Vaka - 01.09.1937, Page 19
17
Islendingum, heldur og hafið í kringum það. Hafið er
fjöregg þjóðarinnar, að minnsta kosti eins og nú standa
sakir. Danir geta átt greiðan aðgang að þeirrí auðsupp-
sprettu, og það því fremur, sem búsetu i landinu sjálfu
er ekki krafizt, og geta þeir því stundað þá atvinnu hér
við land, án þess að Island njóti nokkurs við það.
Raddir munu hafa heyrzt meðal Dana, um að notfæra
sér betur þetta ákvæði, en gert hefir verið.
7. grein sambandslaganna heimilar Dönum að fara með
utanríkismál Islands i umboði þess. Það hefir þótt verða
misbrestur á meðferð utanríkismála Islands í höndum
Dana, enda liggur nú fyrir Alþingi, tillaga til þingsálykt-
unar um, að ísland taki utanríkismálin að fullu í sínar
hendur. Er svo að heyra, sem allir flokkar séu ásáttir
um nauðsyn þess, að málið nái fram að ganga, og því
óþarfi að fjölyrða um það hér.
8. grein sambandslaganna er þannig: „Danmörk hefir
á hendi gæzlu fiskiveiða í íslenzkri landhelgi undir dönsk-
um fána(!), þar til ísland kynni að ákveða að taka hana
í sínar hendur, að nokkru eða öllu leyti, á sinn kostnað.“
Því hefir verið haldið fram, að landhelgisgæzlu Dana
hér við land bæri að skoða sem endurgjald fyrir fiski-
veiðaheimild þeirra. Bæði er, að fiskiveiðaréttur Dana
ætti ekki að vera til í núverandi formi, enda er land-
helgisgæzlan hófsöm. Það nægir, að nefna „Fyllu“ og
„Hvidbjörnen“, sem flestir hafa heyrt talað um fyrir
annað, en dugnað við landhelgisgæzluna.
En svo er annað að athuga við þau ákvæði sambands-
laganna, sem nefnd hafa verið og fleiri, og það er það,
að þessi ákvæði eru með öllu ósamboðin frjálsum borg-
urum í frjálsu og fullvalda ríki. Það er naumast hægt
að hugsa sér, að riki sé frjálst og fullvalda, sem leyfir
annari þjóð að eiga með sér landið og hafið í kring, og
lætur annað ríki fara með utanríkismál og landhelgis-
gæzlu, rétt eins og ósjálfráða fáráðlingar væri.
Með ákvæðum sambandslaganna, einkum 7. gr., er og
gerð tilraun til að þess að tryggja eining Islands og Dan-
merkur gagnvart öðrum þjóðum. En það getur verið vafa-
samur ábati fyrir Island, t. d. með tilliti til ófriðar og