Vaka - 01.09.1937, Síða 9
7
ingu þegnanna þannig, a'Ö þeir verði hæfarí til a'Ö dæma
um þessi mál, þar sem aftur á móti öll menntun er undir
einræÖisfyrirkomulagi sniÖin eftir þörfum og stefnu þess
manns, sem með völdin fer, og hins fámenna flokks, sem
á bak við hann stendur.
Enn eitt atriði vil ég drepa á, sem fundiÖ er lýÖræð-
inu til foráttu, og það er hversu þjóðin sé skipt í and-
stæða flokka, sem deili hver við annan og berjist hver
gegn öðrum. Þetta „mikla mein“ á svo að lækna með því
að banna alla flokka nema einn. En til þess að þessi flokk-
ur geti staðizt verður hann að taka af þegnum þjóðfé-
lagsins það frelsi, sem við höfum lært að skoða sem óað-
skiljanlegt þeim yfirburðum, sem hefur manninn upp yfir
skynlausar skepnurnar; það er að segja, frelsi til þess að
láta skoðanir sínar í ljós í ræðu eða riti, frelsi til almennra
fundarhalda um þau vandamál, sem að steðja og frelsi til
myndunar félaga um ýms velferðar- og hagsmunamál
vissra stétta eða hópa innan þjóðfélagsins. Þessi frelsis-
skerðing er framkvæmd í nafni „þjóðareiningarinnar“, og
svo er því trúað, að þannig sameinuð, öguð og skipulögð
með valdi, verði þjóðin fær um að inna af hendi mikil
afrek, sem hefji hana á æðra stig. En þannig öguð og
skipulögð verður hún í raun og veru viljalaust verkfæri
í höndum einvaldans, svo að hann getur att henni út í
allskyns ógöngur, ef duttlungum hans býður svo við að
horfa. Það er bersýnilegt, hve gífurleg hætta lieimsfriðn-
um stafar af slíku þjóðskipulagi. Og það má slá þvx föstu,
að ekkert þjóðskipulag getur heft hugsana- og athafna-
frelsi þegna sinna svo sem að framan greinir, án þess
að biða þess óbætanlegt tjón, er tímar líða.
Það mun án efa vera einhver sannleikur í þeirri miklu
gagnrýni, sem fram hefir komið á lýðræðisskipulaginu. En
þær leiðir, sem einræðisstefnurnar benda á út úr ógöng-
unum, munu allir sjá með dálítilli ihugun, að ekki eru til
frambúðar. Það er samt bersýnilegt, að unnendur lýðræð-
isins verða að standa vel á verði, til þess að fjendum þess
og leiguþýjum þeirra verði ekki unnt að sá sæði illgresis-
ins í hjörtu þegnanna. Það er því nauðsyn, að allir lýð-
ræðissinnaðir menn, hvaða stjórnmálaflokki sem þeir ann-