Vaka - 01.09.1937, Blaðsíða 11

Vaka - 01.09.1937, Blaðsíða 11
9 blaSaskrif andstæðinganna hafa yfirleitt reynzt áhrifarík eöa áhrifasnauö. En mér þykir nauSsyn til bera, að íhuga í stuttu yfir- liti þær árásir, sem lýðræðissinnar hafa orðið fyrir af hálfu róttækra stúdenta á yfirstandandi vetri, og sem hvað eftir annað hafa komið fram í blaðaskrifum þeirra, og skyggnast jafnframt í því sambandi í þeirra eigin barm. UM ÁRÁSIRNAR Á LÝÐRÆÐISSINNA. Eg mun ekki þurfa að íjölyröa um þessa hlið máls- ins. Hin einstaka rógsiðja róttækra á hendur okkur lýð- ræðissinnum, sérstaklega í sambandi við kosningar í stúdentaráðið í haust, hefir sýnilega ekki safnað um sig unnendum innan Háskólans. Stúdentarnir hafa líklega ekki orSiö eins varir viS „ómenninguí! og „siðleysi“ okkar lýSræðissinna og þeir Ragnar Jóhannesson og Karl Strand virðast vera í dálk- um Nýja stúdentablaSisns, málgagni félags róttækra. Enn virSist ekki tiltæki róttæka félagsms, aS velja ný- svein nokkurn til að rita sorpgrein um lýÖræðissinna í Stúdentabla'ðiö i. des., hafa vakið mikla a'ðdáun stú- denta, nema að því leyti, að á grein þessa mun almennt litiS sem kátbroslegt sýnishorn þess, hversu dæmalaust langt sumir menn geta látið aka sér út í ógöngur fyrir einskæran hégóma. Því aS vísu þykir sumum gaman aS láta sín getiS og sjá nafn sitt á prenti — en hvernig gat sá piltur, sem hlut á aS máli, meS nokkru móti gert því skil, aS rita um „stúdentana og stjórnmálin“ — nýkom- inn inn í Háskólann og þvi alókunnugur öllum pólitísk- um staSháttum þar? Svo aS horfiS sé frá aSferðinni og sjálfum málflutn- inginum í skrifum róttækra, sem er með þeim hætti, aS eg tel mér ekki samboSið aS gera þá hliðina sérstaklega að umtalsefni, er rétt aS athuga nokkuð ívafiS og uppi- stöðuna i áfellisdómum hinna „hreinlunduðu, frjálslyndu menningarvina“. Þá er fyrsta og síðasta „grílan“ þetta, aS í rauninni * 4

x

Vaka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vaka
https://timarit.is/publication/1693

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.