Fréttablaðið - 27.10.2022, Síða 36

Fréttablaðið - 27.10.2022, Síða 36
Félagsvísindin, eins og stjórnmálin, eru ekki ein rödd eða ein ákveðin hugmynda- fræði, í eða utan hyl- dýpis. Ég hef aldrei fundið betri þerapíu á minni ævi en að sitja fyrir framan trönurnar. Sigurður Mikael Jónsson heldur sína fyrstu málverka- sýningu í tilefni af Vöku- dögum á Akranesi sem hefjast í dag. Hann segir Akranes svo miklu meira en bara boltabæ. odduraevar@frettabladid.is Skagamaðurinn Mikael, eins og hann er alltaf kallaður, er nýfluttur aftur á æskuslóðir sínar á Akranesi og heldur sína fyrstu málverka- sýningu frá og með föstudeginum á dvalarheimilinu Höfða, í tilefni af Vökudögum – menningarhátíð Akraneskaupstaðar sem hefst í dag. „Ég er nýfluttur aftur í heimabæ- inn og var boðið að taka þátt í Vöku- dögum og það er frábært að geta komið sér á kortið hjá sveitungum sínum, enda er ég nýliði í þessum bransa,“ segir Mikael. Hann tók fyrst upp pensla og striga árið 2018 í leit að hugarró eftir að hafa sökkt sér í myndbönd frá hinum víðfræga og róandi myndlistarmanni Bob Ross. Undanfarin tvö ár hefur hann svo haldið úti Facebook-síðunni SMJmyndir en aldrei sýnt mynd- irnar sínar í raunheimum fyrr en nú. „Ég hef margoft verið spurður að því hvers vegna ég hafi ekki verið með sýningu en ég hef bara aldrei átt nógu margar myndir til að selja, því þetta hefur bara verið áhugamál og myndirnar selst jafnóðum svo ég hef ekki verið sýningartækur þar til nú,“ segir Mikael. Á sýningunni sem verður opnuð á föstudag klukkan 17 munu Brynja Jóhannsdóttir og Gerður Guðjónsdóttir einnig sýna verk sín og síðast en ekki síst börn á elstu deild leikskólans Garðasels, sem munu sýna fjölbreytt listaverk undir yfirskriftinni „Ég og umhverf- ið mitt“. „Vökudagar er sérlega skemmti- legt konsept því Akranes er miklu meira en bara boltabær. Næstu daga mun drjúpa listfengi af hverju strái í glæsilegri dagskrá í bænum, því við eigum lygilegt magn af hæfileika- fólki á öllum sviðum menningar og lista hér á Akranesi, þó að við séum kannski frægust fyrir fótboltann,“ segir Mikael léttur í bragði. „Það er mjög stutt í menninguna á Skaganum og þetta er frábær dag- skrá sem vert er að kynna betur fyrir öllum,“ segir Mikael og hvetur alla til að kynna sér dagskrána á skagalif.is. Sigurður Mikael hefur sérhæft sig í landslagsmyndum. „Ég leik mér að litum, ljósi og skugga og verð hér með hátt í tíu verk sem ég málaði flest sérstaklega fyrir þessa sýningu. Þetta er kjörið tækifæri til að eignast smá lit fyrir veturinn á heimilið.“ Hann segir alla geta málað. „Ég hef aldrei fundið betri þerapíu á minni ævi en að sitja fyrir framan trönurnar. Þetta er uppskeruhátíð kvíðapúkans, maður skilar honum frá sér í lit og gleði og líður miklu betur fyrir vikið.“ n Svo miklu meira en bara boltabær Sigurður Mikael Jónsson ólst upp á Akranesi og er nú fluttur þangað aftur. Hann heldur nú sína fyrstu myndlistarsýningu. FRÉTTABLAÐIÐ/AÐSEND Eru félagsvísindin að sogast niður í hyldýpi pólitískrar rétthugsunar? Ekki ein rödd í eða utan hyldýpis Stefán Hrafn Jónsson forseti Félags­ vísindasviðs HÍ „Félagsvísindin eins og þau eru stunduð í vest- rænum háskól- um fjalla um mörg af sömu við- fangsefnum og stjórnmálin enda eiga vísindin og stjórnmálin það sameiginlegt að þar ríkir sterkur vilji til að bæta samfélagið,“ segir Stefán spurður út í ummæli Brynjars Níelssonar í vikunni um að félagsvísindi vestrænna há- skóla séu að sogast niður í hyldýpi pólitískrar rétthugsunar. „Fólk rökræðir, á vettvangi bæði vísinda og stjórnmála, hugmyndir, aðferðir og hugmyndafræði en greinir gjarnan á um hvaða leiðir eru bestar til að bæta samfélagið sem við búum í. Á Þjóðarspeglinum, ráðstefnu félagsvísinda á Íslandi, sem hald- inn er 27. og 28. október í Háskóla Íslands eru 160 erindi sem 272 höfundar standa að baki auk þess öfluga starfsfólks sem styður við rannsóknarstarf í félagsvísindum. Erindin á ráðstefnunni endur- spegla hvað félagsvísindin eru fjölbreytt og hvað það er óvarlegt að nota alhæfingar um það fjöl- breytta starf sem fer fram í þeim fræðigreinum sem við flokkum sem félagsvísindi. Félagsvísindin, eins og stjórnmálin, eru ekki ein rödd eða ein ákveðin hugmynda- fræði, í eða utan hyldýpis. Fræðasamfélagið er ekki að lýsa skoðun sinni á ákveðnu málefni heldur er það og verður áfram mikilvægur vettvangur til að leggja til og ræða fjölbreyttar hugmyndir, sumar á jaðrinum og sumar vissulega meira umdeildar en aðrar enda er það eðli vísinda að spyrja gagnrýninna spurninga um eðli samfélagsins.“ n n Lykilspurningin SÍÐASTA FIMMTUDAG Í MÁNUÐI BJÓÐA SÖFN OG SÝNINGARSTAÐIR Í MIÐBORGINNI UPP Á LENGDAN OPNUNARTÍMA. UPPLAGT TÆKIFÆRI TIL AÐ BREGÐA SÉR AF BÆ OG NJÓTA MYNDLISTAR. FJÖLBREYTTAR SÝNINGAR OG VIÐBURÐIR! NÁNARI UPPLÝSINGAR UM OPNUNARTÍMA OG DAGSKRÁ Á WWW.FIMMTUDAGURINNLANGI.IS 28 Lífið 27. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.