Merkúr - 01.09.1939, Side 58

Merkúr - 01.09.1939, Side 58
56 á hærra stig en það, að sama aðferðin var notuð til þess að knýja skipin áfram hjá Egyptum hinum fornu 3000 árum f. Kr. og á 15. og 16. öld, er hinir miklu landa- fundir stóðu sem hæst. Aðeins var orðin hjer sú framför, að í staðinn fyrir eitt stórt segl, sem Fönikíumenn notuðu, notuðu landkönnuðir miðaldanna venjulega þrjár siglur á sínum skipum. Seglskipin fóru samt smám sam- an, eftir lok miðaldanna, að verða stærri og vandaðri, og voru þau nú bygð með ýmsu móti, oft með mörgum og stórum siglum. En gagnbreyting verður samt ekki á sviði siglinganna fyr en á 19. öld, að mönnum tókst að nota gufu sem hjálparmeðal til þess að knýja skipin áfram á öldum hafsins. Frá alda öðli hafa menn veitt því athygli, hve gufan býr yfir miklum krafti, og liöfðu þegar í fornöld verið gerðar ýmsar tilraunir til þess að nota þetta afl. Arc- himedes gerði ca. 250 árum f. Ivr. tilraun til þess að nota gufuna í sambandi við einskonar fallbvssu, og fleiri eðlis- fræðingar gerðu ýmsar aðrar tilraunir. Á 17. öld er farið að nota gufuna til þess að lyfta ýmsum þungum hlutum, og verða nú til gufuvjelar af ýmsum gerðum. Höfundur gufiivjelarinnar eins og hún er notuð nú, er talinn James W,att, sem árið 1769 bafði tekist að endurbæta til muna þær gufuvjelar, sem til voru. Þegar mönnum hafði tekist að finna þannig vjel, sem knúð áfram með gufukrafti, gat komið ýmsum blut- um og' vjelum á hreyfingu, leið ekki á löngu þar til reynt var að koma þessari vjel fyrir í skipum, og láta bana hjálpa til þess að knýja þau áfram. Jeg gat þess lijer að framan, að sömu öflin hefðu verið noluð til þess að knýja skipin áfram frá fyrstu tímum og fram á 19. öld, en i þessu sambandi befði mátt geta þess, að í fornöld böfðu menn reynt að finna aðferð til þess að knýja skipin áfram með öðru móti, og er getið um það, að Rómverjar hafi revnt að nota einskouar skófluhjól á skipurn sínum, sem snúið var af handafli. Tilraunir þessar höfðu enga

x

Merkúr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Merkúr
https://timarit.is/publication/1691

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.