesdóttir er
trúnaðarmaður við Nesskóla.
„Það er afar neikvætt hljóð í okk-
ar fólki; það er ósátt við að þurfa
að mæta til vinnu og vita hugsan-
lega ekkert um kaup og kjör fyrr
en í lok febrúar ef ekki tekst að
semja fyrir laugardag. Því hefur
verið haldið á lofti í fjölmiðlum að
kennarar hefðu dregið til baka
kröfuna um 5,5% hækkun sem víð
vildum fá án tillits til þess hvort
tækist að semja í þessari viku en
launanefndin vildi það ekki,”
sagði Lilja Guðný aðspurð um
hljóðið í kennurum. Hún segir þá
ekkert vita um hvernig greitt verði
fyrir ýmis ábyrgðarstörf í framtíð-
inni og spyr hvort kennarar eigi
að halda áfram að axla þá ábyrgð
án þess að vita um greiðslu fyrir
hana.
Hefði ekki verið nær að mæta
og segja upp? „í raun og veru hef-
ur verið snúið á okkur. Ef ég segi
upp núna er uppsagnarfresturinn
þrír mánuðir og það er hægt að
binda okkur í þrjá mánuði til við-
bótar við það sem þýðir að við
losnum ekki fyrr en 1. júní og er
ekki fínt fyrir sveitarfélögin að
hafa okkur í vinnu þangað til? Ef
gerðardómur kemst ekki að niður-
stöðu fyrr en í lok febrúar og ég
segi upp þá, tekur uppsögnin gildi
1. júní en að sjálfsögðu verðum
við ekki bundin í þrjá mánuði eft-
ir það.”
Hvað með börnin; voru lögin
ekki sett með þeirra hagsmuni í
huga? „Ég tel mig bera ábyrgð á
börnunum mínum og ég ber á-
byrgð á nemendum mínum þegar
ég er i vinnunni því ég fæ borgað
fyrir það. Þess vegna tel ég mig
ekki bera ábyrgð á þeim núna.
Mér finnst miður að kennurum sé
endalaust núið því um nasir að
þeir séu að fara illa með börnin.
Að sjálfsögðu eru þau fórnarlömb
en ábyrgðin er ekki síður sveitar-
félaga og rikisins.”
Lilja Guðný vildi ekki tjá sig
um hver framvinda málsins yrði,
því slíkt mætti túlka sem vísbend-
ingu um að aðgerðir kennara væru
samantekin ráð. Sjálf segist hún
vera veik og þjást af ógleði vegna
lagasetningarinnar en veit til þess
að aðrir hafi einfaldlega sagst ekki
ætla að mæta í mótmælaskyni.
bvg@agl.is
Áætlað tap á rekstri
Djúpavogshrepps
Á fundi hreppsnefndar Djúpa-
vogshrepps í síðustu viku, var síð-
ari umræða um endurskoðun fjár-
hagsáætlunar fyrir árið 2004.
Niðurstaða hennar var neikvæð
um 10.577.000 krónur en gert
hafði verið ráð fyrir jákvæðri nið-
urstöðu að fjárhæð 8.836.000
króna. Samkvæmt fundargerð
hreppsnefndar, er skýringanna
fyrst og fremst að leita í breyttum
forsendum hvað varðar rekstur
Dvalarheimilisins Helgafells en
vistmönnum þar hefur fækkað af
ýmsum orsökum og því standast
rekstrarforsendur ekki.
Austfirðingafélagið
100 ára
Næstkomandi sunnudag fagnar
Austfirðingafélagið í Reykjavík
100 ára afmæli sínu.. Hátíðahöld-
in verða á Grand Hótel og hefjast
þau kl. 15:00. Jón Ólafsson rit-
stjóri stóð fyrir stofnun félagsins
þann 26. janúar 1904 en ástæða
þess hve seint er haldið upp á
þennan viðburð, mun vera sú að
félagið var lagt niður fyrir tveimur
árum síðan en nú skal það endur-
vakið. Á dagskránni eru ávörp
þar sem félagsins og Austurlands
verður minnst, Vilborg Dagbjarts-
dóttir les ljóð, Rósa Guðmunds-
dóttir frá Reyðarfirði leikur á
fiðlu, almennur söngur og fulltrúi
Reykjavíkurborgar mun heiðra
samkomuna með nærveru sinni.
Léttar veitingar verða á staðnum.
Mikið byggt á
Fljótsdalshéraði
Samvæmt upplýsingum á
heimasíðu Fljótsdalshéraðs, er nú
verið að undirbúa eða helja bygg-
ingu um 360 íbúða í sveitarfélag-
inu, flestar í Votahvammi eða
hundrað tuttugu og þrjár. Áttatíu
íbúðir verða í þremur fjölbýlishús-
um við Kaupvang, tuttugu og sex
íbúða fjölbýlishús mun risa við
Blómvang og í Selbrekku verða
hundrað og sextán íbúðir. Þessu
til viðbótar er gert ráð fyrir sextíu
og fjórum íbúðum i Fellabæ og
tuttugu og einni á Hallormsstað
Það er ærin
ástæða til að
hrósa rekstrarað-
ilum Kúttersins á
Stöðvarfirði fyrir
að setja á stofn litla verslun
sem selur helstu nauðsynjavör-
ur. Það er nefnilega óþolandi
að þurfa að keyra á milli ijarða
eftir brauði eða mjólk, svo
ekki sé nú minnst á það neyð-
arástand sem getur skapast
þegar klósettpappírinn klárast.
Agnes og Samúel hafa mætt
brýnni þörf og reynt af fremsta
megni að bæta úr henni og því
eru þau vel aö þumlinum kom-
in að þessu sinni. Vonandi er
þarna framtíðar verslunarveldi
í uppsiglingu, ekki veitir af á
þessum síðustu og verstu hag-
ræðingar- og samþjöppunar-
tímum.