Fréttablaðið - 27.10.2022, Side 22
Á umhverfisdegi Kven-
félagasambands Íslands um
síðustu helgi var gestum
kennt að endurnýta textíl og
vinna að minniháttar fata-
viðgerðum.
starri@frettabladid.is
Umhverfisdagur Kvenfélagasam-
bands Íslands var haldinn á Hall-
veigarstöðum um síðustu helgi en
þema dagsins var „Endurnýting á
textíl“.
Jenný Jóakimsdóttir, umsjónar-
kona verkefnisins, var hæstánægð
með daginn. „Með okkur voru
miklir snillingar sem sýndu hvað
margt er hægt að gera til að endur-
nýta textíl sem var jú markmiðið
með deginum. Svo skapaðist mjög
skemmtilegt samtal meðal þeirra
sem voru þarna með okkur. Við-
burðurinn var því afar hvetjandi
fyrir alla, bæði gesti og þær sem
sýndu með okkur.“
Meðal þeirra sem leiðbeindu
gestum um endurnýtingu á textíl
voru Sigríður Júlía Bjarnadóttir,
kennari og myndlistarmaður, sem
mætti með fatnað sem hún hannar
upp úr endurnýttu efni, Ólöf Svein-
hildur sem hannar og framleiðir
poka og töskur úr endurnýttum
textíl og Ingunn Hróðný sem sýndi
hvernig hún endurnýtir galla-
buxur og saumar til dæmis svuntur,
pottaleppa og töskur. Einnig voru
á staðnum Sigríður Tryggvadóttir
sem setti upp örvinnustofu í fata-
breytingum og sýndi gestum hvað
hægt er að gera til að breyta flíkum
á skemmtilegan hátt, Hafdís Bjarna-
dóttir sem hefur verið að spinna
band úr garnafgöngum í nokkur
ár og Ásdís Ósk Jóelsdóttir, lektor
í textíl og hönnun, sem kynnti
bækurnar sem hún hefur gefið út
um textíl, sjálfbærni og saumaskap.
Nýtum flíkurnar lengur
Jenný segir mikla þörf á að kenna
fólki minniháttar fataviðgerðir
og hvernig hægt sé að endurnýta
textíl.
„Í dag nýtum við flíkurnar okkar
mikið minna en við gerðum áður.
Áætlað er að fjölda skipta sem flík
er notuð fyrir förgun hafi fækkað
um 36% að meðaltali á heimsvísu
á síðustu tveimur áratugum. Með
verkefninu okkar „Vitundarvakn-
Þarf bara hugrekki og hugmyndaflug
Jenný Jóakimsdóttir var umsjónar-
kona verkefnisins „Endurnýting á
textíl“ á umhverfisdegi Kvenfélaga-
sambands Íslands. MYND/SILLA PÁLS
Hafdís Bjarna-
dóttir sýndi
gestum hvernig
hún kembir og
spinnur nýtt
hespugarn úr
garnafgöngum.
Gallabuxur bíða endurnýtingar í
pottaleppa, töskur og svuntur.
Pokar og töskur úr endurnýttum
textíl, t.d. gallabuxum og gardínum.
Taska frá Ingunni Hróðný Guðjóns-
dóttur sem hannar úr endurnýttu
gallaefni undir „Made by Hróðný“
Hér er hannað
upp úr gömlum
flíkum eins og
karlmanna-
jakkafötum,
gallabuxum
og karlmanns-
skyrtum.
Efniviður skyrtunnar var karlmannsskyrtur. Ermalíningar er gerðar úr krögum tveggja skyrtna og ókláruð kross-
saumsmynd fékk nýtt hlutverk sem skraut á bakinu. MYNDIR/AÐSENDAR
ing um fatasóun“ viljum við minna
á að viðgerð er ein besta leiðin til
að gera fataskápana okkar sjálf-
bærari.“
Með viðgerðum erum við að
vinna með það sem við eigum nú
þegar, bætir hún við. „Með því að
laga og gera við fatnaðinn erum
við að tryggja að við getum nýtt
flíkurnar lengur og hægjum þannig
á því hversu mikils við neytum og
tryggjum að minna fari til spillis.
Það þarf ekki endilega mikla kunn-
áttu í saumaskap til að gera við og
breyta. Markmið okkar er að fá
fólk til að hugsa aðeins áður en það
losar sig við flíkina og endurvekja
nýtni fyrri kynslóða sem virðist því
miður hafa gleymst að miklu leyti.“
Hvatning til að halda áfram
Hún segir berlega hafa komið í ljós
um helgina að það megi endurnýta
allan textíl. „Þær sem sýndu um
helgina sönnuðu það svo sannar-
lega. Það er ekkert sem ætti að
stoppa okkur þar. Flíkurnar sem
við sáum um helgina báru flestar
með sér mikla hugmyndaauðgi þar
sem ýmsum tegundum af textíl var
blandað saman, þær voru litríkar og
skemmtilegar. Það sem þarf er ein-
faldlega hugrekki og hugmynda-
flug og það efni sem ekki er hægt
að nýta í nýja flík getur orðið svo
margt annað nýtilegt.“
Viðtökurnar voru svo góðar um
helgina að hópurinn er strax farinn
að velta fyrir sér næsta viðburði.
„Það er ekki komin dagsetning á
næsta viðburð en eftir laugardag-
inn fengum við mikla hvatningu til
að gera eitthvað svipað aftur. Þetta
var í fjórða sinn sem við hjá Kven-
félagasambandi Íslands erum með
svona umhverfisdag og í fyrsta sinn
eftir Covid og það var greinilegt
að fólk er spennt að mæta aftur til
okkar hér á Hallveigarstaði.“ n
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB
SKOÐIÐ
LAXDAL.IS
20%
afsláttur af
völdum vörum
27. okt. - 2. nóv.
Vetrarfjör
6 kynningarblað A L LT 27. október 2022 FIMMTUDAGUR