Fréttablaðið - 27.10.2022, Side 18

Fréttablaðið - 27.10.2022, Side 18
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Verslunin hefur verið starfandi í 18 ár og hefur ávallt notið vin- sælda enda býður hún fatnað sem hentar öllum konum, jafnt í vinnu sem betri klæðnað og yfirhafnir í stærðum frá 36 til 60. Belladonna er ítalska og þýðir falleg kona og má því segja að verslunin beri nafn með rentu,“ segir Stella, eigandi og stofnandi verslunarinnar. „Ég segi alltaf, og slagorðið okkar er í raun og veru: „Vertu þú sjálf, vertu Belladonna.“ Stella segir það skipta sköpum fyrir sjálfstraust og útgeislun kvenna að klæðast f líkum sem fara þeim vel. „Ef konur fara í föt sem klæða þær vel og þeim líður vel í þá verður þessi útgeislun og þá eru þær fallegar,“ segir hún og brosir. Framúrskarandi fyrirtæki Belladonna er Framúrskarandi fyrirtæki 2022. Gaman er að geta þess að Belladonna hlaut viður- kenninguna á dögunum sem þýðir að Belladonna er meðal þeirra 2% fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo á Framúrskarandi fyrirtækjum 2022. „Við erum ákaflega stolt og þakklát fyrir að hafa hlotið þessa viður- kenningu aftur og það er okkur mikils virði að vita að við erum að gera góða hluti. Það er hvatning til áframhaldandi góðra verka,“ segir Stella enda hefur hún mikla ástríðu fyrir því sem hún er að gera og verður ávallt jafnglöð þegar við- skiptavinir hennar ganga út með sælubros á vör eftir að hafa fundið flíkina eða hlutinn sem leitað var að. Fjölbreytnin í fyrirrúmi Belladonna býður upp á mikið úrval af smart og vönduðum tískufatnaði og fylgihlutum, í stærðum frá 38 til 60. Vörurnar koma frá Danmörku, Hollandi og Þýskalandi. Merkin eru ólík og stíla inn á mismunandi aldurs- hópa, enda eru viðskiptavinirnir líka á skemmtilega breiðu aldurs- bili. Litir og áferð sem passa við hverja árstíð og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Við leitumst við að bjóða upp á fjölbreytni, þægindi og góð verð,“ segir Stella og bætir við að mikill metnaður sé lagður í að láta þetta þrennt fara saman. „Núna erum við á fullu að að taka upp send- ingar með vetrarlínunum og það styttist óðum í jólin svo hátíðar- klæðnaðurinn fer að láta á sér bera. Við leggjum áherslu á mikið úrval af vönduðum vörum en lítið magn af hverri gerð, því það þurfa ekki allir að vera eins,“ segir Stella. „Eins og nærri má geta með verslun sem er með svo fá eintök af hverri tegund þá eru breytingar örar í búðinni og nýjar sendingar eru teknar upp í hverri viku. Þessi ríka áhersla á einstaklingseðli kvenna hefur áhrif á innkaupa- stefnu verslunarinnar,“ segir Stella og hefur fundið ánægju viðskipta- vina með þetta fyrirkomulag. Vöruúrvalið er eins og fram hefur komið fjölbreytt og hægt að fá allt fyrir heildarútlitið. „Við erum með mikið úrval af fallegum og fáguðum sparifötum og eigum eftir að fá mikið af þeim fyrir hátíðirnar. Síðan eru það yfirhafnir, fylgihlutir og allt þar á milli svo hægt er að raða saman heildarútlitinu, hver og ein eftir sínum stíl,“ segir Stella sem nýtur þess að aðstoða viðskiptavini sína að finna réttu f líkina. Netverslun hefur stóraukist Belladonna er líka með vefverslun sem er opin allan sólarhringinn. „Það er ávallt hægt að versla á netinu, í vefversluninni getur þú skoðað þig um og verslað á þínum hraða þegar þér hentar og fengið vörurnar sendar heim sem sparar tíma og fyrirhöfn og hentar líka mjög vel fyrir viðskiptavini okkar á landsbyggðinni,“ segir Stella og bætir við að net- verslun hafi stóraukist síðastliðið ár og hafi í raun aldrei verið meiri. „Við keyrum vörur til viðtak- anda á höfuðborgarsvæðinu og Pósturinn dreifir um landið fyrir okkur og er vonandi að standa sig vel í því,“ segir Stella. n Opnunartími í Belladonna er klukkan 11-18 virka daga og klukkan 11-15 á laugardögum í Skeifunni 8, sími 517-6460. Netverslunin er opin allan sólar- hringinn, belladonna.is facebook.com/VersluninBella- donna. Instagram @ verslunin_ belladonna Í vetrarlínunum eru fallegir litatónar þar sem jarðlitir og hlýleikinn eru í forgrunni. MYNDIR/AÐSENDAR Þægileg heimaföt til að eiga kósí tíma. Mikið af fallegum yfirhöfnum er að finna í Belladonna sem eiga vel við í íslenskri náttúru og veðri. Úlpurnar koma í mörgum litum. Mikið úrval er að finna af fylgihlutum í versluninni sem mynda heild- arútlitið. Klæðilegir kjólar fyrir öll tækifæri fást í Belladonna. Í versluninni Belladonna er að finna einstak- lega mikið og fjölbreytt úrval af vönduðum flíkum í öllum stærðum. 2 kynningarblað A L LT 27. október 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.