Merkúr - 01.09.1939, Side 53
51
leiðum, bárust lijer til eyrna portugölsku sjómannanna.
Sögur sagðar af æfintýralöndum í fjarlægð, ráðlegging-
ar og hugmyndir um nýjar siglingar og' landafundi rædd-
ar. En æðsta takmark allra sæfarenda þeirra tíma var
það, að finna leið að auðlindum Austurlanda með því
að sigla í vesturátt.
í þessu umhverfi, sem nú liefir verið lýst, lifði Kolum-
bus, og þarna mun liann eflaust hafa fengið hugmyndir
sinar um hinar löngu og æfintýrariku sjóferðir, sem síðar
urðu til þess að gera nafn hans ógleymanlegt. Kolumbus
tekur nú að vinna að hugmyndum sínum um landafundi
í vesturátt, með oddi og egg. Hann byrjar á því að safna
öllum þeim sögum og frásögnum, er hann getur komist
yfir um ný lönd og leiðir, og spyr alla sæfarendur, er
hann hittir, spjörunum úr um þessi efni. Samtímis les
bann alt það, er hann kemst yfir um siglingar fornaldar-
innar. En mesta hjálp fær hann samt hjá lækni einum
frá Florenz, sem jafnframt var frægur stjörnufræðingur.
Hjá lækni þessum fekk Kolumbus kort, þar sem leiðin
lil Indlands, með því að sigla í vesturátt, var sýnd.
Nú þótti Kolumbusi tíminn kominn til þess að hefjast
lianda, og árið 1483 fór hann á fund Portugalskonungs
og tjáði honum fyrirætlanir sínar og óskaði eftir stuðn-
ingi hans. Konungurinn var nú samt ekki á sama máli
og Kolumbus, og vildi ekkert með hugmyndir hans hafa
að gera. Kolumbus sá nú að eitthvað varð nýtt til bragðs
að taka og fór nú úr landi, til Spánar. Á Spáni komst
hann í samband við ýmsa málsmetandi menn, sem böfðu
greiðan aðgang að hirðinni, en þótt hugmyndir hans fengi
hjer nokkuð betri undirtektir en í Portugal, var samt
ekki lalið heppilegt að leggja út í framkvæmd þeirra að
svo stöddu. Loks kom þó að því að Kolumbus náði sam-
komulagi við Spánarkonung. 17. apríl 1492 var undir-
skrifaður samningur sá, er gerði honum fært að hefja
framkvæmdir liugsjóna sinna. Sainkvæmt samningi þess-
um átti Kolumbus að vera ráðandi í löndum þeim og
4*