Fréttablaðið - 10.11.2022, Blaðsíða 1
Aukning yfirdráttar
lána á sama tíma og
innlán aukast getur
bent til þess að há
verðbólga bitni mis
jafnlega harkalega á
heimilum landsins.
2 4 7 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 1 0 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2
Sérhannaður
hjólreiðastígur
Fiðlulaga
klúbbaveröld
Fréttir ➤ 2 Menning ➤ 24
Mmm ...
Of snemmt
fyrir safaríkar
klementínur?
Opið allan
sólarhringinn
Í Nettó Mjódd
og Granda
Innlán heimilanna hafa haldið
áfram að aukast verulega eftir
Covid-faraldurinn og hjól
hagkerfisins farin að snúast á
nýjan leik. Yfirdráttarlán, sem
heimilin greiddu niður jafnt
og þétt í Covid, eru hins vegar
farin að aukast að nýju.
olafur@frettabladid.is
NEYTENDUR Heimilin í landinu hafa
verið að auka töku yfirdráttarlána.
Þetta kemur fram í Hagvísum Seðla-
banka Íslands.
Í viðtali við Markaðinn í dag segir
Vignir Þór Sverrisson, fjárfestinga-
stjóri hjá Íslandssjóðum, þetta geta
verið vísbending um að hluti heim-
ila geti átt í vandræðum með að ná
endum saman. Það muni þó koma
betur í ljós í vetur.
Yfirdráttarlán heimilanna, sem
hlutfall af landsframleiðslu, hafa
aukist á þessu ári eftir að dragast
saman frá upphafi Covid. Um ára-
mót voru þau 2,59 prósent af lands-
framleiðslu en eru nú orðin 2,63
prósent. Á sama tíma hefur lands-
framleiðsla aukist.
Ekki er vitað hvernig þetta skiptist
á heimilin en ekki er óvarlegt að ætla
að yfirdráttarlánin séu almennt frek-
ar lág og hækkun hlutfallsins bendi
til að heimilum sem taka yfirdrátt-
arlán hafi fjölgað á þessu ári.
Það að innlán heimila aukast
verulega á sama tíma og yfirdrátt-
arlán aukast á ný getur verið vís-
bending um að staða íslenskra
heimila sé mjög mismunandi og að
aukin verðbólga bitni misjafnlega
harkalega á þeim.
Breki Karlsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, segir yfirdráttar-
lán vera góðan mælikvarða á stöðu
heimilanna og það sé áhyggjuefni
að þau skuli fara hækkandi.
Aðspurður segir Breki Neytenda-
samtökin verða vör við að margir
félagsmenn þeirra finni illa fyrir
aukinni greiðslubyrði vegna vaxta-
hækkana undanfarið.
SJÁ SÍÐU 12
Yfirdráttarlán heimila aukast að nýju
Vaskur hópur Íslendinga tók í gærkvöldi þátt í alþjóðlega hlaupaviðburðinum Run in the Dark, eða Myrkrahlaupinu, í Elliðaárdal. Hlaupið fór fram samtímis víða um heim. Með því er safnað fé fyrir
rannsóknum og lækningu á mænuskaða. Lagt var upp frá gömlu rafstöðinni og hlaupinn 5,7 kílómetra hringur sem hver og einn fór á sínum hraða og greiddi 3.700 krónur fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VIÐSKIPTI Í kjölfar kaupa Elons Musk
á samfélagsmiðlinum Twitter og
yfirlýsingar hans um stefnubreyt-
ingu hafa fyrirtæki á borð við Gene-
ral Motors, Audi, Pfizer, General
Mills, Volkswagen og United Airlines
sagt skilið við Twitter.
Margir óttast nú aukna hatursorð-
ræðu á Twitter. Samkvæmt rann-
sóknarhópnum Network Contagion
Research Institute mældist 500 pró-
senta aukning á notkun „N-orðins“
fyrstu tólf tímana eftir yfirtöku
Musks. Montclair-háskólinn rakti
fjórfalt f leiri haturs-tíst á klukku-
tíma en vikuna fyrir yfirtökuna.
SJÁ SÍÐU 8
Flótti frá Twitter
sagður hafinn