Austurglugginn - 18.11.2004, Page 5
Fimmtudagur 18. nóvember
AUSTUR • GLUGGINN
5
Lesendum
Sóðaskapur og
endurskinsmerki
Kona á besta aldri heimsótti
skrifstofu Austurgluggans og vildi
koma þeim tilmælum til þeirra sem
fara til að veiða að hirða upp eftir
sig ruslið. Þannig mætti hún á
skrifstofuna með þrjár patrónur
sem hún hafði fundið er hún var á
gönguferð í Oddsdal. „Þetta er
sóðaskapur og slíkt vil ég ekki
hafa,“ sagði hún.
Hún vildi einnig koma þeim til-
mælum til fólks að það eigi að nota
endurskinsmerki enda dagurinn
farinn að styttast.
Afstæði
aumingjanna
Það er ótrúlegt en samt er það
satt að meirihluti okkar kristnu
þjóðar er svo vita siðlaus að hann
endurkaus í ríkisstjórn þjóðarinnar
margdæmda siðleysingja og mann-
réttindabrotamenn í síðustu alþing-
iskosningum. Það sem verra er
með þá fulltrúa er að þeir fást ekki
til að hlíta dómum og leiðrétta mis-
gjörninga sína við öryrkja og maka
þeirra. Enn er það margt sem
stangast algjörlega á við dóma
Hæstaréttar og kemur það þungt
niður á þessum þjóðfélagshópi.
Gamalt máltæki segir: „Hvað sér
vesælla!“ Það má velta því fyrir sér
hversu oft muni þurfa að dæma
þessa sömu menn fyrir áníðslu á
aumingjum til þess að þeir fari að
haga sér eins og menn en ekki eins
og svín og ómenni? Og líka því
hverjir eru raunverulega mestu
aumingjar og vesalmenni þjóðar-
innar.
Það er ákaflega mikið afstætt að
vera aumingi og svín!!!
Ég segi það um Sjálfstæðis-
menn, það hlýtur að vera grín!
En eitt er þó víst
og vandi af hlýst
að grey þessi geta bara ekki lært
að skammast sín!
Frá Einari Sigfússyni í Skála-
teigi í NorðQarðarsveit, sérfræð-
ingi í hundahreinsun.
Fjaröabyggö óskar
eftir tilboöum í
eftirfarandi eign:
Stálgrindarskemma við Ægisgötu á
Reyðarfirði:
Til sölu er stálgrindarskemma sem
fjarlæga þarf af núverandi lóð.
Stærð skemmunnar er 255 fermetrar
(lengd 20,7 m, breidd 12,3 m og veg-
ghæð 4,2 m) og er hún klædd með
stáli að innan og utan.
Fjarlæga þarf skemmuna fyrir
15. mars 2005.
Tilboðum í eignina skal skila til
Guðmundar H. Sigfússonar forstöðu-
manns umhverfissviðs fyrir kl: 15:00
þann 22. nóvember næstkomandi.
Guðmundur H. Sigfússon veitir ein-
nig nánari upplýsingar í síma 470-
9038 og á netfanginu
mummi@fjardabyggd.is
Tombóla til styrktar
Austurglugganum
Já, ævintýrin gerast enn! Þegar
ritstjóri þessa snepils fór í kaupfé-
lagið í miðju stresskasti sl. mánu-
dag til að fá sér banana og skyr sátu
tvær stelpur í anddyrinu, þær Anna
Jórunn Sigurgeirsdóttir (tíu ára) og
Steina Gunnarsdóttir (níu ára), og
spurðu hvort hann vildi ekki „kaupa
dót á tombólu." ritstjórinn, sem var
að flýta sér, spurði hvert ágóðinn
færi og svöruðu þær því til að ágóð-
inn ætti að renna til Austurglugg-
ans!
Ritstjórinn tók þessu sem hverju
öðru gríni og sagði eitthvað á þá
leið að hann kæmi kannski seinna
og ef til vill sagði hann bara ekki
neitt - hann man það bara ekki. En
hálftíma síðar bönkuðu stelpurnar
upp á á skrifstofu Austurgluggans
og færðu honum ágóðann - 1640
Anna Jórunn Sigurgeirsdóttir og Steina
Gunnarsdóttir héldu tombólu til styrkt-
ar Austurglugganum á dögunum.
krónur - og ritstjórinn varð kjaft-
stopp en líkast til heyrir það til und-
antekninga að krakkar haldi
tombólur til að styrkja fjölmiðla.
Ekki hefur enn verið tekin á-
kvörðun um í hvað peningarnir eiga
að fara en umfram allt er starfsfólk-
ið bæði ánægt og undrandi enda,
eins og áður sagði, á þetta sér ef-
laust ekki mörg fordæmi.
18.-21. nóvember 2004
Landsvirkjun
Ferðamálaráð íslands
tweHimfsiAmi:
K8 8ANKI
Samkaup Jutr\/al
Að lokum?.
Vegna viðtals er undirritaður átti
við ágætan blaðamann Austurgl. hér
á dögunum hefur hann orðið þess á-
skynja að viðkvæmni sumra sveitar-
stjórnarmanna hér austur með fjörð-
um ristir dýpra en hann hefði grun-
að. Það var hinsvegar ekki ætlun
mín að særa nokkra sálu í þessu
spjalli mínu. Miklu fremur langaði
mig að lýsa í stórum dráttum hvern-
ig hin ýmsu mál sem hafa verið í
deiglunni á síðustu mánuðum hér á
Austurlandi, horfðu við undirrituð-
um héðan úr jaðarbyggðinni Djúpa-
vogi ásamt persónulegri upplifun
hans á dæminu. Ég tek það fram að
þessar hugrenningar rnínar, lýsa ein-
ungis minni persónulegu skoðun og
hafa ekkert með afstöðu sveitar-
stjórnar Djúpavogs að gera.
Ég bið aðstandendur hér austan
við mig auðvitað afsökunar ef ég
hef leyft mér að láta hugann reika
aðeins of mikið um þær fram-
kvæmdir sem nú eiga sér stað á
miðsvæði Austurlands og tilfinn-
ingu mína fyrir því hvernig ég tel að
ýmis mál muni þróast samhliða
þeim. Ég átti eftir á að hyggja auð-
vitað að vita að þetta eru friðhelg
mál.
Ég tek hinsvegar ofan fyrir Eið
Ragnarssyni sveitarstjórnarmanni í
Fjarðarbyggð þegar hann talar í
svargrein sinni til mín um að þaö sé
óþolandi þegar einstakar sveitar-
stjórnir á Austurlandi séu að álykta
þvert á samþykktir aðalfunda SSA í
samgöngumálum.
Nýleg ályktun Austurbyggðar um
þjóðveg 1 með fjörðum er auðvitað
nærtækasta dæmið um hvað sveitar-
stjórnir geta gengið langt í því að
fara á svig við þær samþykktir í
samgöngumálum sem gerðar hafa
verið á vettvangi SSA. Samhliða
kaus oddviti Austurbyggðar að lýsa
því yfir að þeir sem væru á móti
þjóðvegi 1 um firði væru ekki að
vinna sem sveitarstjórnarmenn.
Þetta eru vinnubrögð þeirra sem
barist hafa fyrir þjóðvegi 1 um firði,
þeir hafa samþykktir aðalfunda SSA
að engu.
Ég vil hinsvegar þakka Eið
Ragnarssyni fyrir að svara hugrenn-
ingum mínum.
Hann lofar Axarveginn í öðru
orðinu og viðurkennir fuslega mikil-
vægi hans, en í hinu telur hann hins-
vegar að við eigum að vera fullkom-
lega ánægð með hvað við Djúpa-
vogsbúar höfum fengið rnikið fram
á vettvangi SSA í samgöngumálum.
Þetta segir Eiður, sem manna best
ætti að vita að þær ályktanir hafa
skilað sáralitlum sem engum ár-
angri, frekar en aðrar samþykktir í
samgöngumálum hér á svæðinu í
kringum Djúpavog. Axarvegur væri
hinsvegar án efa beinn og breiður
vegur í dag ef andspyrnuhreyfingin
hefði ekki unnið jafn mikið á móti
honum á síðustu árum og raun ber
vitni.
í síðustu ökuferð sinni um Öxi
þurfti undirritaður að bíða í klukku-
stund meðan þrír stórir flutningabíl-
ar með tengivagna lokuðu veginum,
þar sem þeir áttu í erfiðleikum
vegna hálku. Eiður heldur því engu
að síður fram að vörubílar keyri
ekki yfir Öxi.
Hin mikla þungaflutningaumferð
um Öxi i dag í misjafnri færð sýnir
auðvitað íyrst og fremst hvað vöru-
flutningabílstjórar eru tilbúnir að
leggja á sig til að stytta sér leið.
Að síðustu félagi Eiður, þá hef ég
aldrei fyrr verið sakaður um að tala
undir rós, eins og þú kaust að segja
að ég hafi gert í viðtali við blaða-
mann Austurgl. Það er a.m.k ekki
að merkja af viðbrögðum ýmissa
viðkvæmra sála undanfarinna daga í
minn garð að ég hafi farið dult með
skoðanir mínar.
Andrés Skúlason
1962-2002
Austfjarðaleið
477 1713