Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2022, Qupperneq 16

Skessuhorn - 07.09.2022, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 202216 aða sjúkdóm fyrir mörgum því þetta er sjúkdómur sem fáir vita af en er þó nokkuð algengur,“ segir Ragna en samkvæmt upplýsingum frá Alþjóða Alopecia samtökunum (NAAF) eru um 2% jarðarbúa sem fá einkenni þessa sjúkdóms ein­ hvern tímann á lífsleiðinni. Ragna segist líka vera ánægð með vit­ undarvakninguna sem hefur auk­ ist síðustu ár úti í heimi og líka hér á Íslandi, sérstaklega eftir mikla fjölmiðlaumfjöllun um Alopecia í fyrrasumar. „Það er fullt af konum með þetta, fullt“ Sumarið 2021 fór blaðamaður Mannlífs á stúfana og leitaði uppi konur sem eru með Alopecia. Blaðamaðurinn tók viðtöl við kon­ urnar og skrifaði mikið um sjúk­ dóminn það sumar. Í september var svo vitundarvakningarmánuður Alopecia og þá hittust allar kon­ urnar sem höfðu verið í umfjöllun Mannlífs um sumarið og skrifuð var sér grein um þann hitting. „Það var ekkert búið að tala um Alopecia í fleiri ár og fáir vissu af sjúkdómnum og ég finn núna sérstaklega eftir alla umfjöllunina síðasta sumar að fólk er meðvitaðra um að þótt ég sé sköllótt sé ekki endilega neitt alvar­ legt að, heldur sé þetta sjálfsofnæmi. Og það er fullt af konum með þetta, fullt,“ segir Ragna. Baldvin Á Facebook er stuðningshópur fyrir fólk með Alopecia. Hópur­ inn heitir Baldvin, sem er ákveðið orðagrín því enska orðið bald þýðir sköllóttur og gæti þýðing á nafninu þá verið ‚sköllóttir vinir‘. Hópurinn hefur verið að vakna til lífsins og segist Ragna vera búin að kynnast nokkrum konum í gegnum hópinn en líka á öðrum vettvangi. Aðspurð segist hún finna fyrir stuðning að vita af öðrum sem eru að takast á við sama verkefni og hún. „Maður finnur að maður er ekki Palli einn í heiminum þótt það sé kannski enginn í manns innsta hring með sama sjúkdóm. Þegar ég fór inn í Facebookhópinn sá ég hvað Alopecia er miklu algengari en fólk áttar sig á og ég áttaði mig á sjálf. Tekur mikið á sálina að fela hvernig maður er Stuttu eftir að Ragna rakar af sér hárið ákveður Ingvar eiginmaður hennar að mála mynd af henni sköllóttri. Ingvar er þekktur list­ málari og þegar hann setti inn mynd af málverkinu á samfélagsmiðlana sína hrúguðust inn skilaboð þar frá konum með Alopecia. „Margar þeirra voru bara að segja við hann hvað þetta væri falleg mynd og að þær vildu að þær hefðu kjark í að vera sköllóttar úti meðal fólks. Þetta var bara fullt af konum sem gengu með slæður eða hárkollur og við vorum bæði mjög hissa að sjá hvað það voru virkilega margar konur sem voru alveg hárlausar. Og líka konur sem voru með bletti hér og þar, ekki endilega búnar að missa allt hárið, og í fleiri ár búnar að reyna að fela skallablettina. Það tekur líka mikið á sálina; að vera alltaf að fela hvernig maður er. Það er dálítið hart. Sérstaklega í lengri tíma,“ segir Ragna og málið er henni augljóslega hugleikið. „Ég er að tala við þig, er það ekki“ Hvað ætlar Ragna að gera í til­ efni septembermánaðar til að vekja athygli á Alopecia? „Ég er að tala við þig, er það ekki!“ segir Ragna og hlær. Hún bætir við að það sé ekki sérlega mikið í gangi á Íslandi, það séu til að mynda engir skipulagðir hittingar eða viðburðir. Ragna fylgist þó mikið með Alopecia sam­ félaginu á samfélagsmiðlum en úti í heimi er mjög virkt starf. Í Bret­ landi er til dæmis risastórt samfé­ lag og þar eru skipulagðir hittingar. „Þau eru með boli og skrúðgöngur og alls konar og ég sé það bara allt á samfélagsmiðlum. Það er miklu meira um svona starf úti í heimi heldur en er hér en kannski ætti maður bara að keyra svona starf í gang hér heima, það er kannski ekki svo vitlaust,“ segir Ragna en hún er viðbúin því að sjá og lesa mikið af sögum fólks með Alopecia á næstu vikum. „Fólk segir oft sögurnar sínar í þessum mánuði og foreldrar barna með Alopecia deila gjarnan sögunum þeirra. Ég er að fylgja mörgum svona aðgöngum á Instagram þannig það kemur alla­ vega mikið inn á Instagrammið hjá mér núna á næstunni,“ segir Ragna. Mikilvægt að sjá sköll- óttar fyrirsætur Það sem Ragna er kannski ánægð­ ust með hvað varðar vitundarvakn­ ingu er að núna eru fyrirtæki farin að ráða inn fjölbreyttari fyrir­ sætur til að auglýsa varning. Þar nefnir hún ákveðið sundfatafyrir­ tæki í Bandaríkjunum sem réði til sín fyrir sætu sem er með Alopecia. „Hún er sem sagt fyrsta sköllótta módelið sem ég hef séð hjá sund­ fatalínum og hún er alveg geggjuð, svo ótrúlega flott! Svo versla ég líka mikið á Asos og núna nýlega komu inn sköllóttar fyrirsætur þar. Þetta er alveg ótrúlega mikilvægt fyrir okkur sem erum með þennan sjúk­ dóm því þetta hjálpar vitundarvakn­ ingunni, bara það að fólk sjái meira. Mér fannst ótrúlega gaman að sjá þetta og þetta hjálpar mér persónu­ lega líka því eftir að ég missti hárið þá hugsa ég meira um hvernig ég lít út í þessu og hinu. Þegar þú ert með hár þá getur þú hugsað að þú verðir t.d. með krullað hár þegar þú ert í þessum kjól og getur sett hárið upp við annan kjól. En þegar þú ert sköllótt þá gerir þú engar krullur, þú bara málar þig og ferð í kjólinn,“ segir Ragna en hún hafði alltaf mjög gaman af því að krulla á sér hárið og dunda sér við að greiða það og gera það flott. „Svo er ég núna búin að missa hárið og ég er ekki að fara að gera neinar krullur. Það er dálítið skrýtið, en ekkert mál engu að síður.“ Blaðamaður skýtur þá inn í að hún hafi í þokkabót eignast þrjá stráka. Það er stutt í húmorinn og gleðina hjá Rögnu og hún svarar um hæl að hún láti syni sína safna hári svo hún geti greitt það og dúllað í því. Erfiðast að sakna Ragna ber höfuðið hátt og hefur tekist á við þetta verkefni með jákvæðu hugarfari og húmor þótt sjúkdómurinn hafi lagst á andlegu hlið hennar. Eiginmaður hennar er hennar stoð og stytta og fjölskyldu­ lífið er henni afar kært. Hún er glöð og þakklát fyrir að sjúkdómur­ inn hái henni ekki í daglegu lífi en hún syrgir hárið sem hún hafði. „Það sem var erfiðast í þessu fyrir mig var kannski ekki áfallið við að missa hárið og að það væri að ger­ ast heldur var það kannski frekar söknuðurinn. Ég held að það sé búið að vera það erfiðasta, að sakna. Ég var líka bara, sorrý, með falleg­ asta hár í heimi, það var svo sítt og þykkt og gordjöss og ég kann að meta það svo mikið núna þegar ég hef það ekki lengur. Og söknuð­ urinn er kannski líka svona mikill því ég veit að ég mun líklega aldrei fá hárið aftur. Þá mun ég aldrei fá að gera það sem mér fannst svo skemmtilegt, að hugsa um hárið, krulla það og gera það fallegt,“ segir Ragna og er orðin ansi meyr, hún hristir það þó fljótt af sér og bætir við. „En það er bara eins og það er, lífið kemur til manns og maður ræður ekki alltaf yfir öllu.“ Vill vinna í velferðar- kerfinu Ragna er sem fyrr segir nemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Hún hefur mikinn áhuga á vel­ ferðarkerfi Íslands og sérstaklega því sem snýr að börnum og sér fyrir sér að vinna við eitthvað tengt því í náinni framtíð. „Ég byrjaði að læra viðskiptafræði í háskól­ anum. Maður vinkonu minnar var hins vegar að vinna hjá Barna­ vernd og mér fannst það svo ótrú­ lega áhugavert að ég var alltaf að spyrja hann út í vinnuna. Í sam­ tölum mínum við hann kviknaði bara mikill áhugi hjá mér á vel­ ferðarkerfum og þá sérstaklega því sem kemur að börnum. Hann benti mér á félagsráðgjafa námið og þegar ég las námslýsinguna á því námi þá fannst mér hún svo spennandi og allt í henni átti vel við mig svo ég ákvað að skrá mig.“ Félagsráð­ gjöf er að sögn Rögnu mjög víðtæk fræðigrein og býður upp á margt ólíkan starfsvettvang. „Ég myndi vilja vinna að einhverju sem snýr að börnum og þeirra velferð en mér finnst líka áhugaverð til dæmis samskipti hjóna og para og ég held ég væri líka til í að skoða það, ein­ hvers konar hjónaráðgjöf. Þannig það tvennt kveikti áhuga minn á að byrja í félagsráðgjöfinni,“ segir Ragna. Heldur áfram að lifa í sátt og gleði Í dag er Ragna í fæðingarorlofi með Sebastian Þór. Hún ætlar að njóta þess að vera með hann heima út árið og heldur svo áfram með háskóla­ námið í janúar. Þegar Ragna er innt eftir framtíðarplönum kemur á hana smá fát en svo svarar hún. „Við fjölskyldan erum á næstu mánuðum að fara að flytja og koma okkur fyrir í öðru hverfi. Svo bara ætla ég að halda áfram að lifa í sátt og gleði. Ég held að það sé bara það eina sem maður getur planað. Getur maður planað eitthvað í þessu lífi fyrir utan það? Já og kannski ná mark­ miðum sínum og elta hamingjuna. Það eru mín plön,“ segir Ragna að lokum og lífsgleðin leynir sér ekki hjá þessari kjarnakonu. gbþ/ Ljósm. aðsendar Barnalán. Frá vinstri: Mikael Þór, Una Björg, Sebastian Þór, Benedikt Þór. Ragna og Ingvar giftu sig sumarið 2021. Ekki kom annað til greina hjá Rögnu en að vera sköllótt í brúðarkjólnum. Í Danmörku í sumar þar sem Ingvar Þór tók þátt á stórri listsýningu.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.