Merkúr - 01.09.1939, Page 21

Merkúr - 01.09.1939, Page 21
19 frjálsu kjörnámi, hefur beínsí í sömu átt og komið ýms- um i góðar þarfir, þó að eðlilega hafi hún ekki haft eins \ íðtæk áhrif og nám hinna málanna. Kensla skólans í hókfærslu og ýmsum þáttum viðskifta- fræðinnar hefur einnig haft ótviræð áhrif i þá átt, að gera viðskiptalifið og daglegan rekstm- þess skipulegan og ör- uggan. Verslunarskólinn er fyrsti íslenski sjerskólinn, sem stofnaður var fvrir verslunarfræði. Vrerkefni lians er ávalt fvrst og fremst sjermentun verslunarmanna. Á seinustu árum hefur ennfremur verið lögð vaxandi áhersla á það, sem til var ætlast frá upphafi, að gera al- níenna mentun verslunarmanna sem besta og mesta, svo að þeir gætu staðið jafnfætis öðrum stjettum þjóðfje- lagsins, sem besta undirbúningsmentun fá. Af þessu hefur skólatíininn einnig lengst, upp í fjögur til fimm ár, auk framlialdsdeildar, og' það færist mjög í vöxt, að nemendur komi í Verslunarskólann að loknu gagnfræðaprófi ann- ars staðar, taki viðbótarpróf í verslunargreinum skólans og sitji þar síðan í tvö ár til fullnaðarprófs, eða lengur, ef þeir fara í framlialdsdeild. Verslunarskólinn tók sem sje upp þá nýbreytni haust- ið 1933, að stofna framhaldsdeild fyrir þá, sem lokið höfðu hinu fvrra fullnaðarprófi. Þetta var fvrsta tilraunin, sem lijer var gerð til þess að koma á innlendri verslunarfræðslu á svipaðan liátt og annars staðar tíðkast i verslunarhá- skólum. Kend voru tungumál og ýmsar greinar hagfræði og viðskiftafræði, með yfirlieyrslum, æfingum og fyrir- lestrum, eins og sjá má i skólaskýrslum. Skólinn hefur viljað leggja áherslu á það, að koma kenslu sinni og allri fræðslu og fjelagslífi sem haganleg- ast fyrir og svo, að sem bestur árangur næðist á þeim tíma, sem fært liefur þótt að lieimta til námsins. Nýtt skóla- hús hefur verið keypt og nokkur ný kenslutæki, og reynt hefur verið að hæta aðhúnað allan eftir föngum. Samt er skólanum það ljóst, að enn stendur margt til hóta og ver 2*

x

Merkúr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Merkúr
https://timarit.is/publication/1691

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.