Fréttablaðið - 27.10.2022, Side 14

Fréttablaðið - 27.10.2022, Side 14
„Reglulega koma í fjölmiðlum sögur af skelfilegum eineltismálum. Ein- elti sem jafnvel hefur fengið að þríf- ast árum saman. Að baki þeim eru einstaklingar, fjölskyldur og heilu samfélögin sem þjást. Menn finna til vanmáttar og mörgum finnst lítið sem ekkert gert til að rétta hlut þess sem brotið er á. Nú nýlega rataði enn eitt slíkt eineltismál í fjöl- miðla, einelti í skóla í Reykjavík og líkamsárás.“ Þessi setning birtist í grein frá undirritaðri árið 2016 og nokkrar sambærilegar greinar hafa verið ritaðar frá þeim tíma. Enn og aftur koma í fjölmiðlum sögur af skelfi- legum eineltismálum og eina breytingin er sú að um annan skóla og sveitarfélag er að ræða. Enn og aftur sendum við hjá Barnaheillum frá okkur pistla og ályktanir í kjölfar slíkra atburða. Árið 2016 bauðst öllum leikskól- um landsins að taka þátt í Vináttu – forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti og síðar öllum grunnskólum og frístundaheimilum að gera slíkt hið sama. Dæmin og rannsóknir sýna að í þeim skólum sem hafa unnið skipulega með Vináttu hefur samkennd barna og félagsfærni aukist, samskiptin einkennast af meira umburðarlyndi og virðingu fyrir margbreytileikanum og skóla- bragurinn er betri. Vinátta þjálfar jafnframt börn í að setja sér mörk og styðja félaga sína og verja. Með Vináttu er lögð áhersla á að skapa ekki jarðveg fyrir einelti og að fyrir- byggja. Vinátta er fyrir börn frá því þau hefja nám í leikskóla og til 10 ára aldurs eða jafnvel lengur. Í Vináttu er lögð áhersla á samstarf við for- eldra og að starfsfólk skóla skoði eigin viðhorf og samskipti við nemendur og samstarfsfólk. Þeir fullorðnu eru fyrirmyndir barna í orði og verki. Einelti er félagslegt, samskipta- legt og menningarlegt mein en ekki einstaklingsbundinn vandi. Því þarf ávallt að vinna með hópinn sem heild. Vinna þarf með samskipta- mynstur, aðstæður og menningu í hópnum. Einelti getur þróast út frá aðstæðum sem í f ljótu bragði virðast saklausar, eins og að skilja út undan í leik eða vilja ekki leiða einhvern í gönguferðum. Þegar tekist er á við þannig aðstæður er mikilvægt að tryggja að allir komi út úr aðstæðum á jafningjagrunni. Þegar einelti hefur fengið að þrífast í langan tíma þarf aðstoðin að vera í samræmi við það. Mörg börn hafa fengið að kynnast Vináttu og bangsanum Blæ alla sína leikskólagöngu og Vinátta og Blær jafnvel fylgt þeim í grunnskólann en í mörgum hverfum er bæði unnið með Vináttu í leik- og grunnskóla og jafnvel samstarf þar á milli. Það er því dágóður hópur barna sem hefur verið vel nestaður með gildum Vin- áttu enda taka 65% leikskóla lands- ins og 30% grunnskóla þátt. Ég á mér þá ósk að ég þurfi ekki að endurrita þennan pistil aftur eftir sex ár. Enn fremur á ég mér þá ósk að samfélagið okkar verði komið lengra í forvörnum gegn einelti og of beldi og að börnin okkar sýni samkennd, umhyggju og virðingu í öllum samskiptum. Þau eiga það öll skilið. Vinátta getur hjálpað til við að það verði að veruleika. Ég vil hvetja alla skóla til að kynna sér Vináttu og taka þátt. n Enn og aftur einelti Margrét Júlía Rafnsdóttir verkefnastjóri hjá Barnaheillum Einelti er félagslegt, samskiptalegt og menningarlegt mein en ekki einstaklings- bundinn vandi. Því þarf ávallt að vinna með hópinn sem heild. Fordómar gagnvart fólki með fíkn- sjúkdóm eru engin nýlunda. Sama á oft við gagnvart þeim sem sinna fólki með fíknsjúkdóm. Þessir fordómar mættu gjarnan láta sig hverfa, enda engin innistæða fyrir þeim. Hér á landi er áfengis- og vímu- efnafíkn skilgreindur sjúkdómur sem er meðhöndlaður í heilbrigðis- kerfinu. Afleiðingar þessa sjúkdóms eru gríðarlegar, jafnt á líkamlega heilsu, geðheilsu og félagslega stöðu. Nauðsynlegt er að sinna afleiðing- um hans á öllum sviðum, faglega og af mannúð, en það er þó ekki nóg; meðhöndla þarf einnig sjúkdóminn sjálfan. Áhrifaríkast er að grípa inn í þróun fíkniröskunar snemma, þótt meðferð á öllum stigum skili líka árangri. Nota þarf gagnreyndar leið- ir sem skila þeim árangri að glæða áhuga, auka innsæi og minnka líkur á bakslagi í neyslu. Gagnreynd með- ferð veitt af fagfólki skilar mestum ávinningi fyrir bata. Áhugahvetj- andi samtalsmeðferð er öflug leið til að styðja fólk til breyttrar hegðunar og færniþjálfun í bakslagsvörnum veitir fólki tækifæri til betra lífs. Raunverulegur heilbrigðisvandi Að neyta áfengis- eða annarra vímuefna er ekki fíkniröskun eða fíknsjúkdómur. Til að greinast með fíkniröskun og fíknsjúkdóm þarf að uppfylla greiningarskilyrði sem eru skilgreind innan læknisfræðinnar. Fíknsjúkdómur er alvarlegasta form fíkniröskunar. Þau sem koma á sjúkrahúsið Vog hafa fíknsjúkdóm. Fíknsjúkdómurinn er algengur. Fordómar, hvort sem er hjá ein- staklingum eða í kerfinu, geta spillt fyrir aðgengi að meðferð. Meðferð sparar fjármuni og eykur velferð, samt er hún ekki fjármögnuð eins og þörf er á. Það er hægt að meðhöndla fíkn- sjúkdóm og það er hægt að grípa inní fíkniröskun á byrjunarstigum. Þau sem leita til SÁÁ eru langflest að óska aðstoðar við að koma sér alveg út úr neyslu áfengis og ann- arra vímuefna. Langflest vilja fá þá hjálp sem vinnur gegn bakslagi í neyslu að nýju. Áfangar í batanum eru fjölmargir; hver og einn þeirra er mikilvægur og getur gefið viðkomandi betri lífsgæði. Þeir sem eru veikir af fíknsjúkdómi verða fyrir margvís- legum skaða þar sem fíkn, afar sterk löngun, heltekur og spillir fyrir lífi, samskiptum, væntingum, afköstum og áformum. Það er alvarlegt fyrir viðkomandi og aðstandendur. Góð, fagleg og fjölbreytt með- ferð er gulls ígildi. Þannig viljum við hafa það áfram hjá SÁÁ. Við kappkostum að sinna þeim stóra hópi sem til okkar leitar, með gagn- reyndum aðferðum, af alúð, með virðingu, af mannúð og með heil- brigðisstarfsfólki. Mikilvægast af öllu er að vinna með þarfir skjólstæðinga að leiðar- ljósi til að bæta þeirra hag. Horfum ekki fram hjá því að fíkniröskun er mjög algengur vandi og tímabært fyrir yfirvöld að gefa í til að mæta þörf fyrir þjónustu. Það er ekki aðeins ávinningur sjúklingsins heldur ekki síður fjölskyldu hans og þjóðfélagsins alls. n Áfram veginn – vinnum með lausnir í stað fordóma Valgerður Rúnarsdóttir forstjóri Sjúkra- hússins Vogs Góð, fagleg og fjöl- breytt meðferð er gulls ígildi. Þannig viljum við hafa það áfram hjá SÁÁ. Í vikunni var skýrt frá því að ávinn- ingur Íslendinga af orkuskiptum gæti numið allt að 1.400 milljörðum króna á næstu áratugum. Þannig túlka fjölmiðlar skýrslu verkfræði- stofunnar Ef lu, sem kynnt var á fundi í Hörpu (Efnahagsleg áhrif orkuskipta, helstu niðurstöður greiningar). Talan 1.400 milljarðar er fengin úr svokallaðri margfeld- isathugun. Útgjöld til orkuskipta eru margfölduð með stuðli af stærðargráðunni 2-2,5, til þess að ná til afleiddra og óbeinna áhrifa. Reyndar er rætt um verðmætasköp- un en ekki ábata í þessu sambandi í skýrslunni. Ábati er ekki mældur í margfeldisathugunum. Þessa stundina er alveg óljóst hver ábati verður af orkuskiptum í fisk- veiðum, samgöngum og f lutning- um, enda er tæknin sem nýtt verður við þau að miklu leyti óþekkt. Þess vegna er ótímabært að líkja ábatan- um við það þegar hitaveita var lögð í borgina. Í margfeldisathugunum er lagt mat á fyrirferð starfsemi í hagkerfinu. Stundum er sagt að þær sýni áhrif á landsframleiðslu, en það er ekki alveg rétt. Um það segir í skýrslu Hagfræðistofnunar frá 2005 (nr. C05:04), sem vitnað er til í skýrslu Eflu: „Margfaldarar úr aðfanga-afurða- greiningu eru oft mistúlkaðir í þá veru að þeir gefi til kynna hversu mikið framleiðsla eða atvinna drægist saman ef atvinnugreinin væri ekki til staðar. Augljóslega er það ekki staðreyndin. Ef atvinnu- greinin væri ekki til staðar myndi hagkerfið þróast í aðra átt með ann- arri nýtingu framleiðsluþátta.“ Vegna vandkvæða við að túlka margfeldisathuganir hefur Hag- fræðistofnun á seinni árum boðið fram athuganir úr jafnvægislíkani, þar sem greind eru áhrif þess á landsframleiðslu í bráð og lengd að tiltekin starfsemi hverfi úr hagkerf- inu. Þessi aðferð sýnir líklega raun- sannari mynd en margfeldisathug- anir. En því miður vekur hún ekki jafnmikla hrifningu, því að oftast fást ekki jafnháar tölur þegar henni er beitt. n Tölur Eflu sýna ekki ávinning af orkuskiptum Sigurður Jóhannesson forstöðumaður Hagfræðistofn- unar Háskóla Íslands Reyndar er rætt um verðmætasköpun en ekki ábata í þessu sambandi í skýrslunni. Ábati er ekki mældur í margfeldisathugunum. Helstu fréttir úr ráðuneyti menn- ingarmála eru að framlag til íslenskra kvikmynda verði skorið verulega niður. Ástæðan mun vera sú að fyrirsjáanlegar eru háar greiðslur til erlendra fyrirtækja sem hingað koma til að nýta íslenska tökustaði. Þessu tvennu á ekki að rugla saman. Endurgreiðslurnar til erlendu fyrirtækjanna eru inn- spýting til að örva viðskipta- lífið. Stuðningur við íslenska kvik- myndagerð er allt annað og mun fjölþættara mál. Vissulega örvar sú starfsemi atvinnulífið, en til við- bótar kemur menningarlegt vægi í samfélagi sem reiðir sig í vaxandi mæli á myndmiðla. Frá morgni til kvölds eru Íslendingar, rétt eins og aðrir jarðarbúar, að horfa á lifandi myndir og flestar eru þær á ensku. Eðlileg mótspyrna felst í því að efla framleiðslu á kvikmyndum þar sem fólk talar móðurmálið. Það kostar að vera menningar- þjóð. Það kostar að halda úti Þjóð- leikhúsi og Sinfóníuhljómsveit, við gerum það samt og þykir sjálfsagt. En kvikmyndagerðin er rekin með öðrum hætti en ofangreindar stofn- anir. Það er ekki auðvelt að skera niður stóran hlut af rekstrarfé Þjóð- leikhússins. Að skerða framlög til Kvikmyndamiðstöðvar virðist hins vegar einföld lausn á fjárhagsvanda ráðuneytisins. Fyrir barðinu verða að vísu fyrirtæki úti í bæ og lista- menn á ýmsum sviðum, fólk sem alltaf er í einhverju basli hvort sem er, en hefur reyndar byggt upp atvinnu- veg sem hagfræðingar hafa sýnt fram á að sé þjóðhagslega hagkvæmur og vel það. Og þar með má, sé öllu til haga haldið, setja spurningarmerki við kostnaðinn sem ríkið tekur á sig af innlendri kvikmyndagerð. Væri ekki nær að tala um fjárfestingu sem borgar sig með tímanum? Á sama tíma stígur formaður Íslenskrar málnefndar fram með vondar fréttir: íslenskan á í vök að verjast gegn ágengni enskunnar. Hann bendir einmitt á áhrifin af amerísku afþreyingarefni. Sjónvarpsstöðvarnar reyna eftir megni að sinna íslenskri þátta- gerð – og ekki bara af hugsjón: við- skiptavinir þeirra vilja það. Íslenskt sjónvarpsefni fær einfaldlega meira áhorf en það erlenda. Jú, við skiljum ensku ágætlega og sum okkar geta jafnvel talað hana ljómandi vel, en það ágæta tungumál kemur ekki í stað móðurmálsins. Upp er runn- inn sá tími að við verðum að leggja verulega rækt við íslenskuna og augljós leið til þess er að auka fram- leiðslu á innlendum kvikmyndum og sjónvarpsefni þar sem fjallað er um líf okkar sem búum á þessari eyju á okkar eigin tungumáli. Þessi niðurskurður er boðaður þegar íslensk kvikmyndagerð er einmitt í talsverðri uppsveif lu. Niðurskurðurinn væri skiljanlegur ef greinin hefði ekki staðið undir væntingum, en það er öðru nær. n Skerðing Ágúst Guðmundsson kvikmyndaleik- stjóri 14 Skoðun 27. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.