Fréttablaðið - 14.10.2022, Side 26
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Bleiki dagurinn er í dag og
eru landsmenn hvattir til
að bera bleiku slaufuna,
klæðast bleiku og lýsa upp
skammdegið með bleikum
ljóma svo allar konur sem
hafa greinst með krabba-
mein finni stuðning lands-
manna og samstöðu.
Á bleika deginum er hægt að gera
heilmargt til að taka þátt, það
þarf ekki að vera flókið eða dýrt.
Til dæmis er hægt að skipuleggja
bleikt morgunkaffi eða bleikt
hádegisverðarboð í vinnunni og
allir gætu til að mynda komið
með eitthvað á hlaðborð. Enn
fremur er hægt að koma fólki á
óvart með bleikum glaðningi en
fjölmörg fyrirtæki leggja mál-
efninu lið með því að bjóða upp á
ýmiss konar kræsingar með bleiku
ívafi. Elenora Rós Georgsdóttir,
bakara stúlkan knáa, er ein þeirra
sem hafa tileinkað sér að halda
upp á bleika daginn með bleikum
kræsingum og klæðast bleiku. Hún
gefur hér lesendum Fréttablaðsins
nokkrar góðar hugmyndir að
bleikum kræsingum sem gleðja
bæði auga og munn.
„Bleiki dagurinn er mér afar
kær en náinn fjölskyldumeðlimur
barðist við brjóstakrabbamein í
langan tíma. Ég elskaði að klæðast
bleiku þegar ég var yngri frá toppi
til táar á bleika deginum og til-
einka mér enn þá daginn til að
klæðast einhverju bleiku og fínu.
Ég hef unnið í bakaríum síðustu
sjö árin og ég dýrka og dái hvað
bakaríin eru dugleg að gera sér-
stakar bleikar vörur fyrir bleika
daginn og ég hef því alltaf bakað
eitthvað bleikt fyrir bleika daginn.
Mér finnst svo fallegt að sjá hversu
margir styrkja bleiku slaufuna á
einn eða annan hátt og taka þátt
í að gera þennan dag og þetta
málefni stærra með hverju árinu,“
segir Elenora með sínu hlýja og
falleg brosi.
Hér eru nokkrar af hennar uppá-
halds kræsingum sem steinliggja
í kaffiboðinu á bleika deginum og
vert er að sveipa alla helgina með
bleikum kræsingum og lífga upp á
skammdegið.
Möndlukakan ljúfa
200 g flórsykur
200 g smjör við stofuhita
2 stk. egg
230 g hveiti
5 g lyftiduft
5 g möndludropar
3 g salt
Elenora býður upp á bleikar kræsingar
Bleiki dagurinn er Elenoru afar kær vegna náins fjölskyldumeðlims sem barðist við brjóstakrabba í langan tíma. Elenora klæðist ávallt
einhverju bleiku á bleika deginum og býður í bleikt kaffihlaðborð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þessar hindberjabollur eiga
sér engan líka, svo dásam-
legar og hægt að leika sér
með blómaskreytingar á þeim.
50 ml heitt vatn
100 ml mjólk
Glassúr
250 g flórsykur
15-20 ml mjólk
1 dropi ljósbleikur matarlitur
Byrjið á því að hita ofninn í 170°C.
Smyrjið hringlaga form og klæðið
með pappír. Hrærið flórsykri,
smjöri og eggjum saman þar til
blandan verður orðin létt og ljós.
Sigtið saman hveiti og lyftiduft
og blandið saman við blönduna
ásamt saltinu og hrærið þar til
vel komið saman. Hellið möndlu-
dropum, mjólk og vatni saman við
í lokin. Hrærið þar til deigið verður
slétt og silkimjúkt. Setjið deigið
í smurða formið. Bakið í 30-35
mínútur eða þar til pinni sem er
stungið í kökuna kemur hreinn
upp úr. Kælið kökuna vel og búið
til glassúrinn á meðan. Hrærið öllu
fyrir glassúrinn saman þar til allt
er komið vel saman og þið eruð
komin með silkimjúkan og fallega
bleikan glassúr. Smyrjið glass-
úrnum yfir kökuna og berið fram.
Pavlova í bleiku
180 g eggjahvítur
300 g sykur
250 ml rjómi
5-10 g vanillupaste
Bleikur matarlitur
Ber að eigin vali
Byrjið á því að forhita ofninn á
150°C og passið að stilla á blástur.
Teiknið 20 cm hring á bökunar-
pappír og leggið til hliðar. Áður en
þið byrjið að þeyta eggjahvíturnar
er mjög mikilvægt að skálin sé
tandurhrein því annars ná eggja-
hvíturnar ekki að þeytast. Setjið
eggjahvíturnar í skál og byrjið að
þeyta á vægum hraða. Þegar eggja-
hvíturnar byrja að freyða er bætt í
hraðann þar til marengsinn fer að
taka á sig mynd og eggjahvíturnar
eru vel þeyttar, þetta ferli tekur um
10 mínútur. Hækkið núna hraðann
og bætið sykrinum við hægt og
rólega, um það bil 1 teskeið í einu
og þeytið þar til marengsinn
verður stífur og heldur sér vel og
Hér er möndlukakan í sparibúningi, svo girnileg með bleika glassúrkreminu,
syndsamlega bragðgóð og falleg á borði.
Dýrðleg bleika pavlovan hennar Elenoru og fangar auga og munn um leið.
sykurinn er alveg uppleystur.
Bætið litnum saman við og þeytið
vel. Setjið litla doppu af marengs-
inum á hornin á pappírnum svo
pappírinn festist við plötuna.
Setjið marengsinn á hringinn sem
þið voruð búin að teikna á pappír-
inn í skrefi tvö en passið að nota
hliðina sem þið teiknuðuð ekki á
svo blekið fari ekki á marengsinn.
Notið skeið eða spaða til að dreifa
úr marengsinum í hring. Reynið
að hafa hringinn frekar háan og
búa til smá holu svo þetta verði
eins og skál í miðjunni en þar ofan
í kemur fyllingin eftir bakstur.
Setjið í forhitaða ofninn og bakið í
um það bil klukkutíma. Slökkvið
á ofninum og leyfið pavlovunni að
kólna alveg inni í ofninum og hafið
ofninn lokaðan á meðan. Þetta
tryggir að hann falli eftir bakstur.
Þeytið rjóma og vanillu saman þar
til rjóminn er léttþeyttur. Skerið
berin niður í hæfilega stærð. Setjið
rjómann og berin ofan í holuna á
pavlovunni og berið fram.
Hindberjabollur
að hætti Elenoru
180 g hveiti
200 g sykur
60 g smjör við stofuhita
5 g matarsódi
10 g lyftiduft
50 g bragðlítil olía
2 stk. egg
90 g sýrður rjómi
2 stk. vanillustangir
50 g vatn
100 g frosin hindber
Vanillukrem
200 g flórsykur
200 g smjör
30 ml rjómi
Innihald úr tveimur vanillu-
stöngum
Bleikur matarlitur
Byrjið á því að hita ofninn í 160°C.
Blandið varlega og rólega saman
öllum þurrefnunum og smjörinu
í hrærivélarskál í 7-8 mínútur eða
þar til það er orðið að mjöli/dufti. Í
annarri skál hrærið þið saman egg,
vanillu, olíu og sýrðan rjóma þar
til það hefur blandast vel saman.
Bætið blautefnablöndunni saman
við þurrefnablönduna og hrærið
þar til deigið er komið saman.
Varist að ofhræra deigið því þá gæti
kakan orðið þurr. Bætið vatninu
saman við og hrærið þar til allt er
komið saman og deigið er orðið
silkimjúkt. Setjið deigið í formið og
setjið nokkur hindber í hvert bolla-
kökuform og bakið í 18 mínútur
eða þar til pinni sem er stungið í
kemur hreinn upp. Þeytið smjörið
fyrir kremið þar til létt og ljóst.
Bætið restinni saman við og þeytið
þar til kremið verður silkimjúkt
og létt í sér. Skreytið
bollakökurnar með
kreminu og jafnvel
ferskum berjum
og fallegum
blómum. n
6 kynningarblað A L LT 14. október 2022 FÖSTUDAGUR