Skessuhorn - 07.09.2022, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2022 19
Kristrún Frostadóttir alþingis
maður (S) hefur boðað framboð sitt
til formennsku Samfylkingarinnar,
en ný forysta verður kosin í haust.
Af því tilefni hóf hún á mánudaginn
fundaferð um landið og var fyrsti
viðkomustaður hennar Frístunda
miðstöðin Garðavellir á Akranesi.
Fundir hennar í þessari herferð eru
öllum opnir og fyrirkomulag þeirra
með þeim hætti að Kristrún heldur
framsögu og svarar hún síðan
fyrir spurnum úr sal og tekur við
ábendingum gesta.
„Samfylkingin á að taka for
ystu í að breyta samfélaginu til
baka. Við þurfum að boða áherslu
breytingar og stunda jákvæða póli
tík,“ sagði hún í upphafi erindis
síns. „Við þurfum að fara aftur í
kjarna jafnaðar mennsku. Okkar
verkefni verður að boða trúverð
ugleika og setja ákveðin mál á
oddinn og standa með þeim,“ sagði
Kristrún og nefndi sérstaklega heil
brigðismál, kjaramál, velferðarmál
almennt og fjármál ríkisins. Hún er
t.d. andvíg skattalækkunum meðan
heilbrigðiskerfið er vanfjármagnað.
„Við þurfum að skapa í sam félagi
okkar fjárhagslegan grunn til að
kosta velferðarkerfið þannig að
allir landsmenn geti lifað sómasam
legu lífi. Við þurfum sömuleiðis
að setja á oddinn þau mál sem við
viljum standa fyrir í fjölflokka ríkis
stjórn þegar þar að kemur,“ sagði
Kristrún. Sagði hún að flokkur
hennar þurfi að tala skýrt þannig
að fólk viti fyrir hvað hann stendur.
Vísaði hún þar til samtakamáttar
jafnaðarmannafólks í landinu. Gat
hún þess að flokkurinn þyrfti að
bæta við sig auknu fylgi til að ná
fram breytingum í ríkisstjórn og
kvaðst bjartsýn um að það muni
takast.
Á fundinum sköpuðust líflegar
umræður og voru margir sem lögðu
orð í belg af þeim fjörutíu gestum
sem mættu. Vilhjálmur Birgis
son formaður VLFA hélt ræðu og
vísaði þar til kjarasamninga sem
eru lausir í haust. Fór hann m.a. í
tölum yfir hvað greiðslubyrði lána
almennings hefur hækkað vegna
hækkandi 3,75% hækkunar stýri
vaxta á síðustu mánuðum. Brýndi
hann formannsefni Samfylkingar
innar til dáða í þeim efnum að
koma almenningi í landinu til
hjálpar. Auk þess var á fundinum
rætt um sjávarútvegsmál, skatt af
auðlindum, evrópusambands og
gjaldmiðilsmál, húsnæðismarkað
inn og fjölmargt fleira.
mm
Á fundi byggðarráðs Borgar
byggðar síðastliðinn fimmtudag var
lokaliður á dagskrá dýravelferðar
mál í sveitarfélaginu. Þar segir orð
rétt: „Eftirlit með dýravelferð er á
hendi Matvælastofnunar (MAST).
Byggðarráð Borgarbyggðar leggur
til að umhverfis og landbúnaðar
nefnd eigi samtal við MAST um
framkvæmd eftirlitsheimsókna
og eftirfylgni með ábendingum. Í
Borgarbyggð er mikill fjöldi íbúa
sem heldur húsdýr og landbúnaður
er einn af hornsteinum atvinnulífs.
Undantekningarlítið er sú starf
semi til fyrirmyndar og vel gætt að
velferð dýra. Íbúar Borgarbyggðar
geta ekki unað því ef pottur er brot
inn í eftirliti MAST og ákvarðana
taka og framkvæmd samkvæmt
eigin reglum er hæg og óskilvirk.
Málleysingjar eiga að geta treyst
á að farið sé eftir ábendingum og
reglum fylgt við eftirlit og rann
sókn mála. Mál er varða velferð
þeirra þurfa að vera unnin hratt og
vel. Það er mikilvægt að íbúar hafi
vakandi auga með velferð dýra og
þakkarvert að slíkum ábendingum
sé komið í farveg til MAST,“ segir í
bókun byggðarráðs Borgarbyggðar.
mm
Haustið er nú að ganga í garð
með tilheyrandi uppskerutíma,
en lambakjöt, kartöflur, ber og
sveppir lita undirbúning margra
fyrir komandi vetur. Berjaupp
skeran hefur þó á flestum stöðum
brugðist en annað er að segja af
sveppauppskeru ársins. Skóg
ræktarfélag Borgarfjarðar stóð fyrir
þremur sveppagöngutúrum í lok
ágúst þar sem í boði var kennsla og
fræðsla í að finna, greina og geyma
sveppi. Helgi Guðmundsson skóg
fræðingur leiðbeindi göngu
hópnum og fræddi áhugasama
um sveppi sem á vegi þeirra urðu
en hann segir Vesturland vera eitt
besta sveppasvæði landsins, bæði
í formi magns og fjölbreytileika
tegunda.
,,Það var vel mætt miðað við
stuttan fyrirvara en þarna kom fólk
sem hafði aldrei tínt sveppi áður,
líka einhverjir sem höfðu verið að
tína í nokkur ár en vildu læra að
greina fleiri sveppi. Uppskeran í
ár virðist vera misjöfn eftir land
svæðum. Það eru engin töluleg
gögn til um sveppauppskeruna svo
þetta er svolítið bara hvað fólki
finnst. Sjálfur hef ég lítið komist á
sveppaveiðar en sé mikla aukningu
af fólki í sveppamó við vinnu mína
í skógunum,“ segir Helgi. Hann
vill meina að mikil vitundarvakning
hafi orðið í sveppatínslu á Íslandi en
sjálfur fór hann á fræðslunámskeið
um sveppi fyrir nokkrum árum.
,,Sveppirnir vaxa allan sólarhringinn
en það fer svoldið eftir hvaða svepp
þú ert að leita að hversu lengi aldinið
er sýnilegt og ætt. Hann getur verið
ósýnilegur í byrjun dags og skartað
svo sínu fegursta í lok dags, allt eftir
veðurfari og umhverfisaðstæðum.
Maður þarf helst að finna hvar
svepprótin er og fara öðru hvoru
að kíkja á staðina. Fólk sem stundar
þetta mikið er jafnvel með GPS hnit
á leynistöðunum. Stundum þarf að
grafa aðeins eftir þeim og lyfta upp
mosa og lyngi til að finna sveppi eins
og Kantarellur og Gulbrodda. Þetta
er reynsla og fræðsla en það finnast
þó nokkrir eitraðir og baneitraðir
sveppir á Íslandi, sem dæmi um það
þá eru bara í garðinum heima hjá
mér þriggja stjörnu matsveppir og
líka baneitraðir sveppir og allt þar á
milli. Allir pípusveppir á Íslandi eru
til dæmis ætir en þeir eru með eins
og svamphúð undir hattinum. Það er
til einn pípusveppur sem er kannski
hálfóætur en hann heitir Pipar
sveppur og getur verið sterkari en
chili og sumir nota hann sem krydd.
Ég hvet áhugasama til að mæta á
námskeið og í fræðslugöngur og
læra að greina einn ætan svepp á ári
til dæmis. Við Íslendingar erum að
byrja að uppgötva þetta hnossgæti
sem er út um allt í umhverfi okkar.
Einnig er þetta yndislegt fjölskyldu
útivera, fræðandi og nærandi. Ég vil
þakka öllum sem hafa mætt í sveppa
tínsluna hjá okkur í Skógræktinni en
það verður svo ein ganga í septem
ber sem verður auglýst á Facebook
síðu okkar innan tíðar.“ Helgi segir
um að gera að hugsa um sveppina
sem fersk matvæli og fagnar vaxandi
áhuga Íslendinga á sveppatínslu.
sþ
Málleysingjar eiga
að geta treyst því
að farið sé eftir
ábendingum
Áhugi á sveppamó fer vaxandi
Úr sveppagöngutúr í Reykholti sem haldinn var af Skógræktarfélagi Borgarfjarðar í síðustu viku. Ljósm. aðsend.
Kristrún hóf fundaferð sína á Akranesi
Hópur fermingarbarna úr Grundar
firði og Ólafsvík hefur síðustu daga
dvalið í Vatnaskógi í fermingar
búðum. Með þeim er Aðalsteinn
Þorvaldsson, sóknarprestur í
Grundarfirði og Snæfellsbæ, og
segir hann dvölina í Vatnaskógi
einkum snúast um að kynnast, fræð
ast og gera alls konar skemmtilegt.
Mikil veðurblíða hefur verið síðustu
daga og hafa krakkarnir meðal
annars leikið sér á bátum á Eyrar
vatni og tekið þar stutta sundspretti.
gbþ/ Ljósm. af
Bongóblíða í
Vatnaskógi
Aðalsteinn Þorvaldsson, sóknarprestur í Grundarfirði og Ólafsvík, er hér með
hressum krökkum.
Sannkölluð bongóblíða hefur verið í Vatnskógi síðustu daga.