Fréttablaðið - 01.11.2022, Page 28

Fréttablaðið - 01.11.2022, Page 28
Hjartaknúsarinn Leonardo DiCaprio. thordisg@frettabladid.is Óskarsverðlaunahafinn Leonardo DiCaprio hefur fjárfest í enska merkinu Løci sem slegið hefur í gegn með vegan-strigaskóm í Hollywood, meðal annars hjá Ben Affleck, Milu Kunis og Jessicu Alba. „Ég er stoltur af því að hafa fjár- fest í Løci sem skapar skótau sem skaðar hvorki dýr, umhverfið né siðferðisvitund okkar,“ segir Leo og vonast til að fjárfesting hans veki athygli á Løci um allan heim. Hvert einasta skópar Løci sam- svarar endurvinnslu á tuttugu plastflöskum sem annars enduðu í sjó eða landfyllingum. Að auki er notast við kork, bambus, endur- unnið nælon og látún, og náttúru- legt hrágúmmí við skógerðina. Allt hráefni kemur úr Evrópu en fram- leiðslan fer fram í Portúgal sem er þekkt fyrir hágæða handverk og sjálfbæra aðferðafræði. Í tilkynningu frá Løci er sagt að fyrirtækið hafi nú þegar komið í veg fyrir að nær milljón plast- flöskum yrði fleygt og segist fyrir- tækið ekki hafa ekki getað óskað sér örlátari né heilsteyptari með- eiganda en Leonardo DiCaprio. n Leo kaupir skó Berin eru holl og góð. MYND/GETTY gummih@frettabladid.is Næring fyrstu aldursárin leggur grunn að fæðuvenjum barnsins. Þegar barn byrjar að fá fasta fæðu er mikilvægt að huga strax að fjölbreytni í fæðuvali en þó kynna alltaf eina fæðutegund í einu. Því ef barn fær ofnæmisviðbrögð eftir máltíð er hægt að átta sig á hvaða fæðutegund veldur því. Fyrir barn á grænkerafæði og sem farið er að fá fasta fæðu, er best að uppfylla næringarþörfina með því að gefa því matvæli úr eftir- töldum fæðuflokkum á hverjum degi: belgjurtum (til dæmis baunir, ertur, linsur), tófú og öðrum soja- vörum, heilkornavörum (til dæmis hafra, bygg, hýðishrísgrjón, kínóa, hirsi, heilkornabrauð og heil- kornapasta), grænmeti, ávöxtum og berjum, hnetum og fræjum, vítamín-og steinefnabættri jurta- mjólk-/vörum og jurtaolíum. Þar sem fæðuval er einstaklingsbundið og breytileiki í næringarinnihaldi matvara mikill, er hvatt til að fá frekari aðstoð um fæðuval og val á bætiefnum hjá næringarfræðingi eða næringarráðgjafa. n Grænkerafæði fyrir börn  starri@frettabladid.is Eplabaka: 4 græn epli möndlusmjörs-karamella (uppskrift hér að aftan) 1 bolli Rapunzel hafrar 1 bolli hveiti 1/2 bolli Rapunzel kókosmjöl 1/2 bolli sykur 1/2 til 1 bolli vegan smjör eða kókosolía frá Rapunzel Afhýðið eplin og skerið í litla bita. Setjið í eldfast mót og hellið möndlusmjörskaramellunni yfir. Útbúið deigið með því að blanda restinni af hráefnunum saman í skál og dreifið yfir eplin. Bakið kökuna í 30 til 35 mínútur við 180°C. Möndlusmjörskaramella: 5 msk. Rapunzel möndlusmjör 1 1/2 dl Rapunzel döðlusíróp Örlítið salt 2 tsk. Rapunzel kókosolía Setjið allt saman í pott og leyfið suðunni að koma upp. Sjóðið í 2 til 3 mínútur og hrærið í á meðan. Berið bökuna fram með vegan vanilluís. n HEIMILD: VEGANISTUR.IS. Gómsæt eplabaka Þessi eftirréttur slær alltaf í gegn. 8 kynningarblað 1. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURVEGAN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.