Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2022, Qupperneq 8

Skessuhorn - 07.09.2022, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 20228 Tilkynnt um skothvelli AKRANES: Hringt var í Neyðarlínuna skömmu eftir miðnætti á laugardaginn og tilkynnt um skothvelli sem kæmu frá Jaðarsbökkum á Akranesi. Enginn sást á ferðinni þegar farið var á vettvang en óskað var eftir aðstoð sérsveitar sem kom á Akranes. Talsverður tími fór í það að kanna málið en ekk­ ert kom út úr því þrátt fyrir hjálp sérsveitar. -vaks Voru látnir blása HVALFJ.SV: Fjölmargir ökumenn voru stöðvaðir síð­ asta sunnudagsmorgunn við Hvalfjarðargöngin við eftir­ lit með ölvunarakstri. Voru ökumenn látnir blása og var aðeins einn ökumaður sem blés undir mörkum og tók farþegi í bílnum við akstrinum. -vaks Bílvelta endaði á toppnum NORÐURÁRD: Hringt var í Neyðarlínuna síðdegis á mánudaginn og tilkynnt um bílveltu sem varð á Vestur­ landsvegi á móts við Sveina­ tungu. Þegar lögreglan kom á vettvang voru öku­ maður og farþegi komnir út úr bílnum. Sátu þar skammt frá og bifreiðin á hvolfi utan vegar. Ökumaður hafði misst stjórn á bílnum, fór eina til tvær veltur og end­ aði á toppnum. Þeir voru eftir atvikum í uppnámi eftir velturnar og voru fluttir á heilsugæslustöðina í Borgar­ nesi með sjúkrabifreið til nánari skoðunar. Kranabif­ reið kom síðan á staðinn og fjarlægði ökutækið. -vaks Skessuhorn er á Instagram Instagramsíða Skessuhorns heitir skessuhorn.is og eru lesendur hvattir til að fylgja henni. Þegar líður á haustið verða settar þar inn nýjar fréttir, myndir og mynd­ bönd. Skessuhorn er líka með Facebooksíðu, hægt er að líka við hana og fá þá fréttir af skessuhorn.is í fréttaveituna. -gbþ Vetraropnun í vita og laug Um mánaðamótin tók í gildi vetraropnun í Akranesvita en á Breið er jafnframt upp­ lýsingamiðstöð ferðamanna á Akranesi. Einnig breytist opnunartími baðlaugarinnar Guðlaugar við Langasand. Opið verður í vitanum á mánudögum kl. 10­14 og á þriðjudögum til föstudaga frá klukkan 10 til 16. Lokað verður um helgar. Guðlaug verður opin fjóra daga í viku; miðvikudaga og föstudaga klukkan 16­20, en laugar­ daga og sunnudaga klukkan 10­18. -vaks Aflatölur fyrir Vesturland 27. ágúst – 2. september Tölur (í kílóum) frá Fiski- stofu Akranes: 4 bátar. Heildarlöndun: 28.476 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 24.784 kg í þremur löndunum. Arnarstapi: 0 bátar. Engin löndun á tímabilinu. Grundarfjörður: 6 bátar. Heildarlöndun: 675.042 kg. Mestur afli: Helga María RE: 151.531 kg í einum róðri. Ólafsvík: 14 bátar. Heildarlöndun: 217.863 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarna­ son SH: 50.442 kg í fjórum róðrum. Rif: 5 bátar. Heildarlöndun: 179.860 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 90.209 kg í einni löndun. Stykkishólmur: 3 bátar. Heildarlöndun: 17.465 kg. Mestur afli: Bára SH: 15.742 kg í fjórum löndunum. 1. Helga María RE – GRU: 151.531 kg. 28. ágúst. 2. Viðey RE – GRU: 137.791 kg. 30. ágúst. 3. Tjaldur SH – RIF: 90.209 kg. 29. ágúst. 4. Áskell ÞH – GRU: 76.730 kg. 30. ágúst. 5. Vörður ÞH – GRU: 64.666 kg. 31. ágúst. -sþ Eftir að gjaldskylda var tekin upp á nýja bílastæðinu við áningarstaðinn Kirkjufell í Grundarfirði hafa ferða­ menn gert ýmislegt til að spara sér gjaldtökuna. Flestir ferðamennirnir leggja nú á bílastæðinu en svo er alltaf einn og einn sem freistast til að finna sér bílastæði utan við hið hefðbundna stæði. Þá fylgja oft fleiri í kjölfarið og myndast ein­ hvers konar hjarðhegðun við uppá­ tækið. Fréttaritara blöskraði þó ástandið á dögunum þegar hann átti leið þarna framhjá. Fleiri bílar voru þá á afleggjaranum að bænum Hálsi heldur en á bílastæðinu sjálfu. Þetta veldur eflaust óþægindum fyrir landeigendur á Hálsi sem reka þar ferðaþjónustu og smá geita­ og fjár­ búskap. Hátt í tuttugu bílar voru á afleggjaranum en ellefu á sama tíma á bílastæðinu. tfk ,,Við vorum að koma úr Hítará og það var rólegt. Það veiddust nokkrir laxar í hollinu. Í fyrra á sama tíma fengum við fína veiði,“ sagði Axel Ingi Viðarsson sem var við veiðar í Hítará á Mýrum. Áin hefur nú gefið sömu veiði, nánast upp á fisk, og fyrir ári, eða í kringum 550 laxa. Vatnið hefur ekki vantað í sumar en fiskurinn hefur verið fremur tregur þegar liðið hefur á veiðitím­ ann. ,,Við vorum í Haukadalsá og Langá um daginn en fiskurinn tók bara alls ekki hjá okkur, hann var helvíti tregur,“ sagði veiðimaður og bætti við: „Það var sama hvað þeim var boðið, sérstaklega í Langá, þeir höfðu bara engan áhuga,“ sagði veiðimaðurinn ennfremur. Já, ballið er að vera búið, þrátt fyrir að veiðin hafi verið góð á tímabili í sumar, eru nokkrar lax­ veiðiár varla að ná veiðinni í fyrra. Norðurá er nú í kringum 1300 laxa, í fyrra gaf hún 1431 lax. Haffjarðará vantar ennþá 100 laxa upp á veiðina í fyrra og svona mætti áfram telja. Mikið vatn er í ánum en færri fiskar og þeir eru tregir að taka. gb Stefnt er að því að hefja fram­ kvæmdir við lagningu Sundabrautar árið 2026 og að hún verði tekin í notkun árið 2031. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Mikil tímamót urðu í síðustu viku þegar verkefnisstjórn Sundabrautar hélt sinn fyrsta fund. Sá fundur setur ákveðinn tón og gefur fólki von um að Sundabrautin verði að lokum að veruleika. Í verkefnisstjórninni sitja tveir fulltrúar frá Vegagerðinni auk fulltrúa frá innviðaráðuneytinu, Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hlutverk verkefnisstjórnarinnar er einkum að hafa umsjón með og fylgja eftir undirbúningi framkvæmda við Sundabraut. Þá hefur Vegagerðin auglýst eftir verkefnastjóra sem mun vinna fyrir verkefnisstjórnina að margþættum undirbúningi þessa stóra verkefnis. Lagning Sundabrautar styttir ferðatíma vegfarenda til og frá höfuð borgarsvæðinu og er sam­ kvæmt niðurstöðum félagshag­ fræðilegrar greiningar, metin þjóð­ hagslega hagkvæm. Útdrátt úr þeirri greiningu má finna á vef Vegagerðarinnar. Þá feli Sunda­ braut í sér mikinn samfélagslegan ávinning, hvort sem hún verði lögð með brú eða jarðgöngum undir sjó. Mestur ábati við opnun Sunda­ brautar felst í minni akstri, útblæstri og mengun en heildarakstur á höf­ uðborgarsvæðinu gæti minnkað um 150 þúsund kílómetra á hverjum sólarhring. gbþ Ferðamenn freistast til að spara stöðugjaldið Verkefnisstjórn Sundabrautar á sínum fyrsta fundi. Frá vinstri. Bryndís Frið­ riksdóttir frá Vegagerðinni, Árni Freyr Stefánsson fulltrúi innviðaráðuneytis, Sævar Freyr Þráinsson fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir fulltrúi frá Reykjavíkurborg og Guðmundur Valur Guðmundsson frá Vegagerðinni. Ljósm. Vegagerðin. Verkefnisstjórn Sundabrautar hélt sinn fyrsta fund Brynjar Þór Hreggviðsson með lax úr Norðurá í Borgarfirði. Skrýtnu veiðisumri að ljúka

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.