Austurglugginn - 18.11.2004, Síða 9
Fimmtudagur 18. nóvember
AUSTUR • GLUGGINN
9
EFNIÐ F ANDINN
Hallfríður Bjarnadóttir, leiðbein-
andi i félagsstarfi aldraðra
á Reyðarfirði er matgæðingur
vikunnar að þessu sinni.
M
ATGÆÐINGUR
VIKUNNAR
(SSS’’
Jennefdjúdfínýur
1 stk kjúklingur
1 1/2 tsk salt
1 1/2 tsk fennel
1/4 tsk pipar
fylling
2 ristaðar brauðsneiðar
2 egg
1/2 laukur, saxaður smátt
1/4 tsk salt
örlítill pipar
1 tsk fennel
sósa
1/2 I vatn eða soð
maisenamjöl
salt og fennel eftir þörfum
Hiti 180°C
Tími 1 1/2 klst.
Egg í fyllingu eru hrærð í skál ásamt kryddi, brauðið skorið í bita
og sett saman við ásamt lauk. Kjúklingurinn er þerraður, fylling sett
í hann og hann kryddaður.
Settur í eldfast mót og steiktur. Meðlæti að hætti heimilisfólks.
Fennel-fennikka, ekki hefur verið hægt að sameinast um íslenska
nafnið á þessu Ijúffenga grænmeti sem líka fæst þurrkað eins
og notað er í uppskriftinni.
‘Jnmstítsafat
1 dl olía
1/2-1 msk vínedik
1/2 dl vatn
sinnep
(sykur)
örlítið salt og pipar
harðsoðið egg
Allt nema eggið er hrist saman í krukku, eggið er stappað með
gaffli og blandað út í. Hellt yfir saxað grænmeti t.d. hvítkál, gúrkur,
tómata og jafnvel einhverja ávexti og annað það sem heimilisfólkinu
þykir gott. Frakkar setja kaffi út í sinnepið ef þeir eiga ekki gott
bragðbætt sinnep í skápnum og hlutföllin í sósunni eru ekki heilög
heldur gerir eggið útslagið.
Stjörnufji
os
1 bolli sykur
1 1/2 bolli púðursykur
3/4 bolli smjör
2 msk vatn
1 tsk vanilludropar
2 egg
3 bollar hveiti
1 tsk natron
1/2 tsk salt
súkkulaði t.d piparmyntuplötur, hnetu eða möndlubitar.
Hiti 190°C, tími ea 15 mín.
Deigið er hrært og síðan látið bíða í 2 klst. Mótað með teskeið,
súkkulaði sett á kökuna og henni rúllað á milli handanna svo deigið
fari vel utan um súkkulaðið og kakan verði aðeins flöt.
Má setja skrautsykur ofan á.
Hallfríður skorar á Sigriði Gunnarsdóttur á Hárstofu Sigriðar
á Reyðarfirði að vera næsti matgæðingur.
Jarðvist hóf á Jökuldal,
við jórturdýr í ijallasal.
Lifði góðu lífi saklaus drengur.
Er hormónarnir heíja störf
heimsvitundar eflist þörf.
Einatt slitnar átthaganna strengur.
Á gelgjuskeiði gloppóttur.
Góður betri-helmingur,
er sauðskum manni sannarlegur
fengur.
Tæknibylting talsverð var,
að telja klukkustundirnar.
En dagatalið dugði ekki lengur.
Ágætu lesendur!
Þessar ljóðlínur hér að framan
gætu átt við marga af minni kyn-
slóð sem hafa kosið að sjá sér far-
borða fjarri átthögunum. Hugurinn
hvarflar þó oft til æskustöðvanna
og svo var einnig er ég heyrði frétt
sem kom mér nokkuð spánskt fyr-
ir sjónir. Lestarslys voru ekki dag-
legir viðburðir þegar ég var að al-
ast upp í Hrafnkelsdal, en þetta
breytir óneitanlega heildarmynd
samfélagsins.
Þeir hengdu sig í hörðu ári,
hokrarar á Jökuldal.
Hey á þrotum fé í fári.
Fóstrinn hafði ekkert val.
Nú á dögum nýjar leiðir,
njóta sín á dalnum best.
Þar kotbændanna götu greiðir,
að geta stokkið fyrir lest.
Einnig vakti forvitni mína frétt
um að tveir hreintarfar hefðu sést
við Þórisvatn, en þeir fundust ekki
þegar átti að leysa þá undan skyld-
um við náttúru þessa lands. Marg-
ar kenningar hafa verið uppi um
hvað veldur þessu flakki. Mín er
þessi:
Að mökun bæði og meltingunni
snýr,
margvíslegur hreindýranna vandi.
ítalskan ber keiminn kræðan rýr
og kýrnar lykta af Miðjarðarhafs-
hlandi.
Því vilduTuddar vestan Kreppu-
sands,
vænleika í gróðurþekju kanna.
Er þeir litu sveitir Suðurlands,
þeir sáttir fóru heim til ítalanna.
Meint samráð olíufélaganna
hefur verið í kastljósi íjölmiðlanna
að undanfornu og umræðan farið
út um víðan völl. Nýr vinkill á
málið er þessi:
Heiður sinn verja til orðs og æðis,
olíu-samráðs menn.
Sé lagt að jöfnu „ráðs” og „ræðis”,
réttarstaðan batnar enn
Takk fyrir.
Snorri Aðalsteinsson
Edda Björnsdóttir á Miðhúsum, Héraði er í nærmyndinni að þessu sinni en hún stendur
ásamt fjölskyldu sinni að rekstri listiðjunnar Eikar. Eik er listasmiðja þar sem smíðaðir eru listgripir og nytjalist
aðallega úr tré. Nú nýverið opnuðu Edda, Hlynur eiginmaður hennar og Fjölnir Björn sonur hennar sýningarsal í
nýju rými við hlið verslunarhúsnæðis Eikar að Miðhúsum, þar sem skoða má alls kyns skúlptúra og listaverk.
Edda er líka skógarbóndi og hundaeigandi.
Aldur: 53 ára
Kostir: Svo stutt í annan endann
Fjölskylduhagir: Antik- gift sama manni enn, Gallar: Hef skoðun á málefnum líðandi stundar
og hef ekki verið gift áður.
Ætt og uppruni í stuttu máli: Borinn og barnfæddur
Eskfirðingur í alla liði, og á engin ættmenni sem eru fræg að
endemum nema Sturlungar, Páll Ólafson og fleiri ölkærir menn.
Starf: Vantar vinnu en hef titilinn skógarbóndi
Uppáhalds-bókin: Íslendingasögur/Austfirðingasögur
-platan: Út um víðan völl
-kvikmyndin: Undur hafsins
Mottó: First we take Manhattan.............
Það neyðarlegasta sem þú hefur lent í: Þegar mér og félaga
mínum var hent út af þingflokksfundi Alþýðuflokksins sáluga I
Grafskrift að eigin vali: Engin, því þá er ekkert gaman
að grafa upp eftir þúsund ár!