Austurglugginn - 18.11.2004, Qupperneq 8
8
AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 18. nóvember
Spurning
vikunnar
Hver á afmæli í dag?
Spurt á Balaborg á Degi
íslenskrar tungu
Jónína Guðný Jóhannsdóttir
Ég veit það ekki
Eyþór Ármann Jónasson
Ég man það ekki
Magnea María Karlsdóttir
Ég veit það ekki
Friðrik Július Jósefsson
Viktor Breki
Þessi litla stúlka heitir Berglind og
fæddist 29. apríl sl. á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað. Hún vó
3050 gr. og var 51 cm. að lengd. For-
eldrar hennar heita Andrea Borg-
þórsdóttir og Sigurður Kristjáns-
son. Hún á fjóra bræður og er fjöl-
skyldan búsett á Reyðafirði. Á mynd-
inni er hún með pabba sínum.
MANNLÍFIÐ
Austfirskir bankastarfsmenn
slá í gegn!
Útibú Landsbanka íslands í Nes-
kaupstað, Eskifirði og Hornafirði
röðuðu sér í þrjú efstu sætin í þjón-
ustumælingu sem bankinn fram-
kvæmir með „hulduheimsóknum"
reglulega. Þá koma „huldumenn" í
bankana og meta þjónustuna sem
starfsmenn veita, gæði hennar og
svo auðvitað viðmót starfsmanna.
Útibúið í Neskaupstað varð efst en
Eskfirðingar voru í öðru sæti og
Hornfirðingar í því þriðja ásamt
Sauðkræklingum.
Hjörvar 0. Jensson, útibússtjóri
Landbankans Islands i Neskaupstað,
var að vonum ánægður með sigur-
inn. Hann sagðist vera „stoltur af
stelpunum,“ líkt og hann orðaði það.
„Já, auðvitað er maður ánægður með
þær enda var, að ég held, fyrst og
ffemst verið að dæma þær,“ sagði
Hjörvar. „Maður er eiginlega yfir sig
ánægður,“ sagði Hjörvar montinn.
A meðfylgjandi mynd sjást starfs-
menn útibúsins í Neskaupstað ásamt
bikar sem þau hlutu fyrir vikið. Frá
vinstri: Björk Rögnvaldsdóttir,
Hjörvar Jensson, María Hafsteins-
dóttir, Freydís Sölvadóttir og Hanna
Frederiksen.
Forvitni Eskfirðinga ekki svalað:
Ekki einu sinni spákonan
veit hvað Emil hyggst fyrir!
Margir Eskfirðingar velta því nú fyrir sér hvað
Emil Thorarensen, fyrrum útgerðarstjóri Eskju
ætli sér að gera en hann lét af störfum hjá fyrir-
tæki fyrir nokkru eftir margra ára farsælt starf.
Forvitni margra er það mikil að þeir hafa haft
samband við Austurgluggann og spurst fyrir um
framtíðaráform Emils og virðist þessi óvissa
vera nær óbærileg fyrir suma. Austurglugganum
er ekkert óviðkomandi og sló því á þráðinn til
Emils og spurði einfaldlega: Hvað ertu að fara
gera, Emil?
Útgerðarstjórinn fyrrverandi varðist allra
fregna en hann vissi að fólk hefði mikinn áhuga
á sér og sínum áformum. „Eg hef ekki tekið
neina ákvörðun en þá enda er ég bara nýhættur
hjá fyrirtækinu,“ sagði hann og bætti við: „Eg er
að fara núna til Reykjavíkur og ætla að taka því
rólega."
„Ertu að flytja suður,“ spurði blaðamaður.
„Nei, allavega ekki í þessari ferð,“ svaraði
Emil eldsnöggt og hafði ekkert meira um málið
að segja. En Austurglugginn gafst ekki upp og
hafði upp á spákonu Eskfirðinga, henni Guðríði
Valdimarsdóttur, og spurði hvort hún vissi um
fyrirætlanir Emils. Svo var þó ekki. „Nei, ég er
meira að spá í spil og bolla og get ekki séð fyrir
um svona hluti,“ útskýrði hún og svaraði því að-
spurð að Emil hefði ekki haft samband við hana
til að fá bollaspá. „Ég er viss um að hann ætlar
sér bara eitthvað betra,“ sagði hún svo. „Emil er
duglegur maður og getur gert ýmislegt. Ég trúi
því samt ekki að hann sé að fara suður.“
Ljóskastarinn
wmmmmmmmmmmmmmm.
Enginn veit hvað Emil Thorarensen fyrr-
um ótgerðarstjóri Eskju ætlar að gera.
Svo virðist sem Spaugstofan
hafi hitt naglann á höfuðið þegar
hún sló því fram að ekki væru
mikil tengsl á milli nöldurkirtils-
ins og minnisstöðvanna í íslend-
ingum því samráð olíufélganna
virðist nú að mestu fallið í
gleymskunnar dá. Þjóðin nöldraði
og gleymdi. Af því tilefni er stað-
ur vikunnar að þessu sinni bensín-
dælan. Við hana var þjóðin - al-
menningur og fyrirtæki - féflett
um margra ára skeið. Það vissu
það allir en enginn gerði neitt t því
fyrr en Samkeppnisstofnun tók af
skarið. Annað slagið heyrðist eitt-
hvað nöldur í þá veruna að
kannski væri ekki allt með felldu,
en olíufélögin settu upp geilsa-
baugana og kórdrengjasvipinn og
kváðust saklaus af öllum ávirðing-
um. Bensíndælan var vopnið í
stærsta ráni íslandssögunnar.