Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2022, Page 23

Skessuhorn - 07.09.2022, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2022 23 Kári og Vængir Júpiters áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu á föstu­ dagskvöldið og fór viðureignin fram í Akraneshöllinni. Vængir Júpiters komust yfir á 13. mínútu þegar Bjarki Fannar Arnþórsson skoraði fyrir gestina og þó að Kári væri meira með boltann það sem eftir lifði af hálfleiknum sköpuðu þeir sér lítið sem ekkert af færum, staðan 0­1 fyrir Vængina í hálfleik. Kári hélt áfram að leita að jöfnunar markinu í seinni hálf­ leik en gekk lítið. Það var síðan varamaðurinn Franz Bergmann Heimis son sem bjargaði stigi fyrir Kára á 76. mínútu þegar hann fékk stungusendingu inn fyrir vörn gest­ anna og kláraði færið afbragðsvel. Lítið markvert gerðist eftir þetta í frekar daufum leik sem ekki fer í sögubækurnar fyrir skemmtana­ gildi, lokatölur 1­1. Næsti leikur Kára í deildinni er gegn ÍH næsta laugardag í knattspyrnuhöllinni Skessunni í Hafnarfirði og hefjast leikar stund­ víslega klukkan 14. vaks ÍA tók á móti ÍR í úrslitakeppni sex efstu liða í 2. deild kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Akranesvelli. Skaga­ konur mættu vel stemmdar til leiks og voru ívið hættulegri í fyrri hálf­ leiknum og fengu nokkur góð færi sem þær náðu ekki að nýta. Fyrsta mark leiksins kom sex mín­ útum fyrir lok fyrri hálfleiks þegar Unnur Ýr Haraldsdóttir sem var búinn að vera ansi hættuleg til þessa í leiknum fékk boltann á vinstri kantinum. Hún átti frábæra sendingu beint á kollinn á Sam­ iru Suleman sem stangaði boltann í netið. Glæsilega gert hjá heima­ konum og þannig var staðan í hálf­ leik, 1­0 fyrir ÍA. Í byrjun seinni hálfleiks létu Skagakonur sverfa til stálsins á ný þegar Nikolina Musto átti fyrir­ gjöf fyrir mark ÍR sem markvörður gestanna ætlaði að grípa en missti boltann klaufalega yfir sig. Þar var Erla Karitas Jóhannesdóttir mætt á hárréttum stað, ýtti boltanum nán­ ast yfir línuna og kom Skagakonum í tveggja marka forystu. Eftir þetta skiptust liðin á að sækja og jafn­ ræði var með liðunum þó að sókn ÍR kvenna þyngdist nokkuð þegar líða tók á leikinn. Þær náðu síðan að minnka muninn níu mínútum fyrir leikslok þegar Lovísa Guðrún Einarsdóttir skoraði glæsilegt mark með þrumuskoti upp í vinkilinn. Skagakonur hengdu ekki haus eftir markið heldur spiluðu skynsam­ lega, tóku sinn tíma í allar aðgerðir og skoruðu mark fimm mínútum fyrir leikslok sem var dæmt af vegna rangstöðu sem var þó frekar tæp. Heimakonur héldu þetta út og fögnuðu mikilvægum sigri og eiga enn möguleika á sæti í Lengju­ deildinni á næsta tímabili. Staðan í deildinni er afar spenn­ andi en þar er Fram efst með 32 stig, Völsungur er með 30 stig, ÍR með 29 stig, Grótta 28 stig og ÍA með 25 stig. Það er ljóst að lítið má út af bregða hjá ÍA í þeim þremur leikjum sem eftir eru og ljóst að þær þurfa sigur í þeim öllum til að eygja möguleika á sæti í Lengjudeildinni. Næsti leikur ÍA í úrslitakeppninni er gegn toppliði Fram næsta föstu­ dag á Framvellinum í Úlfarsárdal og hefst klukkan 18. vaks Hið rómaða árgangamót ÍA fer nú fram að nýju eftir langt Covid hlé en síðast var mótið haldið árið 2019. Fresta varð mótinu síðustu tvö ár vegna kórónufaraldursins. Komin er dagsetning á mótið og verður það laugardaginn 12. nóvember eftir hádegi. Þar munu etja kappi knattspyrnumenn og ­konur sem eru 30 ára og eldri. Fyrsta árganga­ mót ÍA var haldið árið 2011 og það er ljóst að gamlir knattspyrnumenn og konur af Skaganum þurfa að fara að setja sig í startholurnar, pússa skóna og koma sér í form. vaks Skagamenn tóku á móti KR í 20. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á sunnudaginn og fór leikurinn fram í blíðskaparveðri á Akranesvelli. Það blés þó ekki byrlega fyrir ÍA í byrjun leiksins því eftir tæpan hálftíma leik voru gestirnir komnir með þriggja marka forystu. Fyrst skoraði fyrrum leik­ maður ÍA Aron Kristófer Lárusson með hörkuskoti eftir hornspyrnu, Sigurður Bjartur Hallsson skoraði síðan annað mark KR eftir klaufa­ gang í vörn ÍA áður en Atli Sigur­ jónsson kom KR í 0­3 með góðu skoti úr teignum. Skagamenn voru þó ekki á þeim stuttbuxunum að gefast upp því á 36. mínútu minnk­ aði Eyþór Aron Wöhler muninn fyrir heimamenn með góðum skalla eftir fyrirgjöf frá Jóni Gísla Eyland. Skömmu síðar beið Jón Þór Hauks­ son ekki boðanna þó stutt væri í hálfleik og gerði fjórfalda skiptingu sem ekki hefur sést áður í fyrri hálf­ leik í íslenskri knattspyrnu. Það var ekki lengi að bera árangur því rétt fyrir lok fyrri hálfleiks skoraði Gísli Laxdal Unnarsson annað mark ÍA þegar hann fékk boltann í teignum eftir að markvörður KR hafði varið skot Eyþórs Arons beint fyrir fætur Gísla sem lagði hann í markið og staðan orðin 2­3 þegar menn gengu til búningsherbergja. Seinni hálfleikur var rétt nýhafinn þegar Benedikt V. Waren jafnaði leikinn fyrir ÍA þegar hann fékk sendingu frá Eyþóri Aroni út í teiginn og negldi boltanum í fjær­ hornið. KR­ingar vöknuðu loks­ ins af værum blundi sex mínútum síðar þegar fyrrnefndur Atli þrum­ aði boltanum í þaknetið eftir gott spil gestanna. Fjörinu var hins vegar ekki lokið því tíu mínútum síðar komst Gísli Laxdal af harð­ fylgi upp að endamörkum og sendi boltann á mann leiksins, Eyþór Aron, sem setti hann snyrtilega í netið. Eftir þetta róaðist leikurinn nokkuð, lítið var um færi og eins og að menn hefðu fengið nóg af hama­ ganginum. KR­ingar voru líklegri í því að ná að bæta við marki en jafn­ tefli var lokaniðurstaðan, 4­4. Staðan í neðri hlutanum breytt­ ist lítið eftir viðureignir helgar­ innar því liðin sem eru í bar­ áttu við ÍA gerðu einnig öll jafn­ tefli í umferðinni. Staðan er nú þannig að ÍBV er í níunda sæti með 19 stig, FH með 16 stig, ÍA með 15 stig og neðstir eru Leiknir Reykjavík með 14 stig. Næsti leikur Skagamanna er fallbaráttu­ slagur gegn FH næsta sunnudag á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði og hefst klukkan 14. vaks Víkingur Ólafsvík og Reynir Sand­ gerði mættust á laugardaginn í 2. deild karla í knattspyrnu á Ólafs­ víkurvelli og lauk leiknum með naumum sigri heimamanna, loka­ tölur 2­1 fyrir Víking. Luke Williams kom Víkingi yfir á 23. mínútu með sínu fyrsta marki í sumar og síðan var það fyrirliðinn Bjartur Bjarmi Barkarson sem bætti við öðru marki úr vítaspyrnu eftir rúmlega hálftíma leik, staðan 2­0 í hálfleik. Magnús Magnússon minnk­ aði muninn fyrir Reyni á 68. mín­ útu og hleypti smá spennu í leik­ inn. Þremur mínútum fyrir leikslok fékk Adrian Sanchez í liði Víkings beint rautt spjald og samherji hans, Andri Þór Sólbergsson, fékk síðan tvö gul spjöld í uppbótartíma með tveggja mínútna millibili og þar með rautt en það kom ekki að sök. Víkingur náði mikilvægum þremur stigum því liðið tryggði sér sæti sitt í deildinni á næsta tímabili með þessum sigri og skildi Reynismenn eftir í erfiðri stöðu. Víkingur er í níunda sæti með 22 stig, KFA með 20 stig í tíunda sæti, Reynir með 14 stig nánast fallinn og neðstur er Magni með aðeins ellefu stig og fallinn í 3. deild. Næsti leikur Víkings í deildinni er á móti KFA í Fjarðabyggðarhöll­ inni á Reyðarfirði næsta laugardag og hefst klukkan 15.15. vaks Franz Bergmann skoraði jöfnunarmarkið fyrir Kára. Ljósm. vaks Kári gerði jafntefli við Vængi Júpiters Skagakonur unnu sigur á ÍR og eiga enn möguleika Víkingur Ó. hafði betur gegn Reyni Sandgerði ÍA er enn með í baráttunni um að komast upp í Lengjudeildina. Ljósm. sas Andri Þór Sólbergsson fékk rautt spjald gegn Reyni Sandgerði. Hér í leik á móti KF fyrr í sumar. Ljósm. af Árgangamót ÍA í knattspyrnu haldið á ný Jafntefli hjá ÍA og KR í miklum markaleik Eyþór Aron Wöhler skoraði tvö mörk og átti þátt í öllum mörkum ÍA gegn KR. Ljósm. Lárus Árni Wöhler

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.