Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2022, Síða 22

Skessuhorn - 07.09.2022, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 202222 Hver er uppáhalds mánuður ársins og af hverju? Spurning vikunnar Spurt á Akranesi Gunnlaugur Pálmason „Mars af því þá á ég afmæli.“ Birkir Guðjónsson „Júlí því þá er hásumar og aðal­ tíminn.“ Sigmundur Lýðsson „Ágúst vegna þess að það er dásamlegasti mánuðurinn.“ Þorgerður Benónýsdóttir „September því þá er hægt að fara út á sjó og í berjamó.“ Jóhannes Hreggviðsson „Júní af því sumarið er að koma ef það þá kemur.“ Í þessum lið leggjum við fyrir tíu spurningar til íþróttamanna úr alls konar íþróttum á öllum aldri á Vesturlandi. Íþróttamaður vik­ unnar að þessu sinni er golfarinn Margeir Ingi frá Stykkishólmi. Nafn: Margeir Ingi Rúnarsson Fjölskylduhagir? Í sambúð með Gerði Silju Kristjánsdóttur. Hver eru þín helstu áhugamál? Golf, pílukast og enski boltinn. Hvernig er venjulegur dagur hjá þér um þessar mundir? Er í vinnunni frá klukkan 7­18. Fæ mér kvöldmat fljótlega eftir að ég kem heim svo ég hafi tíma til að gera eitthvað um kvöldið. Hverjir eru þínir helstu kostir og gallar? Er alltaf frekar rólegur. Held að það sé frekar gott. Galli ­ get verið smávegis þverhaus annað slagið. Hversu oft æfir þú í viku? Hef ekki æft í langan tíma en reyni að fara reglulega níu holur. Hver er þín fyrirmynd í íþróttum? Pabbi, slær langt og góður í að pútta. Af hverju valdir þú golf? Pabbi var í golfi og ég fékk að fara með. Þá kviknaði áhuginn. Hver er fyndnastur af þeim sem þú þekkir? Birkir Freyr, vinnufé­ lagi minn. Ótrúlegur brandarakall. Hvað er skemmtilegast og leiðinlegast við þína íþrótt? Skemmtilegast er að horfa á eftir góðu upphafshöggi sem flýgur nógu langt og helst nokkuð beint. Leiðinlegast er að spilla illa í vondu veðri. Þá fer manni að hlakka til að komast heim. Get verið smávegis þverhaus Íþróttamaður vikunnar Prjónamenning virðist lifa góðu lífi milli kynslóða á Íslandi en nýverið hófust prjónakvöld fyrir ungar konur í Borgarnesi. Þær Dagbjört Birgisdóttir, Kolbrún Tara Arnar­ dóttir og Erla Katrín Kjartans­ dóttir stofnuðu prjónahóp á Face­ book en þær segja mikinn prjóna­ áhuga ríkja hjá sinni kynslóð. ,,Við sendum út tilkynningu því okkur langaði í prjónaklúbb en við vorum búnar að heyra svo margar á okkar reiki nefna hvað það væri gaman að stofna prjónahóp. Það er klár­ lega mikill áhugi hjá okkar aldurs­ hópi fyrir að prjóna. Við stofn­ uðum bara hóp á Facebook og hittumst núna öll mánudagskvöld á Kaffi Kyrrð. Við sáum fyrir okkur að skiptast á að halda þetta í heimahúsi en svo sprakk hópur­ inn svolítið og nú erum við komnar með rúmlega 40 stelpur í hópinn. Við erum svo heppnar að fá þessa aðstöðu en Kaffi Kyrrð er með opið lengur fyrir okkur þessa mánudaga og stefnum við á að halda því áfram í vetur. Fyrsta kvöldið sem við hitt­ umst vorum við að kenna einni að fitja upp svo það eru bæði stelpur að koma til að læra að prjóna en líka lengra komnir prjónarar. Þetta er engin keppni, bara afsökun til að hittast og eiga notalegt kvöld, fá sér kaffi og köku og spjalla saman,“ segja þær Erla Katrín og Kolbrún Tara í samtali við Skessuhorn. sþ Ungar konur prjóna saman í Borgarnesi Notaleg stemning hjá hópnum á Kaffi Kyrrð. Kolbrún Tara og Erla Katrín. Mánaðarlega eru haldnar messur í samkomusal hjúkrunar­ og dvalar­ heimilisins Höfða á Akranesi og eru þær yfirleitt vel sóttar af heim­ ilisfólki. Nú er búið að setja upp altarismynd í salnum sem hentar þessari notkun hans vel. Það er eftirmynd Bjarna Skúla Ketils­ sonar, Baska, af altaristöflunni í Dómkirkjunni í Reykjavík. Eftir­ mynd Dómkirkjumyndarinnar er í Akraneskirkju en þá mynd lag­ færði Baski fyrir tveimur árum. Hans verk kom þá tímabundið í stað upprunalegu altaristöflunnar á meðan á viðgerð hennar stóð. Því hlutverki er nú lokið svo þá lá vel við að fá myndina að Höfða. Sómdi hún sér afar vel í guðsþjón­ ustu sem Sr. Þóra Björg Sigurðar­ dóttir hélt þar í gær. Þar sagði Baski frá tilurð verks­ ins, sem var átta mánuði í vinnslu, enda vandað til verka og unnið með þeim aðferðum sem notaðar voru á öldum áður við gerð slíkra mynda. Upprunalegu altaristöfl­ una í Akraneskirkju málaði Sig­ urður Guðmundsson árið 1865 sem eftirmynd af altaristöflunni sem í dag prýðir Dómkirkjuna og er eftir danska listamanninn G.T. Wegener. gj Altaristafla komin á Höfða Margir voru viðstaddir guðs­ þjónustuna. Baski segir frá tilurð myndarinnar. Sr. Þóra Björg Sigurðardóttir er hægra megin við hann.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.