Fréttablaðið - 10.11.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.11.2022, Blaðsíða 8
Tilmæli voru ekki nægilega skýr og harma báðir aðilar að svo hafi verið. Tekjur af auglýsingum nema um 90 prósent- um af heildartekjum Twitter. Auðjöfurinn Elon Musk keypti nýverið samfélags- miðlafyrirtækið Twitter og í kjölfarið hafa skapast miklar vangaveltur um ástæður yfirtökunnar. Musk segist vilja hjálpa mannkyninu en fyrirtæki sem auglýsa sig á miðlinum eru uggandi. helgisteinar@frettabladid.is VIÐSKIPTI Elon Musk, eigandi Tesla og jafnframt ríkasti maður í heimi, bauðst fyrst til að kaupa samfélags- miðilinn Twitter í apríl á þessu ári. Þá sagði Musk að Twitter þyrfti á ýmsum breytingum að halda og að hann væri lykillinn að því að opna fyrir alla þá möguleika sem fyrir- tækið byggi yfir. Daginn sem yfirtakan átti sér stað lýsti Musk því yfir að hann væri að kaupa Twitter til að hjálpa mann- kyninu og vildi skapa heilbrigðan vettvang fyrir umræður. „Twitter má ekki breytast í hel- víti þar sem fólk segir hvað sem það vill án afleiðinga,“ skrifaði Musk á Twitter. Auðjöfurinn lýsir sjálfum sér sem alræðismanni málfrelsis og var meðal annars mótfallinn því að Twitter bannaði Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á miðlinum eftir að stuðningsmenn hans réðust á þinghúsið í Washing- ton 6. janúar í fyrra. Margir hægrisinnaðir stjórn- málamenn hafa fagnað yfirtök- unni, þar á meðal öldungadeildar- þingmaðurinn Ted Cruz sem sagði kaupin vera eina mikilvægustu þróunina í nútímabaráttu mál- frelsis. Elon Musk hefur einnig sagst vilja breyta samskiptamiðlinum í nýtt forrit sem hann kallar „X“. Smáforritið yrði hannað í anda kín- verska skilaboðaforritsins WeChat þar sem notendur „geta gert allt“ eins og Musk orðar það. Auk þess að senda skilaboð væri einnig hægt að nota smáforritið til að panta mat eða leigubíl, greiða fyrir vörur, spila tölvuleiki og fara inn á heimabanka. Málfrelsisyfirlýsing Elons Musk hefur hins vegar verið gagnrýnd eftir að nýi eigandinn ákvað að banna alla eftirhermu-reikninga á Twitter. Fljótlega eftir kaupin byrjuðu margir notendur að breyta Twitter- nafni sínu í „Elon Musk“ og þóttust vera hann til að geta gert grín að honum. Uppistandarinn Kathy Griffin var ein þeirra sem tóku þátt í þeirri herferð og var Twitter- aðgangi hennar lokað í kjölfarið. Í gegnum árin hefur það reynst stjórnendum Twitter erfitt að reka fyrirtækið með hagnaði en sam- skiptamiðillinn reiðir sig mikið á auglýsingatekjur sem nema í kring- um 90 prósentum af heildartekjum Twitter. Eftir yfirtökuna hafa hins vegar nokkur fyrirtæki ákveðið að hætta alveg að auglýsa þar sökum óvissu á miðlinum. Fyrirtækin General Motors, Audi, Pfizer, General Mills, Volkswagen og United Airlines hafa öll sagt skilið við Twitter og óttast margir að hat- ursorðræða muni aukast til muna á miðlinum. Samkvæmt rannsóknarhópnum Network Contagion Research Insti- tute mældist 500 prósenta aukning á notkun „N-orðins“ fyrstu 12 tímana eftir yfirtöku Elons Musk og hafði Montclair-háskólinn einnig rakið um 400 haturs-tíst á klukkutíma, fjórfalt meiri en vikuna fyrir yfir- tökuna. n Fyrirtæki flýja af Twitter eftir söluna Í gegnum árin hefur það reynst stjórnendum Twitter erfitt að reka fyrirtækið með hagnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Hvað er Twitter? n Twitter er örbloggskerfi og netsamfélag sem stofnað var í mars 2006. n Upprunalega hugmyndin var að hanna samskipta- miðil þar sem notendur gætu bloggað með 140 stafa smáskilaboðum. n Stafafjöldinn var tvöfald- aður í 280 stafi árið 2017. n Orðið „Twitter“ („tíst“ á íslensku) vísar til hljóð- anna sem fuglar gefa frá sér og ber stofnandinn Jack Dorsey það saman við samskiptamátann á miðlinum. Það er að segja, „lítið óp af ómarkvissum upplýsingum“. n Notendur geta deilt skila- boðum, myndum og mynd- böndum sín á milli. n Twitter hefur verið lofað í gegnum árin fyrir að stuðla að samfélags- og pólitísk- um breytingum, en á sama tíma hafa margir notendur áhyggjur af skaðlegum skilaboðum sem flæða þar inn frá öfgahópum. Áhrifamikil skáldsaga eftir Hauk Má Helgason sem varpar nýju ljósi á lífið í Reykjavík á seinni hluta átjándu aldar. „Tugthúsið er sérlega vel upp byggð saga, frásagnarstíllinn þjáll og grípandi og persónusköpun góð.“ P Á L L E G I L L W I N K E L / M O R G U N B L A Ð I Ð „Mjög áleitin bók … Rosalega fjörugt persónugallerí.“ E G I L L H E L G A S O N / K I L J A N LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Virka daga 10–18 | Lau 11–17 | Sun 12–16 | www.forlagid.is lovisa@frettabladid.is KJARAMÁL Aðildarfélög BHM kynna sameiginlegar áherslur bandalags- ins fyrir komandi kjaraviðræður í dag klukkan 9.30 á fundi í Grósku í Vatnsmýrinni. Þegar hafa stór félög eins og VR og Efling lagt fram kröfur sínar. Á fundi BHM verður einnig kynnt ný skýrsla um rannsókn á virði menntunar á Íslandi í alþjóðlegum samanburði. Rannsóknin er unnin af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Fundinum verður einnig streymt á vef BHM. n BHM kynnir áherslur fyrir kjaraviðræður gar@frettabladid.is FJÖLMIÐLAR „Það var aldrei ætlun aðila að hefta störf fjölmiðla með nokkrum hætti,“ segir í sameigin- legri yfirlýsingu ríkislögreglustjóra og Isavia um aðgerðir á Keflavíkur- flugvelli er fulltrúar RÚV reyndu að fylgjast með brottflutningi fimm- tán hælisleitenda úr landi. Komið hefur fram að starfsmenn Isavia hafi lagt sig í líma við að lýsa með sterkum ljósum á útsendara RÚV sem reyndu að fylgjast með því sem fram fór í gegn um flugvallar- girðinguna er hælisleitendurnir voru fluttir úr landi í fylgd fjörutíu lögregluþjóna. Í fyrstu sagði Isavia að um hefði verið að ræða hefðbundið verklag en sú yfirlýsing var f ljótt dregin til baka og sagt að gripið hefði verið til þessa bragðs að fyrirmælum lög- reglu og var atvikið harmað. Nú er enn önnur útgáfa málsins komin fram í hinni sameiginlegu yfirlýsingu ríkislögreglustjóra og Isavia. Segir að lögregla hafi stjórn á framkvæmd slíkra aðgerða í sam- starfi við starfsfólk á flugvellinum. „Við y f ir ferð á framk væmd aðgerðarinnar kom hins vegar í ljós að tilmæli voru ekki nægilega skýr og harma báðir aðilar að svo hafi verið,“ segir í yfirlýsingunni. Ekkert kemur hins vegar fram í yfirlýsingunni um hvað það var sem aðgerðirnar umdeildu miðuðu að annað en að hindra störf fjölmiðla- manna. n Segjast ekki hafa ætlað að hindra fréttaflutning af brottvísun gar@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Niðu r fell ing greiðslna fyrir aukavaktir voru gagnrýndar á fundi Læknafélags Íslands með Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra í október. Þetta kemur fram í Læknablað- inu þar sem vitnað er til orða Stellu Rúnar Guðmundsdóttur, umsjónar- læknis með sérnámi á lyflækninga- sviði. Eftir að greiðslur fyrir auka- vaktir hafi dottið út sé ekki hægt að manna aukavaktir. „Plís, plís mættu,“ sagðist hún biðja en starfsfólkið segi nei. n Mæta ekki þótt hún þrábiðji Willum Þór Þórsson heil- brigðisráðherra 8 Fréttir 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.