Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.10.2022, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 13.10.2022, Qupperneq 6
Formaður svæðisstjórnar Landsbjargar á Austurlandi kveðst hugsi yfir þyrluheim- sókn dómsmálaráðherra í lok september. Landhelgisgæslan segist sinna skyldu sinni og tekur ekki saman kostnað við ferðina. odduraevar@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA „Menn hefðu kannski verið til í að fara heim til sín eftir átökin frekar en að þurfa að fylgja einhverri sendinefnd,“ segir Sveinn Halldór Oddsson Zoëga, formaður svæðisstjórnar Landsbjargar á Austurlandi, sem kveðst hugsi yfir þyrluheimsókn Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra eftir óveður á Austurlandi í lok september. Hann segir stóra málið hins vegar holur í almannavarnakerfinu sem tryggi björgunarsveitum ekki nægilegt fjármagn. Austurfrétt greindi í fyrradag frá því að heimsókn ráðherra hefði farið misvel í heimamenn á Reyðar- firði en aðstoðarmaður hans dró þann fréttaflutning í efa í gær. Sjálf- ur kvaðst ráðherra hafa viljað sjá eyðilegginguna eftir óveðrið fyrir austan með eigin augum. „Væri ekki nær að hæstvirtur ráð- herra girti sig í brók og notaði krafta sína og fjármuni ríkisins frekar í að bæta sjálfboðaliðafélögum og ein- staklingum í björgunaraðgerðum tjón sem ekki er hægt að tryggja sig fyrir?“ spyr Sveinn á samfélagsmiðl- um vegna frétta af þyrluflugi Jóns. Hann segist hugsi og argur yfir gloppum í almannavarnakerfinu sem bregðist sjálfboðaliðum á ögur- stundu. „Ferðin er kannski ekkert stórmál,“ segir Sveinn um þyrlu- ferð ráðherra. „Ég er meira pirraður á almannavarnakerfinu sem getur ekki bætt björgunarsveitum upp tjón eins og Vopnfirðingarnir hafa lent í núna,“ útskýrir Sveinn. Þar vísar hann til frétta af skemmdum á bílum björgunar- sveitarinnar Vopna í óveðrinu í lok september. „Það ber lítið á því að almannavarnakerfið komi til hjálpar og ekki er hægt að tryggja þessa bíla,“ segir Sveinn. „Það er svona hola í kerfinu hjá okkur. Svona björgunarsveit þarf til dæmis núna bara að fara aftur í fjár- öflun vegna bílanna sinna. Búnir að vinna fyrir þessu áður og geta svo ekki tryggt sig. Það er eitthvað aðeins að hjá okkur,“ segir Sveinn. „Þyrluferð til eða frá er kannski ekki aðalmálið. En ég veit að menn hefðu kannski verið til í að fara heim til sín eftir átökin frekar en að þurfa að fylgja einhverri sendinefnd eftir um bæinn sama dag,“ segir Sveinn. „En það er svo sem alveg jákvætt líka að menn kynni sér málin og sýni þessu áhuga en menn geta verið missáttir við framkvæmdina á því og tímasetningar, þó að það sé ekki stóra málið.“ Í svari sínu við fyrirspurn um kostnað vegna þyrluflugs ráðherra segir Landhelgisgæslan að kostn- aður við þyrlusveitina sé metinn á ársgrundvelli en ekki eftir einstaka verkefnum. Vegna ofsaveðursins sem gekk yfir austanvert landið í lok septem- ber hafi verið f logið með fulltrúa almannavarna, Slysavarnafélags- ins Landsbjargar, Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra og aðstoðar- mann hans austur á firði þann 26. september til að skoða aðstæður í kjölfar óveðursins. Þá segir Gæslan í svari sínu að aðstoð við almannavarnir sé eitt af lögbundnum hlutverkum Gæsl- unnar. Þannig hafi hún í gegnum tíðina f lutt fulltrúa stjórnvalda, almannavarna, björgunarsveita og annarra viðbragðsaðila á vettvang náttúruhamfara. Segir í svarinu að þennan dag hafi tvær björgunarþyrlur og tvær þyrluáhafnir verið til taks. Önnur þyrlan var til taks í Reykjavík og hin á Egilsstöðum þann tíma sem áhöfnin beið á meðan fulltrúar almannavarna, Landsbjargar og stjórnvalda kynntu sér aðstæður á hamfarasvæðinu. Þá segir Gæslan að hvert og eitt verkefni sé metið hverju sinni og umrætt verkefni hafi fallið undir eitt af lögbundnum verkum Gæslunnar. n Lögreglan á Norður- landi eystra hefur fengið viðbótarmann- skap til að rannsaka manndrápsmálin tvö. Það er svo sem alveg jákvætt líka að menn kynni sér málin og sýni þessu áhuga. Sveinn Halldór Oddsson Zoëga, hjá Landsbjörg stofnhus.is Kuggavogur 26 Opið hús 15. og 16. október Glæsilegt fjölbýlishús með fallegri náttúru allt um kring Kl. 13:00-17:00 Segist hugsi yfir þyrluferð ráðherra til Reyðarfjarðar Landhelgisgæsl- an flaug með ráðherra austur samkvæmt lögbundnum skyldum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK jonthor@frettabladid.is helenaros@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Skotárásarmálið á Blönduósi er enn til rannsóknar hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Beðið er eftir niðurstöðum úr rann- sóknum sem varða til að mynda DNA-sýni. Þetta staðfestir Eyþór Þorbergs- son, varasaksóknari hjá lögreglu- embættinu á Norðurlandi eystra. Hann segir sýnin hafa verið send til Svíþjóðar, og nú bíði lögreglan eftir niðurstöðunum. Ekki er vitað hvenær þeirra sé að vænta, það velti á því hversu mikið sé að gera hjá Sví- unum. Varðandi rannsókn lögreglunnar á meintu manndrápi í Ólafsfirði segir Eyþór rannsókninni miða vel, og að hún snúist að miklu leyti um að skoða og útiloka mögulegar sviðsmyndir þess sem átti sér stað aðfaranótt mánudagsins þegar maður á fimmtugsaldri lést í íbúð í bænum. Aðspurður hvort ekki sé óvana- legt að embættið rannsaki tvö mál er varði mögulegt manndráp á sama tíma, svarar Eyþór játandi. Þá segir hann að vissulega hefði lögreglan gott af meiri mannskap á tímum sem þessum. Staðan verði til þess að lögreglan eigi erfitt með að sinna öðrum málum eins vel og vera mætti. „Við gætum alltaf notað f leiri hendur,“ segir Eyþór, sem bendir þó á að embættið hafi fengið einhvern viðbótarmannskap. n Bíða niðurstaðna Blönduóssmáls og sviðsmyndir frá Ólafsfirði skoðaðar bth@frettabladid.is MENNING Svo virðist sem aðgerða- sinnar sem kalla sig A group of No Borders activists, bands and artists from Reykjavik Iceland, hafi dregið til baka fyrri kröfu um að tónlistar- fólk sniðgangi Iceland Airwaves- hátíðina þetta árið. Krafa um verkfall og sniðgöngu var sett fram í ljósi þess að Ice land- air, helsti bakhjarl hátíðarinnar, flýgur reglulega með hælisleitendur nauðuga í brottvísunarmálum. Í nýjum pósti aðgerðasinna sem Fréttablaðið hefur undir höndum er haldið við þá kröfu að Icelandair hætti samstundis þátttöku í brott- vísunum f lóttafólks og hælisleit- enda. Hins vegar er ekki hvatt til sniðgöngu eða verkfalls en Ice land- air áfram gagnrýnt. „Á meðan íslensku ríkisstjórninni tekst ekki að innleiða manneskju- legra löggjöf og hætta brottvís- unum, þá trúum við því að sam- félagið getið knúið á um breytingar – Icelandair gæti orðið að fyrirmynd í þessu,“ segir í póstinum. „Það eru nú þegar dæmi um alþjóðleg f lugfélög sem þvertaka fyrir að taka þátt í brottvísunum. Icelandair hefur því tækifæri til þess að sýna gott fordæmi fyrir mikil- vægum og þörfum breytingum,“ segja aðgerðasinnar. n Draga heldur í land vegna Airwaves Aðgerðasinnar höfðu hvatt til verk- falls og sniðgöngu á hátíðinni. Óvíst er hvenær rannsóknum lýkur. 6 Fréttir 13. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.