Vaka - 01.09.1937, Side 16
34
BÁKÐUR JAKOBSSON, stud. jur.:
Sambandsmálið.
Á almennum stúdentafundi, er fél. lýÖræðissinna'ðra stú-
denta, „Vaka“, gekst fyrir, var sambandsmálið á dag-
skrá. ÞaÖ þótti þvi rétt, að gera því máli nokkur skil
í þessu riti. AÖ vísu er „Vaka“ sem heild ekki á einu máli
um, hvernig leysa beri málið. f Vöku eru menn, er fylgja
þeim pólitísku flokkum, er talizt geta lýðræðisflokkar, en
þeir eru, sem kunnugt er, ekki ásáttir um, hversu fara
skuli um samband Islands og Danmerkur. Það veröur
þvi í þessari grein a'ðeins gerð tilraun til að benda á það,
sem varhugaverðast þykir í sambandslögunum, en þau
eru, að því er virðist, lítt kunn með þjóðinni, og ætti
þó hver fulltíða íslendingur að vita á þeim nokkur deili,
svo mikilsvert sem sambandsmálið er hinni islenzku þjóð.
Hinsvegar verður ekki beint farið út í það, að gera kröfu
til ákveðinnar stefnu í sambandsmálinu, þar sem slík krafa
getur naumast stuðst við einhuga fylgi þess flokks stú-
denta, er stendur að þessu riti.
I.
Forspil sambandsmálsins var þetta í stórum dráttum:
Islendingar voru farnir að gerast ærið háværir í kröf-
kvæmilega skapa innan félags róttækra, eins og nú er
högum háttað, og beinlínis hljóta að draga ákveðinn hluta
þessarar „samfylkingar“ niður í ábyrg'Sarleysi þess ó-
sjálfsföeSis gagnvart kommúnistunum, sem er í senn
andstyggilegt og álitsspillandi í augum, allra þeirra, sem
vilja hugsa málið frá hlutlægu sjónarmiði.
Verður með engu móti réttlætt framkoma nokkurs lýð-
ræðisunnanda eða borgaralega hugsandi stúdents, sem
sverst í fóstbræðralag og félagsskap við þau öfl þjóðfé-
lagslegrar eyðileggingar, sem í hinum byltingarsinnaða
kommúnisma felast.