Fréttablaðið - 01.11.2022, Síða 12

Fréttablaðið - 01.11.2022, Síða 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Fætur toga standa á tíma- mótum því fyrir tæpri viku tók fyrirtækið á móti hvorki meira né minna en 75 þúsundasta viðskiptavini sínum í göngugreiningu. „Þann 26. október tókum við á móti viðskiptavini númer 75 þúsund í göngugreiningu og í dag, þriðjudaginn 1. nóvember, afhend- um við innlegg númer 81 þúsund,“ segir Lýður B. Skarphéðinsson, gjarnan kallaður „skódoktorinn“ en Lýður er sérfræðingur í göngu- og hlaupagreiningum. Lýður hefur unnið sem sér- fræðingur í göngugreiningum hjá Stoðtækni, Gísla Ferdinandssyni, Flexor og Össuri, eða allt þar til hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Fætur toga, árið 2010. Hann hefur einnig haldið fjölda fyrirlestra, skrifað greinar og komið fram í sjónvarpi og útvarpi. „Frá því Fætur toga opnuðu fyrir tólf árum höfum við afhent 57.000 innlegg eftir göngugreiningu, 13.400 innlegg sem aukapör og 10.600 innlegg hafa verið smíðuð eftir tíma í endurkomu. Þeir sem eru með mislengd ganglima koma svo allir í endurkomu og öðrum stendur það til boða,“ upplýsir Lýður. Nýr búnaður og 3D-innlegg Fætur toga tóku nýverið í notkun nýjar RsScan V9 þrívíddar-þrýsti- plötur (3D) og hugbúnað frá hátæknifyrirtækinu Materialis. „Plöturnar og búnaðurinn er sá fullkomnasti sem völ er á,“ greinir Lýður frá. „V9-þrýstiplöturnar styðja prentun á þrívíddar-inn- leggjum og fyrir nokkrum dögum fengum við fyrstu þrívíddarprent- uðu innleggin okkar. Prentun á 3D-innleggjum eru framtíðin og við erum spennt yfir því að vera komin þangað.“ 3D-prentuðu innleggin og búnaðurinn frá Materialis fengu fyrstu verðlaun á ISPO, stærstu íþróttavörusýningu í heimi. „Nýju 3D-innleggin okkar eru sterk, létt og falla fullkomlega að fæti hvers og eins. Þau eru frábær í íþróttaskó, gönguskó og vinnuskó,“ segir Lýður. Höggdempandi innlegg Í samstarfi við þýskt stoðtækja- fyrirtæki hafa Fætur toga þróað nýjar gerðir af höggdempandi inn- leggjum fyrir börn og fullorðna. „Innleggin eru gerð úr PU-efni sem er sama efni og notað er í mið- sólann á mörgum hlaupaskóm. PU-innlegg minnka ekki högg- dempun í hlaupaskóm en þau auka hana í öðrum skóm og passa ein- staklega vel í íþróttaskó, gönguskó og vinnuskó,“ útskýrir Lýður. Fjaðrandi innlegg sem eru hituð og löguð að fæti hvers og eins Sérfræðingar Fætur toga eru jafn- framt sérfræðingar í Footbalance Medical. „Footbalance-innleggin hafa unnið til fjölda verðlauna en þau eru hituð og mótuð undir fótinn. Því eru þau sérgerð fyrir hvern og einn. Footbalance-innleggin taka lítið pláss í skóm og passa vel í skóbúnað sem gefur ekki mikið pláss, svo sem fótboltaskó og fínni götuskó,“ upplýsir Lýður og þess má geta að Footbalance-innleggin eru afhent á staðnum. Leiðandi í göngugreiningum Fætur toga er fjölskyldufyrirtæki þar sem lögð er áhersla á gæði og persónulega þjónustu. Fyrirtækið er leiðandi í göngugreiningum og í verslunum Fætur toga á Höfða- bakka 3 og Heilsuhæð Kringlunnar sér fagfólk um göngugreiningar, fót- skoðun, skósölu og sölu fylgihluta. Elva og Lýður reka Fætur toga á tveimur stöðum í höfuðborginni, á Höfðabakka 3 og á heilsuhæð Kringlunnar. Fætur toga sérhæfir sig í sölu á gæðavörum á sanngjörnu verði. Rut Valsdóttir frá Akureyri er 75.000 viðskiptavinur Fætur toga. MYND/AÐSEND „Við vinnum náið með íþrótta- hreyfingunni og fagaðilum í heilbrigðisstétt. Sérfræðingar á vegum fyrirtækisins ferðast vítt og breitt um landið með göngu- og hlaupagreiningar, kynningar og sölu á tengdum vörum. Einnig ráðleggur starfsfólk okkar um hlaupafatnað og íþróttatoppa og mælir með vörum fyrir fætur, svo sem tábergspúða, upphækkanir, sérsmíðuð og stöðluð innlegg, auk skóbreytinga. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á gæðavörum og leggur metnað í góða þjónustu og sann- gjörn verð,“ greinir Lýður frá. Fagfólk með gríðarlega reynslu og þekkingu Við hlið Lýðs í Fætur toga starfa reynslu- miklir sérfræðingar sem búa yfir mikilli þekkingu. Þau sem taka hlýlega og af fagmennsku á móti viðskiptavinum eru: n Elva Björk Sveinsdóttir, sér- fræðingur í göngu- og hlaupa- greiningum. Elva hefur tekið fjölda Íslendinga í göngugrein- ingu og smíðaði áður innlegg fyrir Gísla Ferdinandsson og Össur. Frá árinu 2010 hefur Elva smíðað innlegg fyrir sitt eigið fyrirtæki, Fætur toga. n Alexander Harrason, jafnan kallaður Alex, er sérfræðingur í göngugreiningum. Hann lærði íþróttafræði og Footbalance- innleggjagerð í Noregi; algjör skósérfræðingur. Hann hefur tekið fleiri en 15 þúsund Íslend- inga í göngu- greiningu. n Gunnlaugur Elsuson, eða Gulli, er sér- fræðingur í göngugreining- um. Hann er íþróttafræðingur að mennt og PGA-golfkennari, vanur að leiðrétta hreyfingar í golfkennslunni. Gulli passar því fullkomlega í það hlut- verk að skoða skekkjur í fótum, mjöðmum og baki hjá Fætur toga. n Katrín Sara Reyes er íþrótta- fræðingur og sérfræðingur í göngugreiningum, og hefur mikla reynslu í því að vinna með fólk. n Fætur toga eru á Höfðabakka 3 og í Kringlunni. Sími 55 77 100. Netfang: faeturtoga@faetur- toga.is. Sjá nánar á faeturtoga.is Nýju 3D-prentuðu innleggin eru sterk, létt og falla fullkomlega að fætinum. PU-inn- leggin eru höggdempandi og passa vel í íþrótta-, göngu- og vinnuskó. Fjaðrandi innlegg eru hituð og mótuð fyrir fætur hvers og eins. 2 kynningarblað A L LT 1. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.