Fréttablaðið - 10.11.2022, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 10.11.2022, Blaðsíða 24
Ég mundi segja að mesta stressið snúist um að reyna að ná vörunum áður en allt verður uppselt. Ragga Holm og Elma Val- gerður eru duglegar að nýta sér spennandi tilboð á Singles’ Day. Þær undirbúa sig vel og eru tilbúnar á mið- nætti þegar veislan hefst. starri@frettabladid.is Reykja vík ur dótt ir in og plötu- snúðurinn Ragga Holm og kærasta hennar, Elma Valgerður, byrjuðu að nýta sér tilboð á Singles’ Day árið 2019 og hafa varla stoppað síðan. „Um leið og við fréttum af síðunni 1111.is byrjuðum við að nýta okkur alls kyns góð tilboð,“ segir Ragga. „Við vorum búnar að ákveða hvað ætti að kaupa og af hvaða síðum svo allt myndi ganga smurt fyrir sig.“ Fyrstu kaupin voru jólagjafir handa fjölskyldumeðlimum, segir Elma. „Ef við munum rétt þá keyptum við iittala-glös og skálar handa systkinum og frændfólki okkar. Það er ótrúlega þægilegt að nýta sér þessi tilboð á netinu og sleppa við traffíkina í búðum yfir hátíðirnar, sleppa við raðir og finna bílastæði og allt þetta vesen.“ Skiptast á óskalistum Þær hafa undirbúið sig undanfarna daga svo allt verði klárt þegar stóri dagurinn rennur upp. „Við erum mjög spenntar en það er eitthvað svo fullkomið við það að byrja snemma að kaupa inn jólagjafir svo við séum ekki á síðasta snúningi á Þorláksmessu að redda jólagjöfum eins og hefur komið fyrir kannski einu sinni eða tvisvar á undan- förnum árum,“ segir Ragga. Fyrir þessi jól segjast þær helst vera að skoða úrvalið hjá verslun- um á borð við Líf og list og öðrum sambærilegum fagurkeraversl- unum. „Við vitum af fleirum í fjöl- skyldum okkar sem nýta sér þessi góðu tilboð þannig að það kemur alveg fyrir að við séum að senda óskalista á milli um jólagjafir.“ Verða tilbúnar á miðnætti En þótt Singles’ Day bjóði upp á mikil þægindi og góð verð myndast iðurlega smá stress enda mikið í húfi. „Ég mundi segja að mesta stressið snúist um að reyna að ná vörunum áður en allt verður upp- selt,“ segir Elma. „Undanfarin ár hefur þetta verið svolítið þannig að ég sé um kaupin á netinu og Ragga er svo daginn eftir á þeytingi um bæinn að sækja vörur hingað og þangað. Svo eru auðvitað nokkur frábær fyrirtæki sem senda vör- urnar heim beint að dyrum.“ Þær verða því tilbúnar báðar tvær á miðnætti þegar veislan byrjar, bætir Ragga við. „Við verðum báðar límdar við skjáinn og byrjum á slaginu. Ef við náum ekki að klára alla pakkana þá fylgjumst við grannt með Black Friday og Cyber Monday sem eru síðar í þessum mánuði.“ n Fullkomið að byrja snemma á jólagjafakaupum Ragga Holm og Elma Valgerður eru duglegar að nýta sér tilboðin á Singles’ Day. MYND/AÐSEND Hægt er að gera frábær kaup á Singles’ Day. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Snyrtivöruverslunin Nola selur mikið úrval af snyrti- vörum sem ekki hafa verið prófaðar á dýrum. Verslunin hefur fengið verðlaun fyrir að vera besta netverslunin með snyrtivörur á Norður- löndunum. Nola selur mikið af dekurvörum og hafa Gua Sha-steinar og -rúllur verið sérlega vinsæl og voru mest seldu vörur verslunarinnar í fyrra. „Það eru stelpur allt niður í tólf ára að koma og kaupa steinana hjá okkur. En þeir eru alveg skaðlausir og henta fyrir allan aldur,“ segir Karin Kristjana Hindborg, eigandi Nola. „Við skildum ekki af hverju svona ungar stelpur voru að koma og kaupa steinana. Við vissum ekki hvar þær höfðu séð þá. En það kom í ljós að það var á TikTok. Þegar mömmurnar komu og voru að kaupa þá í jólagjöf fyrir dóttur sína í fyrra fóru þær að spyrja um steinana og vildu þá fá stein fyrir sig líka. Steinarnir eru mismun- andi, þetta eru kristallar en sumir eru úr rósakvars [e. rose quartz], aðrir úr ameþyst og aðrir eru úr lapis. En steinarnir gefa frá sér mis- munandi orku.“ Karin segir að vegna vinsælda steinanna hafi þau hjá Nola búið til kennslumyndband til að fræða fólk um steinana og kenna því að nota þá. Hægt er að finna mynd- bandið með því að skanna með- fylgjandi QR-kóða. Tími fyrir dekur „Okkur finnst mikilvægt að fólk gefi sér tíma til að dekra við sig. Hraðinn í þjóðfélaginu er svo ótrúlega mikill að stundum er gott að stoppa og spyrja sig: Númer hvað er ég í goggunarröðinni? Við viljum oft gleyma okkur sjálfum og setja okkur í síðasta sæti. Gua Sha-steinarnir eru einfalt og ódýrt tól til að gefa sjálfum sér dekur- tíma. Að nota steinana er góð leið til nudda á sér andlitið, þannig fær maður fyrirhafnarlausa og ódýra andlitslyftingu. Þetta er aldagömul kínversk nuddaðferð en hefur á undanförnum árum komið sterkt inn í snyrtivöruheiminn,“ segir Karin. „Nudd með steinunum virkjar sogæðakerfið, kemur súrefni út í blóðið og mýkir bandvef. Það er mikill ávinningur af því að nota steinana þeir geta minnkað bólgur og bjúg í andliti, öxlum, herðum og baki.“ Karin segir að steinarnir séu viðkvæmir og að þær hafi því látið framleiða fyrir sig óbrjótan- lega Gua Sha úr ryðfríu stáli. „Þeir brotna ekki og eru alltaf kaldir. Það er gott ráð að taka þá með sér í bað eða heitan pott og nudda auma vöðva og mýkja bandvefinn með honum.“ Skaðlausar vörur Allar vörurnar í Nola eru fram- leiddar án þess að skaða dýr, en Karin segir að verslunin sé orðin ein stærsta snyrtivöruverslunin á Norðurlöndunum sem framleiðir vörur án tilrauna á dýrum. „Við fengum verðlaun í vor frá Lux Life magazine fyrir að vera besta vefverslunin sem selur snyrti- vörur, á Norðurlöndunum. Við seljum allar tegundir af snyrti- vörum, fyrir andlit og líkama, förð- unarvörur, þvottaefni, hárvörur og alls konar fylgihluti,“ segir hún. „Við skiljum að þetta geti verið algjör frumskógur fyrir marga, úrvalið er það mikið. Þess vegna viljum við endilega fá fólk til okkar svo við getum frætt það og aðstoðað það við að velja réttu vörurnar.“ Á Singles’ Day verður 20–40% afsláttur af öllum vörum í netversl- uninni allan sólarhringinn. Karin segir að dagurinn sé einn af stærstu dögum ársins hjá þeim, enda sé mjög sjaldan afsláttur í búðinni. „Mig langar líka að bæta við að jóladagtalið okkar er komið í sölu, en við vorum eitt af fyrstu fyrir- tækjunum á Íslandi sem gerðum okkar eigið jóladagatal. Dagatalið er eina varan sem er ekki á afslætti á morgun en í því eru ársbirgðir af snyrtivörum í einum kassa á góðu verði. Það má kaupa það sem dagatal en það er líka vinsælt sem jólagjöf.“ n Valin besta vefverslunin með snyrtivörur Karin Kristjana Hindborg, eigandi Nola, segir Singles’ Day vera einn stærsta dag ársins í versluninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hjá Nola fást fjölbreyttir Gua Sha- steinar en þeir eru mjög vinsælir. Við viljum oft gleyma okkur sjálfum og setja okkur í síðasta sæti. Gua Sha- steinarnir eru einfalt og ódýrt tól til að gefa sér sjálfum dekurtíma. 4 kynningarblað 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGURSINGLES’ DAY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.