Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.11.2022, Qupperneq 9

Fréttablaðið - 01.11.2022, Qupperneq 9
Álagningu opinberra gjalda á lögaðila árið 2022 er lokið Álagningu tekjuskatts 2022 á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2021 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er lokið. Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins á www.skattur.is. Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur miðvikudaginn 30. nóvember 2022. Álagningarskrá vegna álagningar 2022 á lögaðila verður lögð fram dagana 16. nóvember til 30. nóvember 2022 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík í Tollhúsinu Tryggvagötu 19. Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga. Reykjavík, 31. október 2022 ríkisskattstjóri skatturinn@skatturinn.is 442 1000 Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Umhverfisverðlaun Norðurlanda- ráðs verða veitt í kvöld í Helsinki við hátíðlega athöfn. Norður- landaráð veitir fimm verðlaun ár hvert: bókmenntaverðlaun, kvik- myndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og u ng l ingabók mennt averðlau n. Meðal þeirra sem afhenda munu verðlaunin eru tónlistarkonan og fyrrverandi verðlaunahafinn Eivør og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands. Votlendissjóðurinn er tilnefndur til Umhverfisverðlauna Norður- landaráðs en þau eru veitt starfsemi eða einstaklingi á Norðurlöndum sem sett hefur fordæmi með því að samþætta virðingu fyrir umhverf- inu í starfi sínu, eða með því að sýna frumkvæði á annan hátt að sértækum aðgerðum umhverfinu til góða. Þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2022 er „Náttúru- miðaðar lausnir – alhliða svar við hinum stóru umhverfisáskorunum samfélagsins.“ Þessi tilnefning er okkur sem komum að sjóðnum og höfum gert síðustu ár afar mikils virði. Lang- mestan hlut í henni eiga frumkvöð- ullinn Eyþór Eðvarðssonar og þeir einstaklingar, fyrirtæki og félaga- samtök sem tóku þátt í því að gera þessa hugmynd að veruleika. Það verður ekki sagt nógu oft að Votlendissjóðurinn er óhagnaðar- drifinn sjálfseignasjóður sem starf- ar á frjálsum frumkvæðismarkaði fyrirtækja, stofnana og einstaklinga sem vilja styðja sjóðinn í okkar veg- ferð, sem er ekki bara stöðvun los- unar koldíoxíðs á ódýran og kraft- mikinn hátt, heldur líka aðgerð í endurheimt vistkerfa og stuðningur fyrir náttúrulegan fjölbreytileika sem aldrei verður metinn til fjár að fullu. Við sjóðinn vinnur einn starfs- maður og sjóðurinn er skipaður fólki sem ekki þiggur laun eða hlunnindi fyrir sína vinnu. Sjóðurinn nýtur engra fjárframlaga frá ríkinu. n Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs Davíð Oddsson bauð sig fram gegn sitjandi formanni snemma árs 1991 og hafði glæstan sigur. Þá skálaði Ólafur Thors á himnum! Leit er að íslenskum stjórnmála- manni sem er rökfastari eða betur máli farinn en Bjarni Benediktsson. Enginn stjórnmálamaður í öðrum flokki hefur roð við honum í rök- ræðum. Samt vegnar Sjálfstæðis- f lokknum alltaf illa í kosningum nú orðið. Eftir bankahrunið 2009, sem margir kjósendur kenndu Sjálf- stæðisflokknum um, fékk flokkur- inn samt tæp 24% atkvæða. Við kosningarnar 2013 jók flokkurinn aðeins lítillega við fylgi sitt eftir að hafa spilað hræðilega af sér með stuðningi við Icesavesamningana. Flestir Sjálfstæðismenn lögðust gegn Icesave. Það gerðu hins vegar aðeins örfáir þingmanna, þar á meðal Guðlaugur Þór Þórðarson, sem ekki greiddi atkvæði með Ice- save. Staðan hélst á sama róli árið 2017 og 2021. Sjálfstæðisflokkurinn hefur enn ekki náð ásættanlegum árangri síðan 2009. Árið 2007 var fylgið tæp 37%. Það ár var Frjáls- lyndi flokkurinn, sem var að hluta klofningur úr Sjálfstæðisflokknum, með rúmlega 7% fylgi. Hvað er til ráða? – En ekki gera ekki neitt. Formannsskipti í Sjálfstæðisflokknum Þrisvar hefur alvöruframboð komið fram gegn sitjandi formanni. Árið 1987 dalaði fylgi f lokksins niður undir svipað horf og nú er, þá undir forystu Þorsteins Pálssonar, gersam- lega misheppnaðs forystumanns. Við þá stöðu varð ekki unað og svo fór að Davíð Oddsson bauð sig fram gegn sitjandi formanni snemma árs 1991 og hafði glæstan sigur. Þá skál- aði Ólafur Thors á himnum. Í fram- haldinu vann Sjálfstæðisflokkurinn mikinn kosningasigur. Þorsteinn var áfram einn helsti forystumaður f lokksins og ráðherra eftir ósigur sinn. Árið 2009 tjáði Bjarni Bene- diktsson sitjandi formanni að hann myndi bjóða sig fram gegn honum. Ekki kom þó til þess að kosið yrði milli Bjarna og Geirs Haarde. Ég styð Guðlaug Þór Þórðarson Ég styð Guðlaug Þór Þórðarson á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um næstu helgi. Guðlaugur er kominn af óbreyttu alþýðufólki og hefur af miklum dugnaði komist til efna og metorða af eigin rammleik. Og að mínu mati er formennska Bjarna því miður fullreynd. Þrátt fyrir mikla hæfileika nær Bjarni engan veginn til almennings. Við almennir f lokksmenn sem tökum mikinn þátt í kosningaundirbún- ingi verðum áþreifanlega varir við andstöðuna við Bjarna. Andstaðan við hann tengist oftast einhverjum umdeildum málum. Ég hef nefnt Icesave hér að framan. Nú síðast, korteri fyrir kosningar, dreif hann í gegn sölu á hlutum í Íslands- banka. Hann mátti vita að neikvæð umræða myndi blossa upp. Ekkert lá á sölunni. Samt afréð hann að láta slag standa. Margt fleira mætti nefna, en ég nefni tvö augljós dæmi. Íslandsbankasalan kostaði okkur mikið fylgi að mínu mati þótt ekki sé dýpra í árina tekið. Neikvæð viðbrögð stuðningsmanna Bjarna Benediktssonar Fyrrum aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, Friðjón R. Frið- jónsson, borgarfulltrúi og ráðgjafi Sjálfstæðisflokksins, brást illa við framboði Guðlaugs í Silfrinu. Mér hugnaðist illa að hann skyldi láta að því liggja að orð færi af því að Guðlaugur væri spilltur stjórn- málamaður. Hann hélt því blákalt fram að landsfundur flokksins hefði ályktað að Guðlaugur ætti að segja af sér vegna próf kjörsframlaga. Þetta eru helber ósannindi. – Er Friðjóni virkilega sætt eftir þetta? Að mínu mati hafa fylgismenn Bjarna Benediktssonar farið langt fram úr sér í viðbrögðum við fram- boði Guðlaugs. Og Bjarni að sínu leyti líka. Sjálfstæðismenn, allir sem einn, eiga að fagna þeim einstaka lýðræðislega viðburði sem lands- fundurinn er. Einstaka ráðherra hefur hringt í landsfundarfulltrúa og tjáð þeim að það jafngildi van- trausti á ríkisstjórn og kosningum á erfiðum tímum að kjósa Guðlaug! Þetta er hreinn tilbúningur. Að hinu leytinu var yfirlýsing Bjarna um að hann yrði að hætta afskiptum af pólitík biði hann lægri hlut mjög svo vanhugsuð og sögð í hita leiks- ins. Hinir miklu hæfileikar Bjarna eiga áfram að geta nýst okkur í þágu þjóðarinnar hvor þeirra sem hefur betur. Ég skora á Bjarna, sem ég hef átt samskipti við og stutt dyggilega eins og hann getur vottað, að endur- skoða hug sinn og draga þetta til baka. n Sjálfstæðisflokkurinn þarfnast nýrrar forystu Einar S. Hálfdánarson löggiltur endurskoðandi og hæstaréttarlög- maður Einar Bárðarson framkvæmdastjóri Votlendissjóðs Ég styð Guðlaug Þór Þórðarson á lands- fundi Sjálfstæðisflokks- ins um næstu helgi. Guðlaugur er kominn af óbreyttu alþýðufólki og hefur af miklum dugnaði komist til efna og metorða af eigin rammleik. ÞRIÐJUDAGUR 1. nóvember 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.