Fréttablaðið - 27.10.2022, Síða 25
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur,
Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur aðalskipulagsbreytinga og skipulagslýsinga eftirfarandi
skipulagsáætlana:
1. Klif L167134; Skilgreining landsvæðis; Aðalskipulagsbreyting – 2201035
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 21. september 2022 að kynna lýsingu aðalskipulagsbreytingar
vegna landsins Klif, L167134. Í breytingunni felst að hluti skilgreinds frístundasvæðis er breytt í landbúnaðarsvæði.
2. Úthlíð L167514; VÞ15 Breyttar heimildir; Aðalskipulagsbreyting – 2209074
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 5. október 2022 að kynna lýsingu aðalskipulagsbreytingar
sem tekur til Úthlíðar, L167514. Svæðið sem lýsingin tekur til nær yfir hluta jarðarinnar, norðvestan Laugarvatnsvegar (37)
og beggja vegna vegar að Úthlíð. Í Úthlíð er verslunar- og þjónustusvæðið VÞ15. Þar er verslun, veitingastaður, sundlaug,
tjaldsvæði, eldsneytissala, orlofshús, starfsmannahús, hestaleiga og afþreyingarferðir. Gert er ráð fyrir áframhaldandi upp-
byggingu ferðaþjónustu s.s. byggingu gistiheimilis/hótels fyrir allt að 180 gesti og stækkun sundlaugarsvæðis. Stærð svæðis
er um 21 ha. Með breytingunni stækkar svæðið í u.þ.b. 25 ha, yfir svæði sem í dag er landbúnaðarsvæði. Hluta verslunar- og
þjónustusvæðisins VÞ15 verður breytt í afþreyingar- og ferðamannasvæði þar sem heimild verður fyrir hjólhýsasvæði og
tjaldsvæði. Stærð þess svæðis er u.þ.b. 5 ha. Í Úthlíð er mikil frístundabyggð og einnig ýmiss konar þjónustustarfsemi tengd
henni. Markmiðið með breytingunni er að efla þjónustu á staðnum.
3. Hólakot L166762; Landbúnaðarsvæði í frístundasvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2209063
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 6. október 2022 að kynna lýsingu aðalskipulagsbreytingar í
landi Hólakots, L166762. Í breytingunni felst að landnotkun skika úr landi Hólakots verði breytt úr landbúnaðarlandi
í frístundabyggð.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur aðalskipulagsbreytinga og skipulagslýsinga eftirfarandi
skipulagsáætlana:
4. Austurey 1 (L167622) og 3 (L167623); Breytt landnotkun; Breytt vegstæði; Aðalskipulagsbreyting – 2107015
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 29. júní 2022 að auglýsa tillögu aðalskipulagsbreytingar í landi
Austureyjar 1, L167622 og 3, L167623. Í breytingunni felst að frístundalóðinni Eyrargötu 9 er breytt í svæði fyrir verslun og
þjónustu. Einnig verður gerð breyting á aðkomuleið, Vagnbraut, auk annarra minniháttar breytinga á götum.
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:
5. Galdramýri L223808; Deiliskipulag – 2208076
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 4. október 2022 að auglýsa deiliskipulag sem tekur til lands Galdra-
mýrar, L223808. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda innan landsins þar sem m.a. er gert
ráð fyrir heimildum sem taka til íbúðarhús, skemmu og gestahúsa.
6. Löngudælaholt frístundasvæði; Breyting og samræming deiliskipulags – 2104081
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5. október 2022 að auglýsa tillögu deiliskipulags
sem tekur til frístundasvæðis að Löngudælaholti. Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina betur núverandi frístundabyggð
út frá staðbetri grunngögnum. Fyrir liggur undanþága innviðaráðuneytis vegna fjarlægða frá vegum, ám og vötnum.
7. Neðan-Sogsvegar 41 L169422; Fjölgun lóða; Deiliskipulagsbreyting – 2210013
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 19. október að auglýsa tillögu deiliskipulags-
breytingar sem tekur til fjölgunar lóða og skilgreiningu byggingarreita innan lóðar Neðan-Sogsvegar 41. Lóðin er í dag skráð
í óskiptri sameign en innan gildandi deiliskipulags er gert ráð fyrir fjórum sumarhúsum á tveimur byggingarreitum innan
lóðarinnar sem er alls um 17.800 fm.
8. Öndverðarnes, Kambshverfi, Hlíðarhólsbraut; Frístundabyggð; Stækkun lóða; Deiliskipulagsbreyting – 2209106
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 19. október að auglýsa tillögu deiliskipulags-
breytingar sem tekur til Hlíðarhólsbrautar innan Kambshverfis í landi Öndverðarnes. Í breytingunni felst að lóðir norðan
Hlíðarhólsbrautar eru færðar nær götunni og er stækkun þeirra mismunandi. Þetta er gert til að svæði frá lóðunum að vegi
verði ekki til vansa fyrir lóðarhafa og sem annars yrði óhirt í eigu Öndverðarness ehf.
9. Ásatúnsvallarland L218490; Deiliskipulag – 2206005
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 20. október 2022 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi sem
tekur til lands Ásatúnsvallarlands, L218490. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda innan
landsins sem er skilgreint sem landbúnaðarland innan aðalskipulags Hrunamannahrepps. Innan skipulagsins er gert ráð
fyrir heimild fyrir uppbyggingu íbúðarhúss allt að 300 fm, hesthúss eða skemmu allt að 250 fm auk allt að 6 ferðaþjónustuhúsa
innan hámarks byggingarmagns að 300 fm.
10. Austurey 1 og 3; Eyrargata 9 og Illósvegur 6; Deiliskipulagsbreyting – 2202048
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 29. júní 2022 að auglýsa tillögu deiliskipulagsbreytingar sem
tekur til Austureyjar 1 og 3, Eyrargötu 9 og Illósvegs 6, þar sem lóð Eyrargötu 9 er skilgreind sem lóð fyrir gistihús í stað frí-
stundahúss auk þess sem breyting er gerð á legu lóðar og byggingarreitar Illósvegar 6 og skilgreindar byggingarheimildir.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofu-
tíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum
sveitarfélaganna, www.blaskogabyggd.is, www.fludir.is, www.gogg.is , www.floahreppur.is og www.skeidgnup.is
Mál nr. 1, 2 og 3 innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 27. október 2022 til og með 18. nóvember 2022.
Mál nr. 4 - 10 innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 27. október 2022 með athugasemdafrest til og með 9.
desember 2022.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið
skipulag@utu.is
Vigfús Þór Hróbjartsson
Skipulagsfulltrúi UTU
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
Við ráðum
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Stjórnendaleit
Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga
Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu
stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja.
Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga
Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára
löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar
á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Almennar ráðningar á markaði
Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta
áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum
er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu
máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í
viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki
við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið.
Sveigjanleg nálgun
Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun
á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt
ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir
fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf
krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða
starfs tengdar æfingar.
Matstæki
Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta
hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt
sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við
banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem
er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum
mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að
greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður
en ráðning fer fram.
Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn
með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið
OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index)
skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og
staðfærð að íslenskum markaði.
Ráðgjöf við starfslok
Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir
höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að
starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við
ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um
atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs
ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði
varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl.
Ráðum býður upp á ráðgjöf
og ráðningar þjónustu sniðna
að þörfum viðskiptavinarins.