Fréttablaðið - 27.10.2022, Page 20
Það er líka gaman
að sjá hvað
hrekkjavakan er orðin
stór hérna heima og líka
góð ástæða fyrir full-
orðna að klæða sig upp í
búning.
Tinna Björt
Hrekkjavakan er á mánu-
dag, 31. október. Vinsældir
hennar hafa aukist jafnt og
þétt hér á landi. Margir eru
þegar byrjaðir að undirbúa
hrekkjavökuna, bæði með
ógurlegum skreytingum og
kræsingum og loks með því
að fara í ógnvekjandi gervi
sem óvættir, skrímsli eða
önnur hræðileg fyrirbæri
sem eiga sér fyrirmynd.
sjofn@frettabladid.is
Vinkonurnar Tinna Björt Guð-
jónsdóttir, sölu- og markaðsstjóri
hjá Provision og leikkona, og
Telma Haraldsdóttir skjalavörður
elska hrekkjavökuna og eru þegar
byrjaðar að undirbúa herlegheitin.
Þær klæða sig upp í ákveðin gervi
sem heilla þær og ganga skrefinu
lengra með því að mynda gervin í
því umhverfi sem þau eiga heima í.
Metnaðurinn er í fyrirrúmi og ekki
gefinn neinn afsláttur af búning-
unum.
„Við höfum alltaf elskað
Hrekkjavökuna og haldið upp
á hana. Áhuginn hefur aukist í
gegnum árin. En seinustu tvö
árin höfum við tekið hrekkja-
vökuna upp á hærra plan. Við
leggjum meiri vinnu í gervin og í
myndatökurnar sem verða stærri
og stærri með hverju árinu. Við
höfum líka fjárfest í góðum ljósum
og góðri myndavél,“ segja þær
Tinna og Telma.
Myndasyrpur úr bíómyndum
„Við eigum okkar uppáhalds
hrekkjavökubíómyndir og -hefðir,
sem dæmi horfum við alltaf á
þessar klassísku bíómyndir: Hoc-
kus Pockus, Halloween, The Night
before Christmas, Beetlejuice og
ekki má gleyma okkar uppáhalds
mynd Death becomes her, en við
erum svo miklir aðdáendur að
við urðum að búa til myndatöku-
þema úr myndinni,“ segir Tinna
sem þekkir vel að vera í Bandaríkj-
unum á hrekkjavökunni. „Ég bjó í
L.A. á sínum tíma og það var ótrú-
lega gaman að upplifa hrekkjavök-
una þar. Það er líka gaman að sjá
hvað hrekkjavakan er orðin stór
hérna heima og líka góð ástæða
fyrir fullorðna til að klæða sig upp
í búning,“ segir Tinna sem er orðin
mjög spennt fyrir komandi helgi.
Þegar kemur að myndatökunni
hjá þeim vinkonum segjast þær fá
innblásturinn víða. „Innblástur-
inn kemur frá mörgum stöðum
eins og bíómyndum, auglýsingum,
ljósmyndum og málverkum. Við
höfum verið hrifnar af vampíru-
þema en fyrir tveimur árum
vorum við með Stepford Wives í
bakstri, í fyrra var það 17. aldar
frúr í teboði og í ár er það Peaky
Blinders á rakarastofu.
Við erum svo heppnar að Gaui
litli, Guðjón Sigmundsson, á Her-
námssetrinu á Hlöðum hefur leyft
okkur að koma og taka myndir
enda er nóg af munum sem hægt
er að nota þar,“ segir Telma og
bætir við að þar sé frábær aðstaða
fyrir myndatökur. „Að setja upp
svona myndatöku er rosa vinna.
Við byrjum á undirbúningsvinnu
löngu áður en við tökum sjálfar
myndirnar. Vanalega búum við til
„mood board“ og setjum inn hug-
myndir. Þetta er frekar langt ferli
hjá okkur og það geta alveg liðið
sex mánuðir frá því að hugmynd
kemur og þar til við erum komnar
í búninga að taka myndir. Ferlið
sjálft er mjög skemmtilegt. Við
erum duglegar að hittast og kasta
fram alls konar hugmyndum sem
eru misgóðar,“ segir Tinna.
„Við leggjum mikið upp úr
að hafa myndirnar lifandi og
skemmtilegar. Þetta er meira en
bara að „pósa“, það er eitthvað
sem gerist í sjálfri myndatökunni.
Búningarnir, förðunin og leikmun-
irnir gera það að verkum að við
getum leikið okkur. Það skiptir
okkur miklu máli að myndirnar
séu persónulegar og að við getum
skapað stemningu.
Við eyðum líka miklum tíma
í uppsetningu og söguna. Okkur
langar að búa til sögu með litlum
smáatriðum. Allir munir og hlutir
sem sjást eru vel útpældir. Allt frá
blóðinu í bollunum til blóðugra
augna í kökukremi.“
Gervineglur sem vampírutennur
Þegar kemur að því að finna
búninga, leikmuni og annað sem
til þarf fyrir myndatökurnar og
ná gervinu alla leið, reyna þær
stöllur að nota það sem þær eiga.
„Við erum líka duglegar að skoða
vefverslanir. Við erum mjög með-
Elska að klæða
sig upp og fara í
hrekkjavökuleik
Í staðinn fyrir
kampavín er
boðið upp á
heitt blóð hjá
Stepford Wives,
Tinna Björt
tekur hlutverk
sitt mjög alvar-
lega og lifir sig
inn í það.
Peaky Blinders
rakarastofan er
alltaf opin.
Frúin skilur ekkert kjöt eftir á bein-
unum. MYNDIR/TINNA OG TELMA
vitaðar um að reyna að endurnýta
og við höfum nokkrum sinnum
gripið í límbyssuna. Förðunin spil-
ar líka stórt hlutverk. Eins og fyrir
hrekkjavökumyndirnar höfum við
sem dæmi notað gervineglur sem
vampírutennur en Telma kom með
þessa sniðugu hugmynd,“ segir
Tinna. Litalinsurnar sem Tinna
er með gera mikið fyrir heildar-
útlitið. „Við eigum líka mörg góð
móment með vampírutennurnar
en það er ekki ekki hægt að tala
með þær, né drekka, né borða,“
segja vinkonurnar og skella upp úr.
„Okkur finnst þetta mjög
skemmtileg og í þessum sam-
félagsmiðlaheimi þar sem allt
þarf að vera svo flott og fullkomið
finnst okkur gaman að vera pínu
öðruvísi. Við erum það manískar
í þessu að við erum nú þegar byrj-
aðar að plana jólamyndatökuna
og það er spennandi samstarf í
vændum,“ segja þessar lífsglöðu
vinkonur að lokum.
Hægt er að fylgjast með þeim
Tinnu og Telmu á Instagram-
reikningum þeirra, @tinnabg og
@ telmahar. n
4 kynningarblað A L LT 27. október 2022 FIMMTUDAGUR