Merkúr - 01.09.1939, Blaðsíða 47
45
Eftir því, sem nú er á vikið tekst fjelagið ekki á hendur
að senda spönsk skip til íslands, þó það oft liafi verið iivatl
til þess, fyr en það liefir fengið vissu um, að það verði ekki
aftur á tálar dregið með illum vörum.
Fjelagið lýsir yfir þvi, að saltfiskur sá, sem ætlaður er
Katalóníu, verður að vera vel harður og þur, livítur að
lit, sljettur, en þó eigi of djúpt flattur; i honum mega ekki
heldur vera ormar, sandur, göt eða rifur, bein nje blettir,
ef nokkur á að kaupa hann.
Að vitnisburði skipstjórnarmanna er fiskurinn á ein-
um stað, þar sem heita Vogar, ávalt mjög slæmur, og sá
fiskur, sem þaðan kemur og borinn er á skip án tilsjónar
þeirra, er farminn senda, veldur því að margir farmar
gefast svo illa, því að á leiðinni spillir vondi fiskurinn
hinum góða.
Barcelona, í stjórn fiskifjelagsins 8. nóvember 1846.
Isdro Moren y Santigosa.
Juan Amat.
Manuel Balort.
Francisco Casanovas.“