Fréttablaðið - 01.11.2022, Side 26
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
islenskt.is
Gígja Sara Björnsson hefur
verið vegan frá árinu 2006.
Á þeim tíma voru fáir sem
vissu hvað orðið þýddi. Fólki
fannst ákvörðun hennar
skrýtin og margir spurðu
hana leiðinlegra spurninga.
Hún segir að staðan í dag sé
allt önnur.
sandragudrun@frettabladid.is
Fólki sem velur að sneiða hjá
dýraafurðum hefur fjölgað tölu-
vert frá árinu 2006 og viðhorfið til
lífsstílsins er orðið allt annað. Það
er að minnsta kosti upplifum Gígju
Söru Björnsson.
„Fólk veit betur út á hvað vegan
lífsstíll gengur og spurning-
arnar sem ég fæ hafa breyst. Ég
var unglingur þegar ég ákvað að
hætta að borða kjöt. Á þessum
tíma var ekki eins mikið talað um
hvernig kjötiðnaðurinn er, en ég
sá umfjöllun um það í sjónvarpinu
og fékk smá sjokk. Á þessum tíma
átti ég líka ketti og ég hugsaði með
mér að ég gæti ekki hugsað mér að
borða kettina mína og þá gat ég
ekki heldur hugsað mér að borða
önnur dýr. Hugsjónin var ekkert
dýpri en það fyrr en seinna. En
hugsjónin bak við það af hverju ég
er vegan hún rokkar, ég er náttúru-
lega búin að vera vegan svo lengi
að ég fer í 100 hringi með hana,“
segir Gígja Sara.
„Þetta var eiginlega andlegt upp-
haflega. Mér fannst bara óþægileg
tilhugsun að borða eitthvað sem
er dautt. Það er náttúrulega hægt
að segja að gulrót sé dauð. En ég
upplifði það þannig að mér þótti
óþægilegt að setja dauð dýr inn í
líkama minn og svo þróaðist það
þannig að ég gat ekki breytt því.“
Þóttist vera með mjólkuróþol
Til að byrja með var Gígja græn-
metisæta en seinna fór hún að lesa
sér til á netinu og ákvað þá að taka
út mjólkurafurðir líka. Það fannst
fólki skrítið.
„Fyrst þegar ég var að byrja
á þessu mataræði þá laug ég og
sagðist vera grænmetisæta með
mjólkuróþol ef ég var á veitinga-
stöðum, til að sleppa við leiðinleg-
ar spurningar. Ég upplifði mikinn
félagskvíða við að fara út að borða
með fólki því þá fékk ég oft leiðin-
legar athugasemdir. En mér fannst
líka margir sýna þessu áhuga og
vildu skilja mig,“ segir hún.
„En svo venst maður pínu öllum
þessum spurningum. Ég hef stund-
um grínast með það með sjálfri
mér og kallað þetta bingó því
maður fær alltaf sömu spurning-
Heyrði orðið vegan fyrst í popplagi
Gígja Sara Björnsson hefur verið vegan í 16 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gígja er annar
eigandi Katta-
kaffihússins þar
sem gestir geta
fengið sér vegan
góðgæti og
klappað kisum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
arnar og heyrir sömu brandarana.
Það sýnir svolítið hvað við erum
ófrumleg sem mannfólk,“ bætir
hún við hlæjandi.
„En það er annað sem er svolítið
fyndið við þetta allt saman, þetta
er kannski pínulítið eins og ef
maður tilheyrir einhverjum trúar-
hóp, alltaf þegar ég svara þessum
spurningum þá er ég að staðfesta
fyrir sjálfri mér að ég hef valið rétt.
Nú hljóma ég kannski eins og ég sé
einhver költ-týpa, en ég upplifi það
svolítið að ef fólk er að gera lítið
úr þessu eða gera grín að mér þá
hugsa ég, já ég er enn þá að þessu
svo ég greinilega veit hvað ég vil.“
Fæstir þekktu orðið vegan
Gígja upplifir mjög breytt við-
horf í dag gagnvart vegan lífsstíl
frá því þegar hún var að byrja á
honum sjálf fyrir 16 árum. Núna
vita flestir hvað vegan er og sýna
þessu skilning. Fyrir tíu árum
þekktu fáir orðið vegan og höfðu
þar af leiðandi ekki myndað sér
neina skoðum á málinu. Sjálf segist
hún fyrst hafa heyrt orðið vegan,
í popplagi og þá hafi það vakið
áhuga hennar.
„Fólk spurði mig stundum áður
fyrr: Borðarðu í alvörunni bara
gras? Það einfaldlega skildi ekki
orðið vegan því það hafði aldrei
heyrt það áður. Í dag skilja það
flestir og flestir hafa líka myndað
sér einhverja skoðun á málinu.
Spurningarnar sem ég fæ frá fólki
eru því öðruvísi en áður.“
Gígja segir að það sé líka mikill
munur á úrvali af vegan vörum í
dag og árið 2006 þegar hún var að
byrja á vegan lífsstílnum.
„Þá þurfti ég að elda allt frá
grunni, aðallega úr grænmeti og
baunum. Það er himinn og haf á
milli þess að vera að búa til bauna-
smákökur og yfir í að geta keypt
alveg allt sem ég vil í f lottustu
vegan búð í heimi í Skeifunni. Mig
langar virkilega að hrósa Vegan
búðinni,“ segir hún.
„Áður var ég alltaf að leita að
uppskriftum og fletta uppskrifta-
bókum, en núna er úrvalið af
vegan vörum orðið meira svo ég
hef ekki verið eins dugleg að elda
frá grunni og áður. En mig langar
að fara að verða duglegri aftur að
prófa mig áfram og búa til mat frá
grunni, ég er enn þá mjög dugleg
að elda og mér finnst það mjög
skemmtilegt. Mér finnst gaman
að taka eitthvað grænmeti sem
hljómar leiðinlegt og gera það næs.
En ég flakka mikið með þetta og
það sem er í uppáhaldi hjá mér
breytist oft. Ég er rosa hrifin af
tófú og tempeh og finnst gaman að
elda eitthvað spennandi úr því, en
það eru ekki allir á heimilinu jafn
spenntir fyrir því og ég.“
Fundu ekki mun á bakkelsinu
Gígja er annar eigandi Kattakaffi-
hússins á Bergstaðastræti en þar er
allt sem er í boði vegan nema hægt
er að fá kúamjólk.
„Uppsprettan af því að ég varð
vegan er að ég er dýravinur, og þess
vegna opnuðum við kattakaffihús.
Þetta er eitt af fyrstu vegan kaffi-
húsunum í Reykjavík. Við vorum
í upphafi ekkert að auglýsa mikið
að kaffihúsið væri vegan. Sumt fólk
hafði komið nokkrum sinnum til
okkar og keypt bakkelsið áður en
það vissi að það væri vegan. Það
fann engan mun, bakkelsi er bara
bakkelsi, sykur er bara sykur. Það
er ekkert mikill bragðmunur á
vegan kökum og öðrum kökum,“
segir hún.
Auk þess að neyta engra
dýraafurða notar Gígja aðallega
vegan föt.
„Ég hef alveg notað föt sem ég hef
fengið gefins sem eru ekki vegan,
eins og ullarföt. Ég er ekki alveg
100% fullkomin í þessu. En ég nota
ekki leður, ég á ekki leðurskó og
kaupi ekki leðurtöskur,“ segir hún.
„Ég reyni líka að velja frekar
dýrari föt sem eru framleidd á
mannúðlegan hátt sem dæmi,
frekar en að kaupa kannski
plastskó í H&M eða eitthvað slíkt.
En ég er ekkert fullkomin í þessu.
Mér finnst fólk stundum verða
pirrað á að þar sem ég er vegan sé
ég ekki hugsjónamanneskja í öllu,
því finnst að ef maður er vegan
þurfi maður að vera 100% í öllu
öðru líka, en ég er bara mannleg,
ég geri mitt besta.“ n
Fólk spurði mig
stundum áður fyrr:
Borðarðu í alvörunni
bara gras? Það einfald-
lega skildi ekki orðið
vegan því það hafði
aldrei heyrt það áður. Í
dag skilja það flestir og
flestir hafa líka myndað
sér einhverja skoðun á
málinu.
6 kynningarblað 1. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURVEGAN