Merkúr - 01.09.1939, Side 44

Merkúr - 01.09.1939, Side 44
Brnt úr unrslunarsögu Islands. 93 ára gamalt brjef frá spönskum fiskkaupmönnum. Það loddi lengi við íslendinga, að þeir væru alveg skeyt- ingarlausir uni vöruvöndun. Ilelst lijer lengi sá liugsunar- háttur, að alt væri fullgott í helv. kaupmanninn. Má nú segja, að þeim hafi verið vorkunn, þótt þeir hugsuðu þannig, því að þeir voru sviknir á útlendu vörunni, og hefir því fundist það vera „kaup kaups“ að revna að svíkja líka. En þeir liafa áreiðanlega ekki gert sjer neina liugmynd um það, að með þessu sviku þeir sjálfa sig verst, sviku þjóðina með því að koma óorði á íslenskar vörur erlendis. Verður aldrei hægt að meta það tjón, sem af þessu hefir ldotist, því að jafnvel eftir að vöruvöndun var tekin upp, höfðu erlendir kaupendur ótrú á íslenskum vörum. Hjer skal gefið dálítið sýnishorn af því, hvernig horfði með sölu íslenskra vara fyrir rúmum 90 árum. Ullin seldist á þeim árum aðallega til Svíþjóðar og Englands. Svíar liöfðu þá tekið upp á því, að borga svarta ull sama verði og hvíta, og þess vegna gáfu kaupmenn hjer sama verð fyrir hana. En það var rækilega tekið fram, að íslendingar mættu alls ekki hlanda annari mislitri ull saman við svörtu ullina. En það var eins og við manninn mælt, undir eins og verðið hækkaði á svörtu ullinni, tíndu menn alt, sem til var af grárri og' mórauðri ull saman við liana, svo að hún fell aftur niður í sama verð og mislit ull. Komu þessi vörusvik því þegar niður á Islendingum sjálfum. Af tólg fluttist þá út 2.200 skippund og var þá hátt verð á henni í Danmörku, vegna þess að lítið hafði flust þang- að af þeirri vöru frá Rússlandi. Þó var tólgin svikin, og miklu Ijelegri en tóig frá öðrum löndum og var talin ó- seljanleg ef framboð kæmi annars staðar frá.

x

Merkúr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Merkúr
https://timarit.is/publication/1691

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.