Austurglugginn - 18.11.2004, Síða 11
Fimmtudagur 18. nóvember
AUSTUR • GLUGGINN
11
IÞROTTA í FRETTIR
Yngri flokka mót Blaksambands íslands
á Ólafsvík:
Verðlaun fyrir
prúðmannlega
framkomu
Blakið:
Sex stig til KA
Þróttar frá Neskaupstað fóru til
Ólafsvíkur um síðustu helgi.
Mótið var stórt og stóðu Þróttar-
ar sig með ágætum.
Það voru Þróttarar frá Nes-
kaupstað sem fyrstir komu á
staðinn með þrjátíu manna hóp
keppenda og fjóra fararstjóra og
þjálfara. Strax við komuna, eftir
tólf tíma ferðalag vöktu okkar
krakkar athygli mótshaldara fyrir
ljúfmannlega framkomu og glað-
værð. Norðfirsku keppendurnir á
þessu móti sýndu af sér prúð-
mannlega framkomu, samheldni
og jákvæðan anda jafnt innan
sem utan vallar. Ekki skorti held-
ur á baráttuandann í leikjunum,
eins og úrslitin gefa ótvírætt til
kynna.
Mótið var stórt, 50 lið kepptu í
4 flokkum og samtals 11 deild-
um. Ólafsvíkingar eiga hrós skil-
ið íyrir skipulag, því allt gekk
þetta ljúfmannlega fyrir sig og
eftir að búið var að slípa smá-
hnökra sem vart var við fyrri
daginn, stóðst tímaáætlunin mjög
vel síðari daginn. Mat fengu
krakkarnir í skólanum þar sem
flestir gistu, bíóferð, sund og
safnaskoðun stóð til boða þeim
sem vildu og máttu vera að og á
laugardagskvöldinu var matur í
félagsheimilinu með miklu stuð-
balli á eftir, þar sem keppendurn-
ir og fararstjórarnir, alls um 350
Fram hefúr komið í fréttum að
Reyðfirðingurinn Snær Seljan
Þóroddsson dvelur nú í Japan og
stundar þar júdó af kappi og
stefnir að því að ná svarta belt-
inu. Hann hefur þegar náð því
brúna sem þykir einstakur árang-
ur á þessum stutta tíma sem hann
hefur stundað íþróttina.
Auk þess að æfa júdó kennir
hann ensku og alþjóðafræði
ásamt þjálfara sínum sem er Jap-
ani. Einnig kynnir Snær glímuna
við öll tækifæri og hefur komið
fram í ljölmiðlum í tengslum við
glímusýningar og þykir Japönum
glímubúningur okkar íslendinga
minna helst á Súpermann búning.
manns, troðfylltu gólfið frá upp-
hafi fyrsta lags.
Arangur Þróttara var mjög
góður:
5. fl. I. deild 2. sæti
5. fl. 2. deild 1. sæti
5. fl. 3. deild 3. sæti
4. fl. Þróttur a 1. sæti og Þróttur b
3. sæti.
3. fl 1. sæti (miklir yfirburðir)
2. fl 1. sæti ( þess ber að geta að
í þessum flokki kepptu tvö
stúlknalið og 3 piltalið en okkar
lið var skipað einum leikmanni
sem telst til annars flokks, en
hinum úr 3. flokk, allt stúlkur).
Af þessu má ljóst vera að
Þróttur á góða möguleika á titl-
um ef vel er á málum haldið.
Krakkarnir verða hins vegar að
halda vel á spöðunum til að svo
megi verða. Það er augljóslega
mjög vel haldið utanum þjálfun
hjá mörgum félögum. Reyndar er
stór hluti þjálfaranna blakarar
sem ólust upp í Þrótti Neskaup-
stað. Þegar þjálfararnir voru á
tæknifundi fýrir mótið kom í ljós
að helmingurinn voru Norðfirð-
ingar eða fyrrverandi Norðfirð-
ingar.
Hópurinn fékk við mótsslit sér-
stök verðlaun, bikar, fyrir prúð-
mannlega framkomu innan vallar
sem utan og sérlega skemmtileg-
an og góðan baráttuanda á velli.
Austurglugginn ræddi við föð-
ur Snæs, Þórodd Helgason skóla-
stjóra á Reyðarfirði, og hann seg-
ir strákinn hafa það gott þó menn
verðir vissulega fyrir hnjaski á
þessum æfingum. Það er mikill
agi í þjálfúninni og æfir Snær
fimm sinnum í viku. Á bloggsíðu
kappans (www.folk.is/big_in
japan) sést þetta glöggt. Þar seg-
ir m.a.
„Eg var ad slast vid Garyba a
golfinu tegar eg fekk hned i
faceid [andlitið] og puff! brak-
hljod daudans! En nefid slapp al-
veg tannig ad eg er bara med
brakad nef sem betur fer. Stund-
um er ekki gott ad vera med stort
nef godir lesendur.”
Þróttur tapaði báðum leikjum
sínum við KA í 1. deild kvenna um
þar síðustu helgi. Báðir leikirnir
fóru 0 - 3, og festu KA enn frekar
á toppi deildarinnar. Hrinurnar
fóru 7-25, 13-25 og 17-25. í seinni
leiknum 18-25, 15-25, og 17-25.
Ekki er hægt að segja að fyrri
leikurinn hafi verið neitt augna-
yndi. Þróttarliðið yfir sig stressað,
enda helmingur liðsins stelpur úr
3. flokki og tvær eiga 2 ár eftir þar.
Leikreynslan er því ekki mikil en
þetta lið á eftir að gera góða hluti,
en mér finnst ekki hægt að skrifa
öll mistökin á reynsluleysi eða
stress.
Það var helst móttakan sem var í
molum í fyrri leiknum en mun
skárri í þeim síðari og allt spil liðs-
ins heilsteyptara og ákveðnara.
Ekki er hægt að hrósa neinum sér-
stökum í fyrri leiknum nema þá
uppspilaranum, Kristínu Salínu
Þórhallsdóttur og hún ásamt Jónu
Guðlaugu Vigfúsdóttur stóðu upp-
úr í seinni leiknum. Það er haft á
orði að þvílíkt uppspilaraefni sem
Kristín Salín er hafi ekki sést áður
á þessum aldri hér á Iandi. Það er á
færi fárra að spila boltanum í loft-
inu sem hún gerir og hún hefur
ótrúlega yfirferð.
I liði KA var Birna Baldursdótt-
ir sem fyrr besti liðsmaðurinn.
Hún fékk 12 stig í fyrri leiknum og
17 í þeim síðari, af þeim voru 8
eða 9 stig úr laumum, sem komu
Þróttarliðinu æ ofan í æ í opna
skjöldu. Sigurveig og Villý voru
með 5 stig hvor úr fyrri leiknum
og Jóna Guðlaug 13 stig í seinni
leiknum.
Þann 7. nóvember sl. hélt Golf-
klúbbur Norðfjarðar mót á golf-
vellinum á Norðfirði, grænanes-
velli. Gárungarnir kölluðu mótið
„Byltingarmót GN” en Rússneska
byltingin hófst þennan dag fyrir
margt löngu. Mótið fór fram í
skemmtilegu veðri við góðar að-
stæður sem kannski er hálfgerð
bylting svo seint á árinu.
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir i hávörn
Þróttarliðið án reynsluboltanna
Sigurveigar Róbertsdóttur, Jónu
Lindar Sævarsdóttur og Þorbjargar
Olafar Jónsdóttur væri ekki neitt.
Þessar ungu konur eru límið í lið-
inu og eiga þakkir skildar fyrir
þeirra hlutverk.
Dómarar í fyrri leiknum voru Ó-
lafur H. Sigurðsson og Sigurjón
Egilsson og í seinni leiknum Mig-
lena Apostolova og Jóna Harpa
Viggósdóttir, sem ég hefði frekar
viljað sjá í Þróttarliðinu, en dóm-
Þátttakendur voru fimmtán frá
félögum ffá Norðfirði, Eskifirði
og Fljótsdalshéraði og úrsiit þau
að í fyrsta sæti varð Eysteinn
Gunnarsson GN á 43 punktum í
öðru varð Hjörvar O. Jensson GN
á 37 og í þriðja Bjarni Ólafur Birk-
isson GN á 36 punktum. Nándar-
verðlaun hlutu Þór Hauksson og
Viðar Hannes Sveinsson báðir í
GN.
gæslan var góð hjá öllum þessum
dómurum.
Næstu leikir Þróttar í 1. deild
verða við HK og Fylki fyrir sunn-
an.
Það verður að koma því á fram-
færi að að það er óþolandi að ekki
skuli vera gert við stigatöfluna í í-
þróttahúsinu eða tölvuna sem
henni fylgir. Að notast við spjöld á
borði ritara er alveg ótækt.
Til
íþrótta-
frömuða
Til að Austurglugginn
geti birt fréttir af
íþróttaviðburðum á
Austurlandi, er nauðsyn-
legt að þeir sem fyrir
mótum og öðru slíku
standa, láti okkur vita
þegar eitthvað er í bí-
gerð, tilkynni úrslit og
jafnvel sendi stafrænar
myndir. Þetta má allt
senda á netfangið
bvg@agl.is eða hringja í
477 1755.
Snær Seljan er „stór í Japan"
Glímubúning-
urinn minnir á
súpermann
Eg-
Snær Seljan, glímukappi á Reyðarfirði æfir af kappi i Japan um þessar mundir.
Hann kemur að öllum likindum heim um áramót.
Byltingaraf-
mælismót GN