Fréttablaðið - 13.10.2022, Síða 1
Samkaup óskuðu eftir
fimm prósenta verð-
lækkun til áramóta hjá
tíu stærstu birgjunum
en fengu afsvar.
2 2 7 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 1 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 2
Hinsegin list á
Nýlistasafninu
Takast á við
kynjahallann
Menning ➤ 24 Lífið ➤ 26
ert þú klár fyrir
bleika daginn?
10% af söluverði af öllum bleikum vörum rennur
til Krabbameinsfélagsins (10. til 16. okt.)
Stoltur söluaðili
Bleiku slaufunnar
Framlag þitt rennur óskipt
til Krabbameinsfélagsins
Sigurður Kristins son, 71 árs Akureyringur sem dvalið hefur á sjúkra húsi á Spáni síðan um miðjan ágúst, lenti á Akur eyri eftir langt sjúkraflug í gær sem fjölskylda hans kostaði sjálf. Sjúkratryggingar
segjast ekki hafa heimild til að kosta flugið heim. Dóttir Sigurðar, Rúna Kristín, segir þungu fargi af þeim létt og besta aðhlynning verði nú að veruleika án tungumálavanda. SJÁ SÍÐU 2 MYND/SKAPTI
Skiptar skoðanir eru meðal
heildsala og smásala á mat-
vörumarkaði um hvort verð
frá erlendum birgjum sé
tekið að lækka en gagnrýni
hefur komið fram á að inn-
lendir birgjar séu tregir til að
lækka verð.
olafur@frettabladid.is
NEYTENDUR Í verðkönnun Verita-
bus á matvöru, sem fjallað hefur
verið um í Fréttablaðinu í vikunni,
kemur fram að talsverður munur er
á verðbreytingum milli einstakra
vöruflokka.
Mjólkurvörur hækkuðu um 2
prósent milli ágúst og október en
brauðmeti lækkaði um 1 prósent.
Kjöt og fiskur hækkaði um 5 prósent
en dósamatur og þurrmatur, sem er
að mestu innfluttur, lækkaði um 1
prósent.
Mest hækkun varð á ávöxtum og
grænmeti, sem hækkuðu um 7 pró-
sent, en drykkjarvörur lækkuðu um
3 prósent og sælgæti og snakk um
2 prósent. Þessir vöruflokkar eru
blanda innfluttra og innlendra vara.
Gunnar Egill Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Samkaupa, segir
fyrirtækið hafa leitað til 10 stærstu
birgja sinna, framleiðenda og heild-
sala, og óskað eftir 5 prósenta verð-
lækkun til áramóta sem yrði að
fullu látin ganga áfram til neytenda.
Enginn þessara birgja sá sér unnt að
koma til móts við Samkaup.
Matarkarfan lækkaði um 3,3 pró-
sent í Nettó og segir Gunnar Egill
það vera fyrst og fremst vegna þess
að þær vörur sem Nettó flytur inn
sjálft hafa lækkað í verði og Nettó
Íslenskir birgjar lækka ekki verð
hafi látið þá lækkun renna til neyt-
enda.
Aðspurður um það hvort heild-
salar nýti erlendar verðlækkanir til
að auka framlegð sína frekar en að
láta þær renna áfram til matvöru-
verslana og þannig til neytenda,
segir Magnús Óli Ólafsson, forstjóri
Innness heildsölu, ekki farið að bera
á lækkunum frá erlendum birgjum.
Í sama streng tekur Sigurður
Reyn aldsson, framkvæmdastjóri
hjá Hagkaupum, sem segir að dregið
hafi úr verðhækkunum og þær hafi
í einhverjum tilfellum stöðvast, en
verðlækkanir ekki farnar að sjást
enn þá.
Á undanförnum árum hefur
komið fram gagnrýni frá smásöl-
unni á að framlegð í heildsölu sé
óeðlilega há, borið saman við smá-
sölu. n
VERKALÝÐSMÁL Við upphaf þings
Alþýðusambands Íslands í gær-
morgun var tillaga lögð fram um
að fresta þinginu í sex mánuði. Til-
lagan var tekin til atkvæðagreiðslu
og studdu 183 þingfulltrúar að þing-
inu yrði frestað.
Tuttugu kusu á móti, þar á meðal
eini frambjóðandinn til forseta
ASÍ, Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari
Eflingar.
Kristján Þórður Snæbjarnar-
son mun sitja áfram sem forseti
Alþýðusambands Íslands. Hann
mun leiða sambandið í komandi
kjaraviðræðum í vetur.
Óvænt vending varð á þinginu
þegar Sólveig Anna Jónsdóttir, Vil-
hjálmur Birgisson, og Ragnar Þór
Ingólfsson, drógu framboð sín til
baka og gengu út. SJÁ SÍÐU 4
Kristján leiðir
kjaraviðræður